Bændablaðið - 09.02.2023, Qupperneq 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
HAGKVÆM DEKK FYRIR
ALVÖRU KRÖFUR
Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðardekk skipta gæði,
ending og áreiðanleiki höfuðmáli.
Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur og
hafa reynst vel við krefjandi aðstæður.
Gerðu kröfur - hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 590 5280 og kynntu þér kosti Maxam dekkjanna.
Athygli vekur að engin hlutfallsleg
aukning varð á fjósum með fleiri
en einn mjaltaþjón og eru nú að
meðaltali 1,2 mjaltaþjónar á búum
landsins. Meðaltalið nú er heldur
minna en það var árið 2019 svo
nokkuð er ljóst að búin eru ekki að
stækka mikið umfram 1 mjaltaþjón
þessi misserin.
Meðalframleiðslan
327 þúsund lítrar
Þegar rætt er um mjaltaþjónabú
er oftast erlendis horft til þeirrar
framleiðslu sem sú tækni skilar af sér,
þ.e. afurðasemi hvers mjaltaþjóns.
Meðalinnlögn mjólkur frá hverjum
mjaltaþjóni var um 327 þúsund
lítrar á árinu og er það ekki langt frá
meðaltali fyrri ára.
Það sem vekur þó athygli er að
sumir kúabændur eru að ná góðum
árangri með sína mjaltaþjóna. Þannig
voru t.d. 19 kúabú að leggja inn meira
en 450.000 lítra að jafnaði á hvern
mjaltaþjón og þar af voru tvö bú að
leggja inn meira enn 500.000 lítra
frá hverjum mjaltaþjóni og það sem
lagði inn mest var með rúmlega
520.000 lítra.
Mikil ónýtt framleiðslugeta
Eins og undanfarin ár er ónýtt
framleiðslugeta mjaltaþjóna-
tækninnar hér á landi gríðarlega
mikil, þ.e. miðað við hámarks
nýtingu við íslenskar aðstæður. Má
þannig reikna út að með allri þeirri
fjárfestingu í þessari mjaltatækni,
sem kúabændur landsins hafa nú
þegar kostað til, væri hægt að sinna
allri innanlandsframleiðslunni og
raunar þónokkuð gott betur en það.
Hægt að gera enn betur
Það er dagljóst að mjaltaþjónatæknin
sem slík ræður við miklu meira magn
mjólkur, enda eru mjaltaþjónar
hannaðir til þess að ráða við rúmlega
3 tonn af mjólk á dag og því vel yfir 1
milljón lítra mjólkurframleiðslu á ári.
Nýtingin á Íslandi er því ekki nema
rétt um þriðjungur þess sem tæknin
ræður við í raun og veru.
Þetta skýrist af ýmsum þáttum
en þyngst vegur væntanlega slök
afkastageta kúakynsins auk þeirra
framleiðslutakmarkana sem íslensk
kúabú starfa við.
Í nánast öllum löndum sem
við berum okkur saman við hafa
þarlendir kúabændur aðgengi að mun
afkastameiri kúakynjum og starfa auk
þess við óheft framleiðsluumhverfi.
Erlend reynsla
Víða erlendis hefur þeim kúabændum,
sem ná einstökum árangri með
mjaltaþjóna sína, verið hampað
sérstaklega enda þessi kúabú oftar
en ekki mun hagkvæmari í rekstri en
önnur kúabú. Reynslan frá Danmörku
sýnir, þegar gögn um bú sem lögðu
inn að meðaltali 2.500 lítra á dag
eða meira eftir hvern mjaltaþjón
eru skoðuð, að þau eiga ýmislegt
sameiginlegt.
Þessi bú eru nánast undan-
tekningarlaust rekin af bæði miklum
metnaði og fagmennsku.
Þá er starfsfólk búanna oftar en
ekki mikið kúafólk, þ.e. einstaklingar
sem hafa einstaklega gott auga fyrir
ástandi gripa og bregðast hratt við
ef stefnir í óefni.
Án þess að greinarhöfundur
þekki til á öllum þeim kúabúum, sem
eru meðal þeirra afurðahæstu hér á
landi þegar horft er til afkastagetu
mjaltaþjóna, þá kæmi ekki á óvart
að sömu forsendur eigi við um þessi
bú og þau dönsku.
Byggt á gögnum frá Auðhumlu
og KS, sem fá þakkir fyrir.
það hentar, reiðhjól og rafskutlur,
almenningssamgöngur og
rafvæðingu við margs konar
framleiðslu eða þjónustu, í stað
notkunar jarðefnaeldsneytis.
