Bændablaðið - 09.02.2023, Qupperneq 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
Skógræktin óskar eftir að ráða starfsfólk í fullt starf við starfstöðvar
sínar í Hvammi Skorradal, Vaglaskógi, Hallormsstaðaskógi
og Tumastöðum Fljótshlíð. Leitað er að öugu fólki sem er tilbúið að
takast á við fjölbreytt störf við ræktun og umhirðu skóga.
Hlutverk og markmið:
• Þátttaka í skipulagi, framkvæmd, úttektum og skýrslugerð vegna
grisjunar- og gróðursetningarverkefna
• Ýmis störf við úrvinnslu á viðarafurðum
• Ýmis viðhaldsverkefni tengd vinnuvélum
• Á Tumastöðum er vinna við ræktunarstöð
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• Próf í skógtækni, skógfræði eða garðyrkju æskilegt
• Almenn tölvukunnátta
• Enskukunnátta æskileg
• Vinnuvélaréttindi æskileg
• Þekking á viðhaldi véla
• Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
• Metnaður, skipulag, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Starfsfólk í þjóðskógunum
Æskilegt er að umsækjandi geti hað störf sem fyrst
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um
starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr 70/1996.
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar nk.
Nánari upplýsingar um störn er að nna á Starfatorgi og á vef Skógræktarinnar, skogur.is/atvinna.
Markmið Skógræktarinnar er að stofnunin sé eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn, starfsfólki búin
góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun sem stuðli að starfsþróun og verðmæta-
sköpun innan Skógræktarinnar og alls skógræktargeirans.
Skógræktin hefur hlotið jafnlaunavottun, innleitt styttingu vinnuvikunnar og græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér
um-hvers- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, s.s. áætlanir um
áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku.
Viltu taka þátt í grænni framtíð?
NÁNAR Á
skogur.is/atvinna
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Viltu taka þátt í grænni framtíð - starfsfólk þjóðskógum BBL jan2023.pdf 1 10.1.2023 14:20:06
Landbúnaðarverðlaun
matvælaráðuneytisins
Matvælaráðherra veitir landbúnaðarverðlaun árlega í tengslum
við Búnaðarþing.
Úthlutunarnefnd á vegum matvælaráðuneytisins óskar eftir
tilnefningum um bændabýli, önnur landbúnaðarfyrirtæki
eða félög sem talin eru hafa verið á einhvern hátt til fyrir-
myndar í íslenskum landbúnaði á næstliðnu ári.
Stutt greinargerð skal fylgja með tilnefningum. Þar skulu
koma fram helstu upplýsingar um starfsemi tilnefndra ásamt
rökstuðningi fyrir tilnefningunni. Verðlaunahafar geta verið
allt að þrír og mun úthlutunarnefndin velja verðlaunahafa.
Við valið er litið til þátta eins og frumkvöðlastarfs, nýjunga
í starfsháttum eða annars árangurs sem getur verið öðrum
fyrirmynd í landbúnaði svo sem á sviði umhverfisstjórnunar,
loftslagsmála, ræktunarstarfs eða annarra þátta í starfseminni.
Tillögur skulu berast eigi síðar en 1. mars 2023, merktar
„Landbúnaðarverðlaun“ á netfangið mar@mar.is eða bréflega
til matvælaráðuneytisins, Borgartúni 26, 105 Reykjavík.
Ráðherra landbúnaðarmála veitti landbúnaðarverðlaun fyrst
1997 og þau hafa verið veitt flest ár síðan eða alls í 24 skipti.
Stjórnarráð Íslands
Matvælaráðuneytið
Fjöldi loftslagsaðgerða eru til
og sumar mælast betur fyrir en
aðrar. Kostir skógræktar sem
loftslagsaðgerð eru margir og fáir
deila um að tré bindi kolefni.
Áreiðanleiki
skógræktar er
mikill eins og sjá
má á ört vaxandi
skógum víða um
land. Vinsældir
skóga eru miklir
og sést það best
bæði í tilfelli
fólks sem sækir
í skógana til
útivistar og í tilfelli fjár sem sækir í
kraftmikinn munnbita af hlaðborði af
skógarbotninum. Kostir skógræktar
eru margir og má til að mynda vel
merkja það á skjólmyndun, jöfnum
vatnsbúskap og hreinsun lofts.
Löstur skógræktar felst einkum í
hæggengum vexti trjánna því það
getur útheimt óhemju þolinmæði
að bíða eftir að plöntur verði að
trjám. Sumum finnst meira að segja
aspir vaxa hægt. Það er enginn vafi
á að skógrækt er árangursrík aðgerð
við að binda ósýnilegt gaskennt
kolefni úr andrúmsloftinu og þar
með sporna gegn hlýnun jarðar.
