Bændablaðið - 09.02.2023, Qupperneq 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki
eru markaðsráðandi á heimsvísu
í framleiðslu loðnuhrogna. Ætla
má að 80–100% heimsfram-
leiðslunnar á hverju ári sé í
sjávarþorpum Íslands.
Loðnuhrogn eru nýtt á marg-
víslegan hátt en yfirleitt eru þau hrá
við neyslu. Hreinlæti og ferskleiki
skipta því afar miklu máli við
framleiðsluna. En erfiðast af öllu er
að hrognavertíðin stendur einungis í
10–20 daga ár hvert á vetrarvertíðinni
þegar allra veðra er von.
Íslendingar stýra loðnuhrogna-
markaði á heimsvísu
Verðmæti hrognaframleiðslu síðustu
20 ár er um 120 milljarðar króna,
eða um 5 milljarðar að meðaltali ár
hvert. Það er því mikið undir. En
hvernig stendur á því að Íslendingar
stýra hrognaframleiðslunni og
hvers vegna er þetta svona og
hverjum er það að þakka?
Loðnan er kaldsjávarfiskur
og veiðist víða
Loðna er kaldsjávarfiskur, finnst við
norðurhluta Japan, í Barentshafi, við
Kanada og líklega Grænland þar sem
hún er ekki nýtt, auk Íslands. Loðnan
sem veiðist við norðurhluta Japan er
mun stærri en sú íslenska og þaðan
kemur neysluhefðin. Þar var hún
ofveidd og hefur ekki borið sitt barr
síðan enda er stjórn fiskveiða við
Japan í molum eins og Ayumu Katano
lýsti fyrir lesendum Bændablaðsins í
viðtali 12. ágúst 2021.
Í Kanada er loðnan veidd á
smábátum á sumartíma þar sem
ómögulegt er að koma við kælingu
og góðri meðferð aflans. Auk þess eru
vinnslurnar litlar og án tæknivæðingar.
Loðnan í Kanada er stór og góð
þegar hún kemur úr sjónum en
meðferð hennar leiðir til lakra gæða
og takmarkaðrar eftirspurnar. Vegna
slæms skipulags veiðanna er afkoma
fyrirtækjanna slæm og leyfir ekki
neina framþróun eða tæknivæðingu.
Norðmenn og Rússar veiða
loðnu í Barentshafi. Norðmenn eru
með stór og öflug skip með mikla
kæligetu auk þess að vinnslur í landi
eru öflugar. Íslendingar hafa framleitt
tæknibúnað við hrognaframleiðslu
Norðmanna, kennt þeim og staðið
yfir framleiðslu þar. Í Noregi mega
útgerðir og vinnslur ekki vera á sömu
hendi. Þeir geta því ekki stjórnað
veiðum og vinnslu saman og hafa
þar af leiðandi ekki náð viðunandi
árangri í loðnuhrognaframleiðslu.
Önnur skýring á árangursleysi þeirra
er að loðnuveiði í Barentshafi er
sveiflukenndari en við Ísland.
Heimildir um nytjar loðnu
Ýmsar sögur eru um nytjar Íslendinga
af loðnu áður en veiðar og vinnsla
hennar hófust árið 1963 fyrir
suðurströndinni. Litlar heimildir
eru um að Íslendingar hafi borðað
loðnu en þó segir frá því í bók
Steinþórs Þórðarsonar frá Hala að
Suðursveitungar hafi gengið fjörur
frá góu og fram á sumarmál og tínt
það sem rak, bæði þorskhausa og síli
eins og hann kallar loðnuna. Þá skipti
máli að vera kominn fram á fjöruna
í þann mund sem birti til að ná að
safna fiski og síli áður en fuglinn
kæmi að tína. Sílið var þá étið eins
og hægt var meðan rak og var geymt
í sköflum allt upp undir hálfan mánuð
og það sem ekki nýttist til matar á
rekatímanum var hert og borðað með
flatbrauði meðan entist út sumarið.
Vestur á Snæfellsnesi þekki ég þá
sögu að sveitakarlarnir veiddu loðnu
og söltuðu upp úr 1900 og nýttu sem
skepnufóður.
Upphaf loðnuveiða og -vinnslu í
atvinnuskyni á Íslandi
Hornfirðingar hófu að veiða loðnu
fyrir 1920 og nýttu hana til beitu.
