Bændablaðið - 09.02.2023, Síða 55

Bændablaðið - 09.02.2023, Síða 55
53Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023 Í haust skilaði umboðsmaður Alþingis afar athyglisverðu áliti varðandi skyldur sveitarfélaga til að smala ágangsfé. Mátti skoða álit hans sem viss straumhvörf gagnvart rétti sauðfjáreigenda til að beita lönd annarra eða öllu heldur réttleysi þeirra til þess. – Nú hefur dómsmálaráðu- neytið bætt um betur og tekið undir sjónarmið umboðsmanns varðandi túlkun laga sem lúta að lausagöngu búfjár. Þetta tvennt, sem nefnt er hér að ofan, gefur fyrirheit um að nú hilli loks undir að í hönd fari gjörbreyttir tímar varðandi landnotkun á Íslandi. Hér er um túlkun á eignarréttarákvæðum stjórnarskrárinnar að ræða og því ekki neitt smámál sem í hlut á. Eðlilega hafa orðið nokkrar umræður um málið á spjallþráðum á netinu og sýnist sitt hverjum. Það verður þó að teljast með miklum ólíkindum þegar yfirlögfræðingur Bændasamtakanna (ætli séu margir lögfræðingar á launaskrá hjá Bændasamtökunum?) reynir í síðasta Bændablaði að afvegaleiða umræðuna og verja núverandi framkvæmd, þ.e. að sauðfé geti lagt landið undir sig í 10–12 vikur á ári og haft um það frjálsa för eins og fuglinn fljúgandi. Frá mínum bæjardyrum séð er um grundvallarmál að ræða. Sjónarmiðið snýst einfaldlega um vernd eignarréttinda sem kveðið er á um í 1.mgr. 72 gr. stjórnarskrárinnar og beitingu heimilda löggjafans til almennra eignaskerðinga. Til að stjórnvöld geti beitt borgarana eignarskerðingu þarf yfirleitt að koma til eignarnáms að uppfylltum ákv. lagaskilyrðum en einnig geta komið til almennar eignarskerðingar sem leitt geta af settum lögum. Í báðum tilvikum þarf þó að vera til staðar skýr lagaheimild og skilgreind almenningsþörf. Hvorugt á við í þessu tilfelli. Í gegnum tíðina hef ég heyrt mörg rök sauðfjárbænda fyrir lausagöngu. En málið snýst ekki um hvort sauðfé hafi unnið sér hefðarrétt, ekki um að landið sé annars vannýtt, ekki um að gott sé að sauðfé bíti úthaga því að það stuðli að meiri kolefnisbindingu, ekki um hagkvæmni sauðfjárræktar, ekki um hvort landið haldist í byggð, ekki um hvort skógrækt sé óæskileg, ekki um hvort sauðfjárbeit í hallandi landi dragi úr líkum á skriðuföllum og örugglega ekki um að yfirlögfræðingur Bændasamtakanna telji að fæðuöryggi þjóðarinnar standi og falli með úthagabeit! Við lagasetningu á síðustu öld, voru aðstæður í landinu allt aðrar en nú er. Í sveitum landsins var fyrst og fremst stunduð kvikfjárrækt og sauðfé á nær öllum bæjum og hagsmunir einstakra landeigenda því harla líkir. Sameiginleg sumarbeit og sameiginlegar göngur þóttu eðlilegar og hagkvæmar. Lítið reyndi á aðra tekjuaflandi landnotkun utan túnræktar, svo sem til skotveiða, ferða á fjöll með ferðamenn, virkjanir, skógrækt, beit stórgripa og nýtingu lands undir byggð óháða hefðbundnum búskap. Menn voru lítið að hugsa um annað en vænleika fjárins af fjalli og hugtök eins og stjórnarskrárvarin réttindi mönnum lítt hugleikin. Það stóð reyndar í boðorðunum að ekki mætti stela en það var nú aðallega til helgidagabrúks að veifa slíku. En nú eru allar aðstæður verulega breyttar. Þó stjórnvöld hafi ekki þekkt sinn vitjunartíma, fyrr en e.t.v. nú í kjölfar álits umboðsmanns, þá er því miður ekki sjálfgefið að réttlætið nái fram að ganga vandræðalaust. Hætt er við að fram undan séu kærumál og í framhaldinu dómsmál sem að endingu enda mögulega fyrir Mannréttindadómstólnum í Strassborg sem getur ekki annað en fallist á sömu rök og álit umboðsmanns byggir á. Hætt er við að meðan stjórnvöld ganga ekki fram fyrir skjöldu og taka af öll tvímæli um bann við lausagöngu búfjár, hangi sauðfjárbændur eins og hundur á roði og þrjóskist við að horfast í augu við breytta framtíð. Sú breytta framtíð getur aðeins verið á þann veg að ef ekki liggja fyrir samningar allra hlutaðeigandi landeigenda um sameiginlega sumarbeit á landi sem hefur náttúrulegar varnir, þá verður sauðfjárbúskapur ekki stundaður nema innan girðinga á landi sem sauðfjárhaldarar hafa yfir að ráða. Þetta er hinn blákaldi veruleiki málsins, sársaukafullur sem hann kann að reynast einstökum bændum. Stefán Tryggva- og Sigríðarson, yfirmaður sjálfs sín. Alhliða