Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 20.05.1996, Page 129
skýrri verkaskiptingu milli þeirra, landssambandanna og verkalýðsfélaganna.
38. þing ASÍ telur að þegar í næstu kjarasamningum verði að stíga ákveðið
skref í þá átt að bæta kjör launafólks hér á landi til samræmis við það sem
gerist í nágrannalöndunum með beinum taxtahækkunum. Vinnumarkaðurinn í
Evrópu hefur verið opnaður með samningunum um EES og því er það bæði
nauðsynlegt og eðlilegt að kjör almenns launafólks hér á landi verði sambæri-
leg við það sem best þekkist í öðrum ríkjum á evrópska efnahagssvæðinu.
Tryggja verður í næstu kjarasamningum með öllum tiltækum ráðum að staða
láglaunafólks verði bætt. Megináhersla á að vera á jöfnun kjara, þar sem kaup-
máttur þeirra tekjulægri verði aukin verulega umfram aðra. 38. þing ASI telur
að krónutöluhækkun launa, með sérstakri hækkun fyrir þá tekjulægri, sé sú
fyrirmynd sem nota eigi í framtíðinni. Til þess að búa verkalýðshreyfinguna bet-
ur undir komandi kjarasamninga felur þingið miðstjórn að gera úttekt á lág-
marks framfærslukostnaði á landinu og niðurstaða þeirrar úttektar verði lögð til
grundvallar í kröfugerð í komandi kjarasamningum. Jafnframt verður að tryggja
að forsendur samninganna séu með þeim hætti, að hægt verði að segja þeim upp
ef markmið þeirra standast ekki.
III. 2. Réttindamál launafólks
Grundvallarréttindi launafólks hér á landi eru um margt ófullnægjandi. A þessu
sviði eru reglur á íslenskum vinnumarkaði til muna lakari en í þeim löndum sem
við viljum helst bera okkur saman við. Afleiðingin er sú að réttarstaða og öryggi
launafólks er óviðunandi samtímis því sem réttur og möguleikar atvinnurekenda
til að ráðskast með starfsmenn sína og hagsmuni þeirra er allt of mikill. Þrátt
fyrir þá staðreynd sem hér er bent á hefur verkalýðshreyfingin á undanförnum
árum þurft að verja stöðugt meiri tíma og kröftum til að standa á móti og hrinda
árásum atvinnurekenda og ríkisvalds á lög- og samningsbundin réttindi. Þar eru
alvarlegust brot atvinnurekenda sem framin eru í skjóli samdráttar og ótta launa-
fólks við vaxandi atvinnuleysi.
Alþýðusambandið leggur áherslu á að í starfi verkalýðshreyfingarinnar verði
á næstu árum lögð áhersla á að bæta til muna réttarstöðu launafólks á íslenskum
vinnumarkaði.
• Forgangsverkefni ASÍ næstu missiri er að bæta starfsöryggi launafólks í
landinu þannig að það búi við starfsöryggi sem er sambærilegt við það sem
gerist á hinum Norðurlöndunum:
• Tryggja verður öllum hópum launafólks, þ.á.m. fiskvinnslufólki og sjó-
mönnum, lágmarksuppsagnarfrest.
• Gera verður kröfu til atvinnurekenda um að þeir gefi upp ástæður upp-
sagnar segi þeir starfsmanni upp störfum. Jafnframt verði tryggt að at-
vinnurekandi geti ekki notað uppsagnir að ástæðulausu eða til að skjóta
sér undan umsömdum skyldum sínum, skerða kjör starfsmanna eða til að
mismuna þeim.
127