Bændablaðið - 09.02.2023, Síða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
háuppskerutímann og viljum við
leggja áherslu á að yfir sumartímann
verði íslenska varan á borðum þessara
ferðamanna í framtíðinni.
Tíminn verður síðan að leiða það
í ljós hvort af þessu verður en þeir
ferðamenn sem eru að sigla í kringum
landið og skoða sig um hafa klárlega
áhuga á íslenskri matvöru og um það
snýst málið.“
Talsvert keypt af eggjum
Þorsteinn Sigmundsson, eggjabóndi
að Elliðahvammi, segir að skemmti-
ferðaskip og annars konar skip sem
til landsins koma kaupi talsvert
af eggjum. „Ég hef selt egg til
skemmtiferðaskipa og annarra
skipa í mörg ár en er ekki í föstum
viðskiptum við neitt þeirra. Yfirleitt
er það svo að stóru skipin taka á móti
matargámum sem koma erlendis frá
og eru geymdir á frísvæði þar til þeir
eru teknir um borð. Stundum bregst
það og þar sem egg eru fersk vara og
ekki hægt að geyma þau lengi panta
þeir egg hér.
Magnið sem pantað er í stærstu
skipin er í tonnavís og upp í fimm
tonn í einu og því um nokkra tugi
tonna á ári að ræða sem við söfnum
saman og seljum í skipin.“
Íslenskar matvörur varaskeifa
Aðalsteinn H. Magnússon, sölu-
og markaðsstjóri hjá Mjólkur-
samsölunni, segir að MS selji
nokkuð af mjólkurvörum um borð í
stór skemmtiferðaskip á hverju ári en
ekki nógu mikið og að það sé alltaf
verið að reyna að auka þann markað.
„Við seljum meðal annars skyr,
mjólk og aðallega G-mjólk, og
eitthvað af ostum.
Á hverju ári rekumst við aftur
á að stóru skemmtiferðaskipin eru
yfirleitt búin að taka allan sinn kost
á ódýrum mörkuðum úti í Evrópu og
fá talsvert af matvöru senda hingað
inn á frísvæði sem þau taka síðan
um borð. Skipin nota því íslenskar
matvörur sem varaskeifu ef annað
klikkar. Ætli MS selji ekki vörur til
skemmtiferðaskipanna fyrir um 50
milljónir króna á ári.“
Aðalsteinn segir að fyrir Covid
hafi Ekran leitt saman nokkra
framleiðendur, MS, TVG, Banana,
Gára, Kjarnafæði, Sjófisk og CCEP,
til að reyna að nálgast þá örfáu
aðila sem stjórna markaðinum fyrir
skemmtiferðaskip.
„Við lögðum í talsverðan kostnað
undir heitinu Flavour of Iceland og
sendum fulltrúa á sýningar sem eru
haldnar til að kynna íslenskar vörur
fyrir þá sem reka skemmtiferðaskip.
Ein af hugmyndunum var að fá
skipin til að vera með íslenska daga
um borð þegar þau kæmu til landsins
og bjóða upp á íslenskar matvörur.
Verkefnið gekk vel til að byrja
með og ágætlega tókst til við að
koma vörum til þeirra en árið 2019
jókst stórlega gámaflutningur til
landsins á kosti erlendis frá sem
skipin taka svo um borð í íslenskum
höfnum. Kynningin var okkar leið
til að fá skipafélögin til að kaupa
íslenskar vörur en satt besta að
segja höfum við ekki náð miklum
árangri en sem komið er. Enda snýst
áhugi skipafélaganna meira um verð
en gæði.“
Engar umframbirgðir
af lambakjöti
Steinþór Skúlason, forstjóri
Sláturfélags Suðurlands, segir að
möguleikinn á að selja íslenskar
kjötvörur um borð í skemmtiferða-
skip hafi ekki verið áherslumál hjá
þeim. „Staðan í dag er breytt frá því
sem áður var og þannig að ekki eru
til birgðir af lambakjöti nema fyrir
innanlandsmarkað fram á haust.
Það er því ekki ástæða til að
leggja áherslu á skemmtiferðaskipin
sem markað eins og er, ekki nema
þá að skipin séu tilbúin til að greiða
hærra verð en aðrir markaðir.“
Aðalskoðun hf. óskar eftir að ráða bifvélavirkja til starfa við skoðun ökutækja á Selfossi.
Við erum að leita að starfsmanni með framtíðarstarf í huga.
Umsóknarfrestur er til 23. febrúar.
Sveinspróf í eftirfarandi greinum er skilyrði, bifvélavirkjun, vélvirkjun eða bifreiðasmíði.
Aðalskoðun leggur áherslu á fagleg vinnubrögð við skoðun ökutækja og ríka
þjónustulund, en í starf inu felast eðlilega mikil samskipti við viðskiptavini.
Nánari upplýsingar veitir Ævar S. Hjartarson tæknistjóri.
Umsóknir sendist á aevar@adalskodun.is. Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað að loknum umsóknarfresti.
Jóhann Bogason, framkvæmdastjóri
Gáru skipamiðlunar.
Þorsteinn Sigmundsson, eggjabóndi
að Elliðahvammi.
Sigurður Jökull Ólafsson, markaðs-
stjóri Faxaflóahafna.
Aðalsteinn H. Magnússon, sölu- og
markaðsstjóri hjá MS.
Steinþór Skúlason, forstjóri SS.
Landgræðslan býður verktökum á
námskeið um vernd og endurheimt
votlendis með áherslu á aðferðir við
framkvæmdir.
Eftir námskeiðið fá þátttakendur
staðfestingarskjal sem hægt verður
að framvísa þegar sótt er um verk í
endurheimt votlendis.
22. febrúar 2023, kl. 20:00
Rafrænt kvöldnámskeið (Teams).
Skráning í síma 488-3085 eða með
tölvupósti á votlendi@land.is
VILT ÞÚ STARFA
VIÐ ENDURHEIMT?
Landsliðið
í dælum
Eldsneytis- og efnadælur,
tunnudælur, mælar,
slöngur og fylgihlutir.
LANDVÉLAR | SMIÐJUVEGI 66 | 580 5800 | LANDVELAR.IS
LAUSNIR Á LAGER