Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 20.05.1996, Page 26
þessara samtaka sem að öðru leyti hefur verið lítið síðustu misseri. Við hljótum að
spyrja okkur að því í framhaldinu hvort ekki sé nauðsynlegt að þessi samtök taki
upp opinskáa umræðu um áherslur sínar og framtíðarsýn með það að markmiði að
þau móti sér sameiginlega stefnu og treysti samstarf sitt á ýmsum sviðum eins og
kostur er eða jafnvel sameinist. Það eru þegar ýmis verkefni sem eðlilegt er að
náið samstarf takist um. Þar nægir að nefna þátttöku í starfi alþjóðlegrar verka-
lýðshreyfingar og á ýmsum vettvangi í Evrópu sem verður stöðugt umfangsmeira
og mikilvægara fyrir launafólk hér á landi. Ljóst er að mikil og erfið verkefni bíða
í samskiptunum við stjórnvöld og atvinnurekendur á næstu misserum. Mótun
launastefnu sem markvisst treystir kjör þeirra hópa í samfélaginu sem hafa lægstu
tekjumar og minnsta starfsöryggið er sameiginlegt verkefni allrar launamanna-
hreyfingarinnar. Þá er mikilvægt að samtök launafólks komi í veg fyrir að þróun
á vinnumarkaði og breytingar á rekstararformi fyrirtækja leiði til innbyrðis átaka
og sundurlyndis sem veikir stöðu okkar. Sundrung og sundurþykkja innan verka-
lýðshreyfingarinnar gagnast engum nema andstæðingum okkar. Og þá mest þeg-
ar einstaka hópar eru að kljúfa sig út úr stærri heildum til að reyna að bæta eigin
stöðu á kostnað annarra eins og nokkuð hefur verið um á síðustu árum.
Framtíðarsýn
Okkar bíða fjölmörg verkefni við að treysta undirstöður samtakanna og búa þau
undir þau erfiðu verkefni sem framundan em. Ekki síst á sviði atvinnu- og kjara-
málanna. Hagsmunir verkalýðshreyfingarinnar og launafólks til framtíðar byggja
á því að við sýnum þor til að takast á við þessi verkefni af stórhug og höfum dug
til að leiða þau til farsællar niðurstöðu. I þeirri baráttu megum við aldrei gleyma
þeim gmnni sem verkalýðshreyfingin hvílir á og hvert hún sækir líf sitt og styrk.
Það er til félagmanna sjálfra, þeirra tugþúsunda launamanna, karla og kvenna,
sem samfélag okkar byggir á og við gemm nú kröfur til að njóti árangurs erfiðis
síns.
Skilaboðin frá þessu þingi stærstu og öflugustu samtaka launafólks eiga að
vera einföld og skýr. Við skulum láta alla vita, atvinnurekendur, stjómvöld og ekki
síst okkar eigin félaga, að krafa verkalýðshreyfingarinnar er að samfélag okkar
byggi á jöfnuði og lýðræðislegum réttindum launafólks. A næstu ámm verður að
reisa hér samfélag sem stendur í engu að baki þeim löndum sem við viljum bera
okkur saman við: Samfélag sem tryggir verkafólki góð launakjör, trygg réttindi og
ömgga afkomu. I næstu kjarasamningum verður að stíga ákveðið skref í þessa átt
um leið og hrundið verður hverjum þeim árásum sem stjórnvöld kunna að gera á
samtök launafólks og réttindi okkar til að semja um kaup og kjör í frjálsum samn-
ingum.
Avörp gesta
Fyrstur talaði Ögmundur Jónasson formaður BSRB. Ögmundur ræddi árásir
24