Bændablaðið - 09.02.2023, Side 41

Bændablaðið - 09.02.2023, Side 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023 A Wendel ehf. Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík, S:551 5464 - wendel@wendel.is www.wendel.is Hilltip Icestriker 900–1600L Salt og sanddreifari í tveimur stærðum fyrir stóra pallbíla og minni vörubíla. Rafdrifinn 12V. Hilltip Icestriker 380–550L Salt og sanddreifarari í tveim stærðum, fyrir minni pallbíla. Rafdrifinn 12V. Hilltip Icestriker 600 TR Rafdrifinn kastdreifari fyrir dráttarvélar m/öf lugum efnisskömmtunarbúnaði. Hilltip Snowstriker VP Fjölplógur fyrir pallbíla, minni vörubíla og jeppa. Fáanlegur í 185–240 cm breidd. Hilltip Snowstriker SP Snjótönn fyrir pallbíla, minni vörubíla og jeppa. Fáanleg í 165–240 cm breidd. Hilltip Fjölplógur MVP Fjölplógur fyrir ameríska pallbíla t.d. RAM 3500, GMC 3500 og FORD 350. alhliðageng með takthreint og rúmt skeið. Töltið er afar gott, takthreint, mjúkt og skrefmikið með góðri lyftu, sama má segja um hægt tölt. Brokk og stökk er takthreint, skrefmikið og lyftingargott og hæga stökkið jafnan gott. Fetgæðin eru misjöfn en fetið er takthreint en skreflengd getur brugðið til beggja átta. Afkvæmin hafa fasmikla framgöngu með góðum höfuðburði og miklum fótaburði, þau eru ásækin og þjál í vilja. Hrönn frá Búlandi gefur reist og framfalleg hross með sívalt og hlutfallgott samræmi. Afkvæmi eru takthrein, skrefmikil og með góðan fótaburð. Þau fara afar vel í reið með þjálan og ásækinn vilja. Hún hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og fjórða sætið. Álfarún frá Halakoti Hryssan í fimmta sæti er Álfarún frá Halakoti. Hún er undan heiðursverðlaunahestinum Álfasteini frá Selfossi og Oddrúnu frá Halakoti. Ræktendur hennar eru Góðhestar ehf. en eigandi er Svanhvít Kristjánsdóttir. Álfarún er með 121 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn en hún á 8 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm. Dómsorð afkvæma: Álfarún gefur hross í rúmu meðallagi að stærð. Höfuð er svipgott. Hálsinn er langur og með góðri yfirlínu. Bak vöðvafyllt og lend öflug. Afkvæmin eru fótahá og sívalvaxin. Fótagerðin er öflug, góð sinaskil og öflugar sinar. Framfætur oft snúnir. Hófar góðir. Prúðleiki oft heldur slakur. Tölt og brokk er takthreint, skrefmikið og með góðri fótlyftu. Eitt klárhross er í hópnum en þegar skeið er fyrir hendi er það skrefmikið og oftast takthreint. Fetið er skrefmikið og takthreint. Afkvæmin eru viljug og þjál og fara vel í reið með miklum fótaburði. Gréta frá Feti Hryssan í sjötta sæti er Gréta frá Feti. Hún er undan heiðursverðlaunahrossunum Þristi frá Feti og Gerðu frá Gerðum. Ræktandi hennar er Brynjar Vilmundarson en eigandi er Fet ehf. Gréta er með 120 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn en hún á 12 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm. Dómsorð afkvæma: Gréta gefur smá hross. Höfuð oft, heldur gróft en eyrun vel borin. Hálsinn langur og reistur. Bakið vöðvafyllt og lendin öflug en tvö afkvæmanna hafa framhallandi bak. Afkvæmin hafa sívalan bol. Fótagerð afar breytilega allt frá því að vera slök upp í úrvals góð. Réttleiki heldur slakur en flest afkvæmanna eru nágeng aftan. Hófar góðir. Prúðleiki breytilegur. Töltið er takthreint, skrefmikið, rúmt og með góðri fótlyftu, með einni undantekningu þó. Brokkið er breytilegt og sama má segja um skeiðið. Tveir vekringar er í hópnum, eitt klárhross og tvö sýna lítið skeiðöryggi. Stökkið er rúmt. Fetið oft frekar slakt, með einni undantekningu þó. Gréta gefur yfirleitt ásækin hross sem fara vel í reið með góðum fótaburði. Píla frá Syðra-Garðshorni Hryssan í sjöunda sæti er Píla frá Syðra- Garðshorni. Hún er undan heiðursverðlauna- hestinum Adam frá Ásmundarstöðum og Kleópötru frá Nýjabæ. Ræktandi hennar er Ingólfur Kristjánsson en eigendur eru Kristján Tryggvi Jónsson, Mette Camilla Moe Mannseth og Ingólfur Kristjánsson. Píla er með 120 