Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
VETRARFATNAÐUR
Vatnsheldir Skjold kuldagallar
úr öndunarefni
Vatnsheldir og fóðraðir,
microfiber hanskar
Sterkir og endingagóðir
öryggisskór
Gæða fatalína frá Skjold, fóðraðir og
vatnsþéttir gallar. Hafðu samband og kynntu
þér vöruúrvalið og þjónustuna!
isfell.is • sími 520 0500 ÞEKKING • ÞJÓNUSTA • GÆÐI
sp
ör
e
hf
.
— Lago Maggiore & Chamonix —
9. - 16. júní | Sumar 7
Fararstjóri: Unnur Jensdóttir
Það er ævintýri líkast að ferðast um Alpafjöll Ítalíu,
Frakklands og Sviss og ekki er síðra að dvelja við annað
stærsta vatn Ítalíu, Lago Maggiore, sem er umvafið
fjallafegurð. Við hefjum ferðina í ljúfa bænum Stresa en
seinni hluta ferðarinnar dveljum við í bænum Chamonix sem
stendur við rætur hæsta fjalls Vestur-Evrópu, Mont Blanc.
Verð: 319.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
kornrækt hvað sem það kostar t.d.
með auknu jarðræktarframlagi og
kynbótum sem eru jú góðu gjaldi
gefnar, en þær koma ekki í veg fyrir
afföll eins og hefur verið lýst hér
að framan. Það þarf að bæta öryggi
í ræktuninni t.d. með réttu vali á
landi, ekki nýta kornrækt sem lið í
endurræktun nema það henti vel til
þess og ekki nota sama akurinn nema
2–3 ár (hámark 3) til að minnka líkur á
illgresisvandamálum og sveppasmiti,
nema menn vilji fara að nota varnarefni
(eiturefni) í meira mæli við ræktunina
en nú er. Einnig kemur upp svokölluð
jarðvegsþreyta (jordtrætthed) eins og
þekkt er þar sem sama korntegund
er ræktuð í sama akri mörg ár í röð.
Við höfum ekki mikla möguleika á
sáðskiptum nema þá fyrir gras sem
getur hentað vel fyrir kúabændur
þ.e. rækta korn í 2–3 ár og svo gras
t.d. fjölært rýgresi eða vallarfoxgras
í 3–4 ár og svo í sama landi aftur
korn. Það verður ekki fyrr en búið er
að kynbæta hafrayrki sem geta náð
þroska víðar hér á landi en við bestu
aðstæður á Suðurlandi, sem mögulega
verður hægt að hafa sáðskipti milli
byggs og hafra. Búið er að kynbæta
byggyrki (Jónatan Hermannsson) sem
hægt er að ná þokkalegri uppskeru af
í flestum árum og einnig af erlendum
yrkjum sem í boði eru, ef rétt er staðið
að ræktuninni þ.e. um 4 tonnum af
hektara eða meira, því allt undir því
er lélegt og ekki ásættanlegt.
Miðað við verð hjá Bústólpa á
byggi til bænda sl. haust gæfu 4
tonn/ha ekki nema rétt liðlega fyrir
útlögðum kostnaði við ræktun,
þreskingu, þurrkun og flutning án tillits
til jarðræktarframlags. Til að viðskipti
geti átt sér stað með kornið þurfa
gæðin að verða betri og jafnari en nú
er. Þá þarf að bæta innviði eins og talað
er um, eins og t.d. við kornþurrkun
og geymslur fyrir það og tækjabúnað.
Gott ef fengjust fjárfestingarstyrkir
til þess, frekar en auka styrki við
ræktunina sjálfa. Ef á að auka við
jarðræktarframlag vegna kornræktar
og einnig flýta greiðslu þess jafnvel
til 15. júní, eins og kom fram í grein
í Bændablaðinu þann 15. des. 2022
eftir Helga Eyleif Þorvaldsson og sem
einnig hefur komið fram á fundum
með bændum sem starfshópur á
vegum matvælaráðherra hefur haldið
að undanförnu. Miðað við núverandi
reglur um greiðslur á framlögum til
jarðræktar, þarf úttekt að hafa farið
fram svo framlag sé greitt. Það getur
verið erfitt að ljúka úttekt á öllum
kornökrum fyrir 15. júní og þyrftu
þá fleiri skilyrði að koma til, t.d.
að bændur skiluðu inn reikningum
fyrir stærstu útgjaldaliðum eins og
t.d. fyrir kaupum á sáðkorni, áburði
og greiðslum til verktaka ef þeir
hafa verið fengnir til verksins. Verði
teknar upp greiðslur vegna þurrkunar
á korninu þá þarf það að uppfylla
einhver lágmarksgæði hvað varðar
kornfyllingu sem gæti verið þrepaskipt
miðað við þá nýtingu sem möguleg er
hjá fóðurblöndunarstöðvum.
Bændur þurfa svo að geta tryggt sig
fyrir óvæntum áföllum í kornræktinni,
t.d. vegna veðurfars, eins og kom fram
í viðtali við þá á síðum Bændablaðsins
í október 2022.
Guðmundur H. Gunnarsson,
jarðræktarfræðingur og
ráðgjafi í jarðrækt.
9. mynd. Rúmþyngd á byggkorni mótteknu af Bústólpa Akureyri haustið 2022.
7. mynd. Hitastig á Staðarhóli Aðaldal 16.–17. ágúst 2022.
8. mynd. Hitastig á Staðarhóli í Aðaldal 21.–22. ágúst 2022.