Loðnuveiðar til bræðslu hófust 1963
en þá var landað rétt rúmum 1.000
tonnum, þar af tæp 900 tonnum í
bræðslu hjá Fiskimjölsverksmiðju
Vestmannaeyja, og strax árið 1964
var 8.640 tonnum landað. 1963 var
Ófeigur II t.d. með síldar-, loðnu- og
þorsknót samtímis um borð og veiddi
í þá nót sem líklegust var þann daginn.
Í Eyjum var ýmislegt reynt til að
nýta loðnuna, m.a. að frysta hana sem
fóður fyrir danska ketti! Í kjölfarið fóru
útgerðarmenn víðar að reyna fyrir sér
og sem dæmi héldu útgerðarmenn í
Sandgerði til loðnuveiða árið 1964.
Þeim gekk illa að selja loðnuna til
bræðslu suður með sjó og seldu hana
því í beitu. Þeir reyndu síðar að fá
forsvarsmann bræðslunnar í Sandgerði
til að kaupa aflann en hann vildi ekki
loðnuna og taldi ónýtan fisk.
En eftir fortölur fékkst hann til að
prófa og úr varð fínasta mjöl og lýsi.
Loðnu- og loðnuhrognafrysting
hófst í Eyjum
Það var japanskur sölumaður sem
sá hrognin kreistast úr loðnunni við
löndun til bræðslu á Íslandi og datt í
hug að nýta hrognin í Japan. Hann lét
gera tilraun árið 1971 og sendi bæði
söltuð og fryst loðnuhrogn til Japan.
Þau söltuðu reyndust ónýt en
hin frystu ágæt. Með þá þekkingu
í farteskinu samdi Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna við japanska
kaupendur árið 1972 um sölu á
200 tonnum af hrognum og var
Eyjamönnum falið að vinna hrognin en
einungis tókst að framleiða 22 tonn það
árið. Samhliða hófst frysting hrygnu
fyrir Japansmarkað í Eyjum.
Það voru miklar æfingar við fyrstu
hrognatökuna. Viðmælendur mínir,
sem eru margir, sögðu frá ýmsum
æfingum en fyrst var hrognunum
safnað saman í grisjupokum. Einn
heimildarmaður sagði mér frá þegar
hann fór út á ruslahauga Eyjamanna
til að ná sér í járnnet til að reyna að
sigta hrognin. Menn báru síðan saman
bækur sínar og smám saman þróaðist
vinnslan. Í fyrstu var hrognunum
safnað í grisjupoka en vandinn var að
samhliða söfnuðust svilin sem límdu
saman hrognin og gátu þau orðið
að hörðum köggli, ekki ósvipuðum
gúmmíkúlum. Á því varð að finna
lausn þar sem kaupendur vildu hafa
hrognin laus. Lausnin var að skola
hrognin í talsverðu magni af sjó.
Þróun tækni og lausna
við vinnsluna
Eftir gos hófu Eyjamenn að kreista
loðnuna, sem kallað var. Loðnan fór
gegnum þrengingu og sprakk svo unnt
var að aðskilja hrognin í tromlum, sem
þá voru komnar til sögunnar.
Vandinn við kreistinguna var að
mikið af aðskotahlutum slæddist
með, s.s. bein, uggar, augu, hreistur,
ormar o.fl., sem ekki er gott að hafa
með hrogununum því kaupendur vildu
hafa hrognin hrein.
Þá hófu menn að skera loðnuna
sem fólst í því að loðnan fór í gegnum
hnífasett og var þannig skorin og þá
var farið að tala um að kútta loðnu.
Sú aðferð er allsráðandi í dag. Í kjölfar
alls þessa hefur orðið mikil þróun í
hreinsun hrogna. Hrognin eru þvegin
í miklu sjómagni og til þess eru notaðir
gríðarstórir pottar auk annars búnaðar.
Sem dæmi dælir Vinnslustöðin um
300–400 tonnum af sjó í þessa potta
á klukkutíma til hreinsunar. Kostur
Vestmannaeyja er sá að auðvelt er
að ná í dauðhreinsaðan sjó í gljúpu
bergi Heimaeyjar. Frá náttúrunnar
hendi eru Eyjarnar því kjörstaður
loðnuhrognavinnslu.
