Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
Mest lesna blað landsins?
Lestur Fréttablaðsins hefur hrunið eftir að útgáfu-
fyrirtækið Torg ákvað að breyta dreifingu blaðsins.
Nýjar tölur Gallup um lestur prentmiðla sýna að í
janúar var lestur Fréttablaðsins á landsvísu 15,7% og
er orðinn minni en lestur Morgunblaðsins, sem mælist
18,9%. Ástæða minnkandi lesturs Fréttablaðsins er
rakin til þess að blaðinu er nú ekki lengur dreift í hús á
höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri, heldur liggur það frammi
í þar til gerðum stöndum á um 120 stöðum á Suðvesturlandi
og á Akureyri. Bændablaðið tók þátt í lestrarmælingu Gallup
á síðasta ársfjórðungi 2022. Þá mældist lestur þess á landsvísu
26%. Tölurnar benda því til þess að Bændablaðið sé í dag
mest lesni prentmiðill landsins.
Dreifikerfi þess nær til yfir 420 dreifingarstaða um allt
land og er upplaginu, rúmum 33.000 eintökum, dreift í vel
flestar matvöruverslanir, bensínstöðvar, sundlaugar og á
hvert lögbýli landsins. /ghp
Búgreinaþing:
Formannsskipti hjá
nautgripabændum
Nýr formaður búgreina-
deildar NautBÍ verður kjörinn
á búgreinaþingi.
Herdís Magna
Gunnarsdóttir,
bóndi á Egils
stöðum, mun
ekki gefa kost
á sér til áfram
haldandi for
mannssetu.
Hún ætlar
áfram að vinna
að hagmunum
bænda sem varaformaður
Bændasamtakanna en ætlar að
láta öðrum eftir að sinna forystu
nautgripabænda.
Í áramótapistli sínum til
nautgripabænda sagði Herdís Magna
að verkefni næsta formanns og
stjórnar verði að fylgja eftir áherslum
búgreinarinnar í næstu endurskoðun
búvörusamninga.
„Hvet ég þau sem koma til með að
sitja í samninganefnd um endurskoðun
búvörusamninga til þess að hlusta
á bændur og forsvarsfólk þeirra.
Mikilvægt er að fara með opnum
hug inn í endurskoðunina og muna að
endurskoðun var upphaflega hugsuð
til að sníða agnúa af samningnum en
ekki kollvarpa þeim,“ segir Herdís
m.a. í pistli sínum.
Einnig kemur þar fram að
innleiðing á kyngreindu sæði
sé augljóst næsta stóra skref
búgreinarinnar nú í kjölfar inn
leiðingar erfðamengisúrvals.
Herdís Magna hefur setið í stjórn
Landssambands kúabænda í rúm
sex ár og var kjörinn formaður þess
árið 2020. /ghp
Herdís Magna
Gunnarsdóttir.
Búgreinaþing:
Deild landeldis
nýr þátttakandi
Deild landeldis var stofnuð innan
Bændasamtaka Íslands síðasta
sumar og því verður búgreinin
þátttakandi í búgreinaþingi.
Þorva ldur
Arnarsson, verk
efnisstjóri hjá
fiskeldisfyrir
tækinu Landeldi,
er formaður
búgreinadeildar
innar og hyggst
bjóða sig fram til
áframhaldandi
formennsku.
Landeldissamtök Íslands
(ELDÍS) voru einnig stofnuð síðasta
sumar með aðild Landeldis hf.,
Samherja hf., Geo Salmo, Matorku
og ILFS í Vestmannaeyjum.
Undirrituð var viljayfirlýsing á
milli ELDÍS og Bændasamtaka
Íslands um að vinna sameiginlega
að fullvinnslu lífræns úrgangs til
áburðarframleiðslu á Íslandi.
„Ég er þakklátur fyrir tækifærið
og hef metnað til að gera vel á
þessum vettvangi.
Einmitt núna erum við í Landeldi
hf. eina félagið í landeldisdeild
Bændasamtaka Íslands. Við erum
nýkomin inn og deildin í sjálfu sér
nýstofnuð, og við erum að vinna í
því þessi dægrin að kynna vettvang
deildarinnar og Bændasamtakanna
í heild fyrir samstarfsaðilum
okkar í Landeldissamtökum
Íslands,“ segir Þorvaldur um
framtíð deildarinnar innan Bænda
samtaka Íslands.
„Við höfum ekki afmarkað
sérstaka málaskrá enn sem komið
er fyrir búgreinaþingið, en við
lítum á það sem kærkomið tækifæri
til að tengjast bændasamfélaginu
og vonandi eiga samtal um leiðir
til að leggja okkar af mörkum með
hvaða hætti sem það kann að vera.
Við lítum á okkur sem
bændur þar sem við stundum
matvælaframleiðslu á okkar eigin
landi og leggjum mikinn metnað
í að ná jákvæðum umhverfis
áhrifum af okkar framleiðslu,
vonandi til virðisauka fyrir
landbúnaðarsamfélagið allt,“ bætir
Þorvaldur við. /smh
Þorvaldur
Arnarsson.
Meðallestur prentmiðla
á landsvísu
26,0%
8,5%
5,0%
18,9%
15,7%