Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 56
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
Í lok síðasta árs bárust Brimborg
fyrstu eintökin af nýrri gerð Ford
Bronco – bílategund sem risið
hefur upp frá dauðum eftir að
hafa verið burtkölluð árið 1996.
Þessir bílar eru útspil Ford til
höfuðs Jeep Wrangler, sem um árabil
hefur verið eini hrái torfærujeppinn
á markaðnum. Broncoinn sem
Bændablaðið fékk til prufu var
af gerðinni Wildtrak, sem er á 35
tommu dekkjum og með 330 hestafla
bensínvél.
Að utan sést að hönnunardeildin
hefur haft fyrstu kynslóð Bronco, sem
framleidd var á árunum 1966-77, til
hliðsjónar. Hringlaga aðalljósin, langt
húddið og kassalaga formið vekja
hjá áhorfanda hugsanir um gamla
tíma. Hlutföllin eru sambærileg og
á forveranum, en hér er um stærri
bíl að ræða með fernar dyr, í stað
tvennra. Þrátt fyrir að bíllinn í þessum
prufuakstri hafi verið í hversdagslegum
gráum lit var greinilegt að útlitið vakti
mikla athygli hvert sem farið var.
Lúxus í lágmarki
Þegar prílað er um borð sést að Ford
Bronco er engin lúxuskerra, því fyrir
utan leðrið á sætum og stýri er allt
meira og minna úr hörðu plasti og
gúmmíi – eins og á atvinnubílum.
Smekkleg hönnunin og vönduð
samsetningin vegur þó upp á móti
stífum efnunum og er útkoman í
heildina góð. Þemað er beinar línur
og rétt horn.
Úti á þjóðvegum fæst endanlega
staðfest að munaður hefur ekki verið
í forgangi við útfærsluna á Bronco.
Mikið veg- og vindhljóð gerir það
að verkum að bílstjóri og farþegi
þurfa að hækka róminn til að eiga í
samræðum. Þakið er útbúið þannig að
auðvelt er að taka það af, sem útskýrir
litla hljóðeinangrun samanborið við
hefðbundnari bíla. Að því sögðu má
reikna með að kaupendur þessa jeppa
séu tilbúnir til að lifa með þessum
vanköntum, því Bronco skarar fram
úr sem torfærujeppi.
Í sérflokki á vegleysum
Þegar ekið er út fyrir malbikið er
bíllinn kominn á sinn heimavöll. Stór
dekkin og mikil veghæð gerir akstur
yfir vegleysur áhyggjulausan.
Margar akstursstillingar eru í boði
og er fljótgert að skipta úr afturdrif
í fjórhjóladrif þegar færðin spillist.
Þegar drifið er á öllum hjólum er
valkvætt að hafa læstan millikassa
og því er engum lipurleika fórnað
fyrir betra grip. Um leið og smellt
er í lága drifið birtist skýr mynd á
stórum margmiðlunarskjánum í miðju
mælaborðsins sem sýnir það sem er
beint fyrir framan bílinn. Þetta er
mikill kostur þar sem hátt og langt
húddið skyggir annars útsýnið.
Í torfærum er gott að virkja „eins
fetils akstur“. Þegar bíllinn er í drive
hreyfist hann ekki fyrr en ýtt er á
inngjöfina – og rétt lötrar hann þá
áfram. Um leið og bensíngjöfinni
er sleppt staðnæmist bíllinn – svona
eins og þegar gleymist að taka bíl
úr handbremsu. Þessi eiginleiki er
góður þegar klöngrast er yfir grjót og
varasamt yfirborð því ökumaðurinn fær
fullkomna stjórn á aksturshraðanum.
Bronco blómstrar í ófærð og snjó.
Heilsársdekkin undir bílnum ná góðu
gripi og er hægt að aka með miklu
sjálfsöryggi þó svo að vegurinn
sé háll. Í mjúkri fönn líður bíllinn
áfram og er hægt að njóta ferðarinnar
áhyggjulaust. Örlítið tækifæri gafst
til að reyna bílinn í raunverulegri
ófærð og sást að hann hefur allt sem
þarf til að brjótast í gegnum dýpstu
skafla – enda útbúinn driflæsingum
á báðum öxlum.
Alveg praktískur líka
Hvað hinum praktísku hliðum líður
þá er gott rými í öllum fimm sætum
bílsins – jafnvel fyrir hávöxnustu
farþega. Farangursrýmið er 1.019
lítrar að stærð og formað þannig
að góð nýting fáist. Afturhlerinn er
tvískiptur og opnast vel.
Margmiðlunarskjárinn er 12
tommu stór og einn af þeim bestu sem
í boði eru. Fljótlegt er að tengja símann
þráðlaust með Apple CarPlay eða
Android Auto og er auðvelt að ráða sig
fram úr hinum og þessum stillingum.
Valmyndin er yfirleitt tvískipt og
er því hægt að sjá bæði útvarpið og
akstursstillingar í einu. Blessunarlega
er öllu því sem viðkemur miðstöð
stjórnað með hnöppum.
Ford Bronco er alfarið bensínbíll.
Enginn möguleiki er að fá hann sem
tvinnbíl – hvað þá sem rafmagnsbíl.
Kaupendur bílsins mega því búast
við háum rekstrarkostnaði, því við
bestu aðstæður er eldsneytiseyðslan
14 lítrar á hundrað kílómetra. Í þessum
prufuakstri var meðaltalið nálægt 19
lítrum, enda ekki ekinn sparakstur og
bíllinn í fjórhjóladrifinu mest allan
tímann. Vegna mikils útblásturs á
hvern kílómetra er hann annars vegar í
hæsta vörugjaldaflokknum, sem skýrir
hátt kaupverðið, og hins vegar verða
bifreiðagjöldin með hæsta móti.
Tölur
Ford Bronco Wildtrack kostar
21.360.000 krónur m.vsk. Helstu
mál eru: lengd 4.811 mm; breidd
m. speglum 2.014 mm; hæð
1.913; veghæð 279 mm; vaðdýpt
924. Eiginþyngd er 2.252 kg og
heildarþyngd er 2.785 kg. Vélin er
fjögurra strokka 2,7 lítra EcoBoost
bensínvél með 330 hestöflum og 557
Nm tog.
Í stuttu máli
Ef þig vantar bráðskemmtilegt
leikfang og átt rúmar tuttugu
kúlur á lausu – þá er Ford Bronco
Wildtrak afburðaskepna. Sé leitað
að praktískum lúxusjeppa er rétt að
horfa annað.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Ford Bronco Wildtrak er einn flottast jeppinn á markaðinum í dag. Úr verksmiðjunni kemur hann á 35 tommu dekkjum og vekur sterkt útlitið athygli hvert
sem ekið er. Allt hefur verið lagt í að útbúa eins gott torfærutæki og kostur er á – en lúxusinn hefur borið skarðan hlut á móti. Myndir / ÁL
Beinar línur og rétt horn er þemað í innréttingunni. Stór
margmiðlunarskjárinn sýnir skýra mynd af því sem fram undan
er þegar sett er í lága drifið.
Ferköntuð hönnunin minnir á jeppa frá gamalli tíð. Ólíkt því sem allir eldri Broncoar áttu
sammerkt, þá er þessi með fernar dyr í stað tvennra.
Aftursætin rúma ágætlega fullorðið fólk.
Hægt er að taka þakið af öllum Ford Bronco. Hér sést einn slíkur í Raptor útgáfu, en
þeir bílar eru á 37 tommu dekkjum.
Nóg pláss fyrir farangur í skottinu. 1.019 lítrar.
– Ford Bronco endurfæddur