Bændablaðið - 09.02.2023, Page 52

Bændablaðið - 09.02.2023, Page 52
51Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023 TIMBUR EININGAHÚS Sími: 893 3022 einingar@einingar.is www.einingar.is   Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is Vertu vinur okkar á Facebook Sæti og varahlutir í - Lyftara - Vinnuvélar - Vörubíla - Báta SveitaSæla í Skagafirði LANDBÚNAÐARSÝNING & BÆNDAHÁTÍÐ REIÐHÖLLINNI SVAÐASTÖÐUM Á SAUÐÁRKRÓKI 19. ÁGÚST 2023 LANDBÚNAÐARSÝNING & BÆNDAHÁTÍÐLAUGARDAGINN 19. ÁGÚST 202323 SveitaSæla snýr aftur í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Véla- og fyrirtækjasýning, húsdýragarður og taumlaus gleði. Nánar auglýst síðar TAKIÐ DAGINN FRÁ! MARKAÐSSJÓÐUR SAUÐFJÁRAFURÐA Íslenskt lambakjöt auglýsir eftir umsóknum í sjóðinn fyrir 2023. Styrkhæf eru verkefni sem talin eru styrkja verðmætasköpun í matvöruhluta íslenskra sauðfjárafurða. Falli undir að teljast nýsköpun, vöruþróun, kynningar- eða markaðsstarf. Umsóknarfrestur er til og með 14.mars 2023. Umsóknareyðublöð og reglur sjóðsins fást hjá framkvæmdastjóra í netfanginu haflidi@icelandiclamb.is sjókvíaeldi á laxi sem íslenskt fyrirtæki hafði lagt upp með að stunda innar í Ísafjarðardjúpi varð ekki að veruleika. Við endurskoðun áhættumatsins var heimilaður hámarkslífmassi í eldi á frjóum laxi hér við land aukinn úr 71.000 tonnum í 106.500 tonn. Í áhættumatinu frá 2020 var m.a. gerð sú breyting að miðað við hámarkslífmassa en áður var miðað við framleiðslu við úthlutun eldisleyfa. Við breytinguna var framleiðslan reiknuð sem 80% af hámarkslífmassa (0,8:1) en var áður lögð að jöfnu (1:1). Við þessa breytingu jafngildir 71.000 tonna framleiðsla 88.750 tonna hámarkslífmassa eins og fram kemur í skýringum með áhættumatinu. Í raun er þetta hlutfall (1,3:1) hér á landi og í Noregi er það hærra (1,6:1) vegna betri sjávarskilyrða. Hámarkslífmassi m.v. 71.000 tonna framleiðslu hefði því átt að vera 55.000 tonn en ekki 88.750 tonn ef nota á þessa reiknibrellu til að ákvarða framleiðsluheimildir. Hvað næst? Áhættumat erfðablöndunar verður endurskoðað snemma á þessu ári og mikill þrýstingur hefur verið á að auka framleiðsluheimildir eða heimilaðan hámarkslífmassa. Áhættumatið þarf að auka hámarkslífmassa á Vestfjörðum um 13.000 tonn til að áform Arnarlax og Arctic Fish gangi eftir innan núverandi leyfisveitingarkerfis. Á Austfjörðum þarf að auka heimildir um 12.000 tonna hámarkslífmassa til að áform Fiskeldis Austfjarða gangi eftir. Erlendur hlutabréfamarkaður verðlagði á árinu 2021 hvert tonn af hámarkslífmassa að meðaltali á um 1,1 milljón króna og verðmæti þessara eldisleyfanna því um 27,5 milljarða króna (25.000 tonn x 1,1 milljón kr/tonn). Fjárhagslegu hagsmunirnir sem eru undir eru því gríðarlegir og krafan að auka eldið og arðinn enn frekar. Það eru ýmsar áskoranir við að auka hámarkslífmassa og stækka eldissvæði til eldis á frjóum laxi. Hér eru dregnar upp eftirfarandi sviðsmyndir er koma myndu við sögu: • Aukinn hámarkslífmassi: Hvaða reiknibrellur verða notaðar til að auka hámarkslífmassa? Verður veiðiám fjölgað í áhættumati erfðablöndunar á þann veg að það leiði til þess að hægt verði að auka hámarkslífmassa? • Fleiri eldissvæði: Ef Ísafjarðar- djúp verður opnað aftur fyrir eldi á frjóum laxi innan við Æðey, hvaða