Skógrækt er hagkvæm leið
og áreiðanlegri en flestar aðrar
í baráttunni við loftslags-
breytingarnar. Skógar eru ræktaðir
um víða veröld með það að
meginmarkmiði að binda kolefni.
Landeigendur eiga möguleika á að
nýta land sitt undir skógrækt og selja
ígildi kolefnisbindingarinnar með
svokölluðum kolefniseiningum.
Þessar einingar geta gengið kaupum
og sölum, ekki síst erlendis, þar sem
fjárfestar og fyrirtæki sjá bæði hag
sinn í að styðja við skógrækt en ekki
síður sem mótvægi við losun sem
verður til úr þeirra eigin rekstri.
Misáreiðanleg viðskiptakerfi
hafa verið við lýði síðustu árin
en að undanförnu hefur eftirspurn
eftir öryggi og gegnsæi á þessum
nýja markaði verið meiri. Það
virðist hafa verið auðvelt að villa
um fyrir fólki og það þarf ekki
endilega vera gert með ásetningi
heldur frekar ótraustu eftirliti.
Sem dæmi eru til þjóðir þar sem
stjórnleysi er ríkjandi og þá er til
lítils að fá loforð eins þjóðflokks
um varðveislu skógar á meðan
fólk úr öðrum þjóðflokki kemur
daginn eftir og heggur skóginn og
brennir. Stabílt stjórnkerfi þjóðar
er lykillinn að því að leikreglurnar
séu ekki brotnar yfir áratugaskeið.
Á Íslandi hefur löngum verið
góður jöfnuður, friður og réttlæti
á meðal fólks og á meðan svo er
er Ísland ákjósanlegt land fyrir
kolefnisbindingarverkefni. Traustið
felst ekki síður í áreiðan leika mælinga
en þær þurfa að vera unnar af fólki
með kunnáttu í skógmælingum.
Kunnáttumaður í skógmælingum
þarf bæði að geta lesið í skóginn og
ekki síður að þekkja þau tæki og tól
sem eru í boði hverju sinni.
Tæknin vinnur með okkur
og mun gera okkur kleift að ná
fleiri, nákvæmari og ódýrari
mælingum og þannig verður
betur hægt að bera saman gögn
og fylgjast með. Það þarf að ríkja
traust milli allra í ferlinu, alveg
frá úttekt þar til gögnin eru rýnd
af óháðu talnaglöggu fólki. Þetta
er grunnurinn að hugmyndinni
með vottanlegar rekjanlegar
kolefniseiningar.
Einhvers staðar segir að
það megi allt í viðskiptum; ef
einhver vill kaupa þá má selja.
Frægt er dæmið af Einari Ben
sem seldi norðurljósin forðum
daga. Einhverjir hafa meira að
segja tekjur af því enn þann dag
í dag og er það vel. Ef hægt er
að selja kolefni úr eldri skógum
er það ágætt frá viðskiptalegu
sjónarhorni en sé ætlunin að binda
meira kolefni en það sem náttúran
er hvort eð er að gera nú þegar, eins
og í tilfelli eldri skóga, þá þyrfti
skógræktin helzt að eiga sér stað á
lítt grónu landi þar sem vitað er að
inngrip mannsins mun skila meiri
bindingu en hefði ekkert verið
aðhafst. Þetta er ein ástæða þess að
staðlar miða við nýgróðursetningu
en ekki við eldri skóga. Staðlar í
kolefnisbindingu með skógi eru
misstrangir. Einn slíkur staðall
heitir Skógarkolefni og er í
umsjón Skógræktarinnar. Til að fá
að nota hann þarf að undirgangast
nokkur atriði sem tryggja gegnsæi
og traust vinnubrögð. Verið
er að þróa hugbúnað í síma af
nýsköpunarfyrirtækinu ORB en
reikna má með straumhvörfum í
skógmælingum þegar hægt verður
að nálgast hugbúnaðinn. Hægt er
að safna mjög góðum upplýsingum
með gervitunglum og LiDAR tækni
með drónum. Þetta er allt í stöðugri
þróun þessi misserin.
Hlynur Gauti Sigurðsson
sérfræðingur hjá BÍ.
Hvað er vottuð kolefniseining?
Greni vex hægt framan af en er líklega eftirsóttasti viðurinn sem ræktaður er
á Íslandi. Svo eru skógarnir oft skemmtilega drungalegir og viss tilbreyting
við mikla víðáttu sem víða einkennir Ísland.
Ösp er sú trjátegund sem hraðast
bindur kolefni. Þegar rýnt er í
árhringi hennar sést hvað vöxturinn
eykst ört á milli ára. Sentímetrinn
milli árhringja við börkinn hefur
bundið mun meiri rúmmálsvöxt en
einn árhringur nær að kjarna.
Hlynur Gauti
Sigurðsson.