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn en hún á 11 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm. Dómsorð afkvæma: Píla gefur hross í rúmu meðallagi að stærð. Höfuð fremur svipgott, eyru oftast fínleg en eitt afkvæmanna er með krummanef. Hálsinn er mjúkur og reistur. Baklína góð og lendin yfirleitt jöfn. Samræmið er glæsilegt og einkennist af fótahæð, jöfnum bol og réttum hlutföllum. Fótagerð og réttleiki allgóður, sinaskil þó stundum lítil og framfætur snúnir. Hófar efnistraustir. Prúðleiki góður. Töltið er taktgott, skrefmikið og með hárri fótlyftu. Brokkið er takthreint og skrefmikið. Skeiðgeta ekki mikil, tvö afkvæmanna sýna ekki skeið, tvö rétt tæpa á skeiði en eitt skeiðar þokkalega. Stökkið er skrefmikið og yfirleitt rúmt. Fetið er misgott. Píla gefur þjál og samstarfsfús afkvæmi sem fara vel í reið með miklum fótaburði og góðri reisingu. Glæða frá Þjóðólfshaga 1 Hryssan í áttunda sæti er Glæða frá Þjóðólfshaga 1. Hún er undan Kjarna frá Þjóðólfshaga 1 og Glóð frá Hömluholti. Ræktendur og eigendur hennar eru Sigurður Sigurðarson og Sævar Haraldsson. Glæða er með 120 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn en hún á 10 afkvæmi og hafa 6 þeirra hlotið kynbótadóm. Dómsorð afkvæma: Glæða gefur hross yfir meðallagi að stærð. Höfuð er skarpt. Hálsinn reistur og yfirleitt hátt settur, með háum herðum og klipinni kverk. Bakið er burðarmikið og lendin öflug. Afkvæmin eru hlutfallarétt og sívalvaxin. Fótagerð og réttleiki er misgóður, stundum prýðilegur en stundum í meðallagi. Hófar efnistraustir. Prúðleiki slakur, með einni undantekningu þó. Töltið er taktgott, ferðmikið með góðum fótaburði. Brokkið er aðeins misjafnt en oftast takthreint með góðri skreflengd og fótaburði. Skeiðgeta breytileg, tvö afkvæmanna sýna ekki skeið en tvö þeirra eru vel vökur. Stökkið er taktgott með góðu skrefi og fótaburði. Fet oft skrefstutt. Glæða gefur viljug og þjál afkvæmi sem fara vel í reið með miklum fótaburði. Stilla frá Litlu-Brekku Hryssan í níunda sæti er Stilla frá Litlu- Brekku. Hún er undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Syrpu frá Ytri- Hofdölum. Ræktendur og eigendur hennar eru Jónína Garðarsdóttir og Vignir Sigurðsson. Stilla er með 119 stig í kynbóta- mati fyrir aðaleinkunn en hún á 11 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm. Dómsorð afkvæma: Stilla gefur hross undir meðallagi að stærð. Höfuð lýtalaust með beinni neflínu. Hálsinn er grannur, mjúkur og með háum herðum. Baklína góð og lendin öflug. Afkvæmin eru hlutfallarétt en fótahæð er misjöfn, tvö afkvæmanna eru fótalág. Fætur eru þurrir og sinar öflugar. Réttleiki góður, afturfætur þó stundum nágengir. Hófar efnistraustir og vel lagaðir. Prúðleiki breytilegur. Töltið er úrval, takthreint, rúmt, með miklu framgripi og góðri fótlyftu. Brokkið er takthreint. Skeiðgeta misjöfn, þrjú afkvæma Stillu eru ágætlega vökur. Stökkið er rúmt en stundum skortir svif á hægu stökki. Fet er takthreint en frekar skrefstutt. Stilla gefur viljug, þjál og samstarfsfús hross sem fara vel í reið með góðri reisingu og fallegum fótaburði. RML sendir ræktendum og eigendum þessara hryssna innilegar hamingjuóskir. Mikil vinna liggur að baki þessum mikla árangri sem er ómetanlegt fyrir ræktunarstarfið. Ef ræktendur tækju ekki þátt í kynbóta- sýningum hefðum við engan grunn til að byggja kynbótamatið á. Það er ekki víst að allir geri sér grein fyrir því hvað þetta sameiginlega starf við skýrsluhald og sýningarhald hefur mikið að segja fyrir hrossaræktina í heild sinni. Í því samhengi má ekki gleyma mikilvægi WorldFeng sem heldur utan um allar þessar upplýsingar. Umfjöllun um heiðursverðlaunahryssur í sætum tíu til tuttugu verða í næsta tölublaði Bændablaðsins. Halla Eygló Sveinsdóttir Elsa Albertsdóttir, ráðunautar í hrossarækt. Æsa frá Flekkudal. Mynd / Aðsend Stilla frá Litlu-Brekku. Mynd / Aðsend

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.