rök verða þá lögð til grundvallar fyrir þeirri ákvörðun eða fyrir því að opna það svæði ekki fyrir eldi á frjóum laxi verði það reyndin? • Mótvægisaðgerðir: Verður farin sú leið að grípa til mótvægisaðgerða s.s. að fjarlægja eldislax úr veiðiám? Ef sú leið verður farin, er þá hámarkslífmassi aukinn með vísun í þær mótvægisaðgerðir? Það er mikil andstaða við áhættumat erfðablöndunar, gagn- rýni sem er réttmæt og því e.t.v. skynsamlegast að gera enga breytingu á hámarki heimilaðs lífmassa við næstu endurskoðun. Varla er við því að búast að hámarkslífmassi verði skertur hjá fyrirtækjum á borð við Arnarlax sem ítrekað hafa staðið fyrir slysasleppingum. Það er verið að brjóta lög Á árunum 2018-2021 hafa átt sér stað níu tjón hjá Arnarlaxi og í átta tilfellum er um að ræða gat á netpoka. Arnarlax hefur aðeins í einu tilfelli tilkynnt um fjölda eldislaxa sem hafa sloppið. Endurteknar slysasleppingar hafa fengið að viðgangast hjá Arnarlaxi enda gerir áhættumat erfðablöndunar, sem stjórnarformaðurinn Kjartan Ólafsson ásamt öðrum fulltrúum í stefnumótunarhópnum lagði til, ekki ráð fyrir öðru. Stjórnvöld virðast vera að vakna til lífsins og ákveðin mál Arnarlax voru nýlega tekin til rannsóknar. Sú aðferðafræði sem áhættumat erfðablöndunar styðst við er að brjóta í bága við lög nr. 55/2012 um umhverfisábyrgð þar sem m.a. er kveðið á um að sá sem veldur mengun, láti taka til eftir sig og greiði kostnaðinn. Þessi lög ná einnig yfir laxfiska og erfðablöndun. Stjórnarformaður Arnarlax og jafnframt fulltrúi í opinberum stefnumótunarhópi hefur ítrekað fram að þessu ekki þurft að taka ábyrgð á sínum umhverfistjónum á sama tíma og móðurfélagið Salmar í Noregi þarf að greiða fyrir vöktun og fjarlægja eldislax úr veiðiám í tilfelli slysasleppinga. Að lokum Íslendingar standa að baki nágrannalöndum í umhverfismálum er varða laxeldi og það er gefin heimild í íslenskum lögum til þess að norskur eldislax fái að hrygna í veiðiám, a.m.k. upp að ákveðnu marki. Rétt er að geta þess hér að undirritaður hefur enga persónulega fjárhagslega hagsmuni að verja í því máli sem hér hefur verið til umfjöllunar, enda hvorki eigandi veiðiáa né sjókvíaeldisfyrirtækja. Höfundur þekkir þetta mál mjög vel og hreinlega ofbýður þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið. Framganga stjórnvalda vegna uppbyggingar eldis á laxi í sjókvíum vitnar um að þar hefur ráðið för sá mikli fjárhagslegi ávinningur sem fámennum hópi skyldi hlotnast á sama tíma og aðkallandi umhverfismál vegna sjókvíaeldisins voru sett til hliðar. Það er því full ástæða til að fara sér hægt í áframhaldandi leyfisveitingum þar til búið er að gera viðeigandi endurbætur á stjórnsýslunni. Valdimar Ingi Gunnarsson sjávarútvegsfræðingur. heldur hann áfram þar sem frá var horfið við að misskilja. Nú er það 34. gr. laga um afréttamálefni sem er misskilin, en lögfræðingurinn segir greinina vera um möguleg uslagjöld vegna ítrekaðs ágangs í girt lönd. Í raun er greinin um að eigandi búpenings sem gengur í engi, tún og garðlönd og veldur þar tjóni skuli greiða ábúanda bætur, án tillits til þess hvort þau séu girt eða ekki. Til að ábúandi fái bætur vegna ágangs í önnur lönd þurfi þau að vera girt. Þennan rétt landeigenda má rekja til réttarbótar Eiríks Magnússonar