En loðnuhrogn eru nú framleidd í
flestum uppsjávarbyggðum landsins.
Helstu markaðir loðnuhrogna
Lengst af var eini markaðurinn fyrir
loðnuhrogn í Japan. Nú eru loðnuhrogn
seld víða um heim. Auk Japan fara
þau til Kína og annarra ríkja Asíu og
eru mjög áberandi á japönskum og
austurlenskum veitingahúsum um allan
heim. Þar er masago, sem framleitt er
úr loðnuhrognum, mjög áberandi.
Masago er samkeppnisvara tobikko,
sem er framleitt úr hrognum flugfiska
sem veiðast í Kyrrahafinu. Framleiðsla
á masagoi hófst á Íslandi upp úr 1992.
Þá má ekki gleyma stórum markaði
sem myndaðist í rússneskumælandi
löndum upp úr 2002. Þar voru hrognin
kynnt sem kavíar og var blandað út í
smyrjur og höfð þannig ofan á brauð.
Þegar mest var seldust um 6–7.000
tonn til rússneskumælandi landa.
Íslenskt hugvit
Sem fyrr segir byggir öll þessi
þróun að mestu á íslensku hugviti
starfsmanna uppsjávarfyrirtækjanna
og iðnaðarmanna þeirra fyrirtækja
sem þjónuðu sjávarútveginum.
Þá má ekki gleyma þekkingu og
framlagi sölumanna, matvæla- og
örverufræðinga og annarra vísinda-
manna. Uppbyggingin fól í sér
sáralitla erlenda þjónustu utan stáls
og annars efnis sem nauðsynlegur
er við byggingu tækja og húsnæðis.
Langstærstur hluti verðmætanna
rann því í vasa þjóðarinnar, trúlega
yfir 90% þessara 120 milljarða sem
hrognin ein og sér hafa skilað síðustu
20 árin. Með grófri nálgun skattspors
Vinnslustöðvarinnar má ætla að um 50
milljarðar af þessum tekjum hafi runnið
til opinberra aðila, s.s. ríkissjóðs,
sveitarfélaga og lífeyrissjóða, 40
milljarðar í vasa starfsmanna og 19
milljarðar til fyrirtækjanna sjálfra sem
m.a. voru nýtt til þeirrar þróunar og
uppbyggingar sem hér er lýst, auk
11 milljarða í rekstrarkostnað við
loðnuhrognavinnsluna.
Greinarhöfundur vill að lokum,
fyrir hönd íslensku þjóðarinnar,
leyfa sér að þakka öllum þeim sem
komu að þróun og uppbyggingu
loðnuhrognavinnslu og þeirrar
gríðarlegu verðmætasköpunar sem í
henni fólst og þar með framlagi þeirra
til uppbyggingar íslensks samfélags.
Greinarhöfundur er
framkvæmdastjóri Vinnslu-
stöðvarinnar í Vestmannaeyjum og
skreytir sig gjarnan með því
að vera búfræðingur.
Vinnslustöðin hefur tekið þátt í
loðnuveiðum og vinnslu frá upphafi.
Greinin byggir á viðtölum við marga
núverandi og fyrrum starfsmenn
félagsins auk annarra.
Sigurgeir B. Kristgeirsson
binni@vsv.is
NYTJAR HAFSINS
VEIÐISVÆÐI ÓSKAST
Vegna mikilla eftirspurna þá köllum við eftir nýjum veiðisvæðum í flóru
félagsins. Bæði stöðuvötn og rennandi vatn. Skoðum einnig veiðisvæði
á afskektum stöðum.
Veiðifélagið Fish Partner er í stöðugum vexti og leitast eftir fleiri
samstarfsaðilum um land allt óháð fisktegund og tegund vatnasvæðis.
Vinsamlegast hafið samband við Kristján í síma 898 3946 eða á
netfangið kristjan@fishpartner.com.
Saga loðnuveiða:
„Hrognin eru að koma, gerið kerin klár“
– söng Bubbi um loðnuhrognin
Hrognafrysting 1972. Stúlkurnar eru: Jarþrúður Júlíusdóttir og Petra Ólafsdóttir. Myndir / Sigurgeir Jónasson
Loðnuhrognum safnað í grisjupoka 1972. Óþekktir starfsmenn.