fasteignasala Kynslóða- / eigendaskipti bújarða Stofnun og skráning landspildna og lóða Loftur Erlingsson Löggiltur fasteignasali GSM 896-9565 loftur@husfasteign.is Hús Fasteignasala · Austurvegi 26 · 800 Selfoss Sími: 497 1155 · www.husfasteign.is Varahlu�r í Bobcat www.bkhonnun.is - sala@bkhonnun.is - Sími 571-3535 BJÁLKAHÚS - GARÐHÚS Bjóðum fjölmargar gerðir garðhúsa. Þök, skýli, lítil og stór bjálkahús. Pallaefni, girðingar og sauna tunnur. Mjög góð verð og stuttan afhendingartíma. Nú fyrst fer að þrengja að sauðfjárbændum Stefán Tryggva- og Sigríðarson. Spunanámskeið Ullarselið á Hvanneyri heldur spunanámskeið á Hvanneyri 25. og 26. febrúar n.k. kl. 13 – 17 báða dagana. Verð 15.000.- Innifalið er kennsla og ull sem er unnin á staðnum. Eftir námskeiðið ættu þátttakendur að vera sjálfbjarga við að spinna ull í band. Skráningar og nánari upplýsingar í s. 859-0259 eða á netfanginu ull@ull.is. Síðustu vikur hefur verið tekist á um fyrirkomulag við úthlutun tollkvóta fyrir búvörur. Félag atvinnurekenda hefur farið mikinn í þeirri umræðu og fullyrt að aðrar úthlutunaraðferðir, einkum auðvitað ókeypis úthlutun, myndu skila sér í lækkuðu verði til neytenda. En er það svo að núverandi fyrirkomulag á útboði toll- kvóta fyrir búvörur hækki verð þeirra til neytenda? Einföld hag- fræði segir okkur að svarið er afdráttarlaust nei. Af hverju? Örlítil markaðshagfræði Ástæðan er sú að í grundvallaratriðum ræðst verð á markaði af eftirspurn neytenda og framboðnu magni. Magn tollkvóta er fast. Því breytist framboð viðkomandi búvara ekki hvernig svo sem tollkvótunum er deilt út til innflytjenda, að því gefnu að þeir séu nýttir að fullu. Þessa tiltölulega einföldu staðreynd má leiða út með hjálp eftirspurnar- og framboðsfalla úr markaðsfræðinni, sjá meðfylgjandi mynd.Myndin lýsir markaði fyrir einhverja búvöru. Hún sýnir annars vegar eftirspurnarfall neytenda eftir viðkomandi vöru og hins vegar framboðið sem samanstendur af innfluttu magni samkvæmt tollkvótum að viðbættu framboði innlendra framleiðenda. Magnið samkvæmt tollkvótum er fast. Innlenda framboðið vex með hækkandi markaðsverði. Markaðsverðið sem neytendur þurfa að greiða myndast þar sem eftirspurnin er jöfn framboðinu. Í myndinni gerist það við verðið p*. Myndin sýnir glögglega að markaðsverðið haggast ekki hversu hátt verð innflytjendur greiða fyrir tollkvóta eða hvernig þeim er yfirleitt úthlutað svo framarlega sem viðkomandi magn er flutt inn. Gróði innflytjenda af því að nýta tollkvóta ræðst hins vegar algerlega af því hvað þeir þurfa að greiða fyrir hann. Hann getur verið mjög mikill ef þeir fá tollkvótann ókeypis. Hann verður lítill sem enginn ef þeir þurfa að kaupa hann fullu verði á samkeppnismarkaði. Mismunurinn rennur til seljanda tollkvótans, þ.e. ríkissjóðs, og þannig óbeint til skattgreiðenda/neytenda. En dregur núverandi fyrirkomulag á útboði tollkvóta fyrir búvörur úr samkeppni við innlenda búvöruframleiðslu? Aftur er svarið nei. Samkeppni innfluttra búvara samkvæmt tollkvótum við innlenda framleiðslu felst einvörðungu í stærð (magni) tollkvótanna. Það er innflutta magnið samkvæmt tollkvótum sem skapar samkeppni við innlenda framleiðendur og ræður því hversu mikið markaðsverðið á viðkomandi búvöru lækkar. Hversu mikið innflytjendur greiða fyrir tollkvótana og hvernig það verð er ákvarðað breytir engu um þessa samkeppni svo framarlega sem verðið er ekki svo hátt að tollkvótinn sé ekki nýttur til fullnustu. Hitt er síðan annað mál, sem þó er rétt að hafa huga, að vel framkvæmt útboð á tollkvótum eykur samkeppni um þá og auðveldar aðgang nýrra innflytjenda. Hvort tveggja ýtir undir að hagkvæmustu innflytjendur hverju sinni annist þennan innflutning sem er í samræmi við þjóðarhag. Niðurstaða greiningar Niðurstaðan er því sú að fyrir- komulagið sem valið er við úthlutun tollkvóta hefur engin áhrif á marksverð vörunnar en stýrir fyrst og fremst því hverjum ávinningurinn fellur í skaut. Útboð kvótanna tryggir að samfélagið (ríkissjóður) fá hluta hans í sinn hlut. Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur hjá MS. Tollkvótar og vöruverð til neytenda Erna Bjarnadóttir.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.