Noregskonungs, sem varð að lögum hér á landi árið 1294. Ef lögfræðingurinn hefði gefið sér tíma til að lesa álit umboðsmanns Alþingis, þá hefði hann séð þar m.a. eftirfarandi umfjöllun um 34. greinina: Af orðalagi greinarinnar og lögskýringargögnum verður ráðið að óheimill ágangur búfjár í engi, tún og garðlönd geti varðað fjáreiganda skaðabótum án tillits til þess hvort þau eru girt eða ekki. Ágangur í önnur lönd varðar hins vegar ekki skaðabótaskyldu samkvæmt greininni nema þau séu girt … Er þá litið svo á að réttmætt þyki að leggja með nokkrum hætti gæsluskyldu á eigendur og umráðamenn búpenings. (feitletrun höfundar). Eftir að hafa misskilið 34. greinina, um að lönd þurfi að vera girt til að ágangur geti verið bótaskyldur, yfirfærir lögfræðingurinn misskilninginn yfir á heimalönd, þ.e. að þau þurfi einnig að vera girt svo sveitarstjórnum eða lögreglu beri að smala þar ágangsfé. Segja má að þar með styttist verulega á milli misskilnings lögfræðingsins og ólaganna, sem samtökin samþykktu fyrir sitt leyti árið 2002, þ.e. að land skyldi vera girt, vottað og friðað í Stjórnartíðindum – annars væri enginn ágangur! Bæði girt og ógirt heimalönd ber að smala Í 4. gr. laga nr. 6/1986 um afrétta- málefni er löndum sem fjall- skilasamþykkt tekur til skipt í tvennt; í afrétti og heimalönd. Hvergi í lögunum er kveðið á um að land skuli vera girt til að teljast heimaland. Þá er ekki minnst á það stöku orði í 33. gr. sömu laga, sem er um skyldu sveitarstjórna að smala ágangsfé í heimalöndum, að slík lönd þurfi að vera girt svo sveitarstjórnum beri að láta smala þar ágangsfé. Réttur eigenda heimalanda til að leita til handhafa opinbers valds og fara fram á að þeir beiti þeim valdheimildum, sem lög nr. 6/1986 um afréttamálefni færa þeim, er án tillits til þess hvort viðkomandi land er girt eða ekki. Yfirvofandi matarþurrð! Lögfræðingurinn klykkir svo út með því að engin trygging sé fyrir því að matur verði til á Íslandi ef sumir kindaeigendur fái ekki að fóðra fé sitt í löndum nágranna sinna – sem hann kýs að kalla „úthaga“. Þessi rökleysa lögfræðingsins gæti verið svarið við því af hverju samtökin samþykktu fyrir sitt leyti árið 2002 að öll lönd, sem ekki væru girt, vottuð og auglýst friðuð í Stjórnartíðindum, væru kindahagi. Það var þá til þess að Íslendingar syltu ekki! Samtök eða heildarasamtök Að sjálfsögðu eiga samtök nautgripa-, hrossa-, skógar-, svína-, alifugla-, eggja-, garðyrkju-, sauðfjár-, geitfjár-, landeldis-, loðdýra- og svínabænda, að hafa þá grundvallarafstöðu til eignarréttar félagsmanna, og allra annarra, að hver og einn skuli í hvívetna virða eignarrétt hinna. Að þeir sauðfjáreigendur, sem hvorki gæta búfjár síns á sumrin, né vista það á afréttum utan byggðar, hafi náð að teyma samtökin út í það fúafen að þeir eigi, megi og þurfi að fóðra skepnur sínar í eignarlöndum annarra, svo Íslendingar drepist ekki úr hungri, sýnir að nýju samtökin okkar eiga langa leið fyrir höndum að verða heildarsamtök. Kristín Magnúsdóttir, lögfræðingur M.L. og félagi í Bændasamtökum Íslands. Í raun er greinin um að eigandi bú- penings sem gengur í engi, tún og garðlönd og veldur þar tjóni skuli greiða ábúanda bætur, án tillits til þess hvort þau séu girt eða ekki.“

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.