Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 20.05.1996, Síða 15
samtök eins og okkar sterk að þau geti látið til sín taka hvar sem er, því að
nánast allar athafnir stjórnvalda hafa með einum eða öðrum hætti áhrif á kjör
félagsmannanna.
Góðir þingfulltrúar og gestir, hér er mikið verk að vinna.
Þið hafið í gögnurn ykkar all miklum efniviði úr að moða í þeim efnum, af
tillögum og ýmiskonar álitaefnum. Fjöldi félaga okkar hefur í allan sl. vetur, þar
á meðal ýmis ykkar, skilað miklu og góðu starfi og unnið þau gögn sem nú
liggja fyrir þinginu til umræðu og afgreiðslu.
Verkefnin sem fjallað hefur verið um eru einmitt þau sem félagar okkar hafa
talið að helst þyrfti að taka afstöðu til og móta á næstu árum, svo að gagnast
megi verkafólki til framtíðar. Unnið hefur verið út frá því sjónarmiði að með
skýrri afstöðu þingsins verði mörkuð stefna um sem flesta þessarra málaflokka,
sem eru hver öðrum tengdir og mynda þannig eina heild í stofn að stefnuskrá
samtakanna fyrir næsta kjörtímabil. Stofn sem væri uppistaðan í þeirri efnahags-
velferðar og menningarstefnu sem við vildum sjá þróast hér á næstu árum og
þess samfélags jafnaðar og velferðar sem ekki væri lakara en það sem gerist best
í grannlöndum okkar. Um það vænti ég að okkur takist að sameinast hér.
En við ætlum einnig að fjalla um okkar innri mál, þ.e. skipulagsmál samtaka
okkar og samskiptamál inná við.Við þurfum að gefa okkur tíma til slíkrar um-
fjöllunar til þess að svara sem best þörfum félaga okkar. Þannig að samtökin öll;
einstök félög, landssambönd og heildarsamtökin geti sem best þjónað hlutverki
sínu.
En við höfum hér líka því miður alvarlegan aðsteðjandi bráðavanda við að
etja, í formi mjög storkandi hótana stjórnvalda um einhliða breytingar vald-
stjórnarinnar á því starfsumhverfi sem verkalýðshreyfingunni og launafólki er
ætlað að búa við í framtíðinni. Breytingar sem munu torvelda mjög alla eðlilega
og æskilega þróun í samskiptaháttum samningsaðila vinnumarkaðarins. Breyt-
ingar sem munu setja næstu kjarasamningagerð í uppnám. Eg á von á því að
þetta þing svari þessum hótunum fullum hálsi.
Þingi þessu hefur að mínu viti verið búið hér mjög gott starfsumhverfi og að-
staða öll. Ég vil færa öllum þeim sem að því hafa staðið okkar bestu þakkir. Það
eru Lions-menn hér í Kópavogi sem borið hafa hitan og þungan af því starfi og
ætla einnig að sjá um að okkur skorti ekkert meðan á þinginu stendur. En ég vil
heldur ekki gleyma framlagi okkar frábæra starfsfólks sem lagt hefur nótt við
dag á undanförnum vikum við undirbúning þingsins bæði félagslega með ýms-
um kjörnum starfshópum, en einnig tæknilega á fjölmargan hátt. Fyrir þetta færi
ég öllu þessu fólki okkar bestu sameiginlegu þakkir.
Ég held að öll aðstaða hafi verið sköpuð hér til þess að þingið geti orðið ár-
angursríkt. Við erum jú þingfulltrúar fyrir nær 70 þúsund félaga okkar. En við
höfum ekki nema fimm daga til þess að leysa þau verkefni sem fyrir okkur
liggja. Það er því mikilvægt að við vinnum bæði hratt, vel og skipulega. Við get-
um, trúi ég, með skipulögðu samstilltu átaki náð þeim árangir sem félagar okk-
13