Orkuskipti
Mikill meirihluti frumorkunotkunar
á Íslandi er með lítilli eða nánast
engri losun gróðurhúsagasa.
Samdráttur í losun þeirra
snýst því að verulegum hluta um
samgöngur og aðra starfsemi þar
sem jarðefnaeldsneyti á landi, sjó
og í lofti. Samanlagt er hægt að
styðjast við ársinnflutning á því
undanfarin ár (fyrir og eftir Covid-
19) til þess að meta full orkuskipti
fram til 2040 (núverandi stefna).
Þrepa þarf nær alveg niður
árlegan innflutning á ríflega
einni milljón tonna af olíuættuðu
eldsneyti. Í staðinn kemur orka úr
rafhlöðum og nokkrum tegundum
(raf)eldsneytis sem að mestu er
framleitt með raforku hér og/
eða erlendis. Þannig nást full
orkuskipti.
Fjölnýting
Brýnt má telja að nytja beri flestar
afurðir náttúruauðlindar á sem
skilvirkastan og sjálfbærastan hátt.
Ólíkir orkustraumar (t.d.
jarðvarmi eða sjávarstraumar) eða
ólík jarðefni (t.d. málmur eða leir)
geta nýst til fjölbreyttrar starfsemi
og hægt að gæta þess að sem minnst
fari til annars en orkuframleiðslu,
smíða eða annarra nytja, staðbundið
eða annars staðar. Einna augljósust
hérlendis er fjölnýting jarðvarma.
Auðlindagarður
Ef skipulagt er staðbundið
samstarf stofnana, orkufram-
leiðenda og atvinnufyrirtækja, með
fjölnýtingu auðlinda sem takmark,
er auðlindagarður til orðinn. Hann
getur verið rekinn sem heild eða
verið safn sjálfstæðra eininga.
Dæmigerður auðlindagarður
á Íslandi gæti verið með
jarðvarmaorkuveri sem framleiðir
raforku með ólíkum gerðum hverfla
og ólíku hitastigi jarðhitavökva,
sendir frá sér gufu og upphitað
ferskvatn í hitaveitu og iðnað og
býr til metan á bíla.
Í garðinum eru gróðurhús,
fiskeldi, þörungaræktun, vetnis- og
alkóhólframleiðsla og heilsurækt.
Gasi og volgu umframvatni er
dælt niður fyrir grunnvatnsflöt í
jarðhitakerfið.
Ari Trausti Guðmundsson,
jarðvísindamaður, rithöfundur
og fyrrum þingmaður.
Af jörðu erum við komin
Jarðvegslíf, jarðgerð og verðmætasköpun í lífrænni ræktun
- Málþing Fagráðs í lífrænum landbúnaði-
Fundarsalur: Vigdísarhús – Sólheimum í Grímsnesi / streymi
Fimmtudaginn 2. mars 2023 frá kl 10.00 -16.00
Fundarstjóri: Karvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri RML
10.00: Áburðarefni í lífrænum landbúnaði á Íslandi
Ingólfur Guðnason, brautarstjóri garðyrkjuframleiðslu við Garðyrkjuskólann á Reykjum / FSU
10.45: Landbætandi fiskeldi
Rúnar Þór Þórarinsson, nýsköpun og þróun hjá Landeldi ehf
11.20: Meðhöndlun og nýting lífrænna efna í áburð skv. nýrri áburðarreglugerð
Valgeir Bjarnason, fagsviðstjóri áburðarmála hjá Matvælastofnun
11.40: Kostnaðargreining áburðar í lífrænum vs hefðbundnum landbúnaði á Íslandi
(Main drivers of fertilizers costs in organic vs conventional farms in Iceland)
Vincent Merida, doktorsnemi við Umhverfis- og auðlindadeild Háskóla Íslands
12.00: HÁDEGISHLÉ
13.00: Hvers virði er heilbrigður jarðvegur ? Jarðgerð og vinnsla á lífrænum áburði - verðmætasköpun í kolefnisbúskap
(Production of organic fertilizers – Carbon farming)
Gerald Dunst, eigandi Sonnenerde í Austurríki, ráðgjafi og frumkvöðull
13.50: Gæðastaðall fyrir áburðarefni og jarðvegsbætir úr lífrænum efnum til lífrænnar ræktunar
Cornelis Aart Meijles, ráðunautur Loftslagsvænn landbúnaður - Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins
14.30 KAFFIHLÉ
15.00: Aðfangakeðja fyrir lífrænan landbúnað, veikleiki - styrkleiki ?
Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá Environice
15.15: Samantekt og umræður
Málþingi lokið kl 16.00