Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 20.05.1996, Side 118

Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 20.05.1996, Side 118
og virk þátttaka stéttarfélaga mun hafa mikið að segja um að breyta áformum í vel heppnaða starfsemi. Verkalýðshreyfingin verður að taka enn ríkari þátt í framkvæmd starfsmenntunar með því að starfrækja starfsmenntaskóla í tengsl- um við MFA, hvetja til öflugs starfs á vegum fræðslumiðstöðva starfsgreina ásamt því að stuðla að virkri þátttöku starfsgreina í starfsmenntun. Ríkisvaldið þarf að leggja fram miklu meira fé en það gerir nú samkvæmt lögunum um starfsmenntun í atvinnulífinu. Fyrirtæki verða að koma inn í þessa starfsemi af fullum krafti með fjármagni, samstarfi við stéttarfélögin um skipu- lag, undirbúning og framkvæmd og gera starfsfólki sínu auðvelt að taka þátt í starfsmenntun m.a. í vinnutíma. Fyrirtækin þurfa að vera burðarás í fjármögnun starfsmenntunar í atvinnulífinu. Stéttarfélögin verða enn að herða róður sinn í starfsmenntun enda er takmarkið starfsmenntað launafólk. Starfsmenntun í skólakerfinu verður því aðeins öflug að stéttarfélögin leggi verulega vinnu af mörkum við skipulagningu, framkvæmd og stjórnun þessa framfaramáls. Stéttarfélögin búa yfir mikilli þekkingu um störf og starfsgreinar. Þessa þekkingu verður að flytja inn í skólana. Gífurleg vinna er framundan vegna undirbúnings fyrir starfmenntun í skólum. Afar miklir hagsmunir eru í húfi. Eins og önnur menntun er starfsmenntun ráðandi um velfamað og kjör launafólks. Atvinnulífið nær ekki að dafna nema í krafti menntunar og þekking- ar. Fararnesti atvinnuveganna í samkeppni á alþjóðavettvangi er þekking og hæfni starfsfólksins. • Mikilvægt er að verkalýðshreyfingin vinni ötullega að setningu markmiða, skipulagi, framkvæmd og stjórnun starfsmenntunar í atvinnulífinu. Hags- munir launafólks eru leiðarljósið. Mestir hagsmunir eru hjá þeim sem minnst hafa borið úr býtum í grunn- og framhaldsskólum. • Verkalýðshreyfingin mun beita sér fyrir auknu framboði á starfsmenntun ásamt því að möguleikar launafólks til að stunda námið fylgi eftir. Mun meira fjármagni þarf að veita til starfsmenntunar meðal launafólks. Það verður að koma frá ríkisvaldi og fyrirtækjum. I kjarasamningum verður að tryggja fjármagn til starfsmenntunar þar sem lögð verði áhersla á málefni starfshópa er ekki hafa slík ákvæði í samningum sínum. • Verkalýðshreyfingin verður að beita sér fyrir stöðugu fræðslustarfi fyrir at- vinnulaust fólk. Starfsmenntun getur verið lausn fyrir atvinnulausa og því verður að tryggja þeim óhindraðan aðgang að námi við hæfi. Taka verður til- lit til þess að almennt nám, starfsmenntun og nám í list- og menningargrein- um verður oft að fara saman svo að námið verði aðgengilegt í augum at- vinnulausra. • Með sérstökum starfsmenntaskóla í tengslum við MFA vill verkalýðshreyf- ingin auka þjónustu sína verulega við launafólk. Slíkur starfsmenntaskóli þarf jöfnum höndum að veita stéttarfélögum ráð um starfsmenntun fyrir launafólk, skipuleggja og hrinda starfsmenntun í framkvæmd og taka þátt í samstarfi á sviði starfsmenntunar fyrir launafólk. 116
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178

x

Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ...

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ...
https://timarit.is/publication/1793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.