Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 20.05.1996, Síða 134
um til 40 ára. Þessari mismunun þarf að eyða þannig að lán Byggingarsjóðs
verkamanna til kaupa á félagslegum íbúðum verði í öllum aðalatriðum með
sömu kjörum og þau sem hann veitir til félagslegra búseturéttaríbúða.
Hér skal undirstrikuð nauðsyn þess að vaxtabætur séu færðar til lækkunar á
greiðslu lána samtímis því að lántaki greiði af láni sínu. Þá er mikilvægt að
fyrirkomulag vaxtabóta, húsaleigubóta og annarrar félagslegrar aðstoðar sé með
þeim hætti að það hvetji til að fjölskyldur búi saman á heimili en ekki aðskild-
ar. I þessu sambandi er mikilvægt að misnotkun bóta eigi sér ekki stað.
Vísitölubinding lána og jafngreiðslulán (annuitetslán) Húsnæðisstofnunar
léttir greiðslubyrði fyrstu árin en þyngir hana síðar. Vert er að benda á að slíkt
fyrirkomulag hentar ekki öllum. Eftir miðjan aldur lækkar fólk í tekjum svo
greiðslubyrði lána eykst. Þá má benda á að vaxtabætur vegna jafngreiðslulána
minnka þegar frá líður, þó svo að greiðslubyrði þeirra lána minnki ekki.
í minnkandi og lágri verðbólgu er því rétt að feta sig inn í að minnka vísi-
tölubindingu lána. Þá er þess krafist að Húsnæðisstofnun gefi fólki kost á að
taka önnur lán en jafngreiðslulán.
Félagslega húsnæðiskerfíð
38. þing ASÍ felur húsnæðisnefnd ASÍ og fjórum öðrum fulltrúum sem þingið
velur að gangast fyrir umræðu og fundum með félögum ASI um félagslega hús-
næðiskerfið og skila síðan tillögum um breytingar og bætur á því fyrir næsta
fund Sambandsstjórnar ASI.
III. 5. Lífeyrís- og tryggingamál
Það er stefna verkalýðshreyfingarinnar að almennu launafólki verði tryggður
aðgangur að öflugu lífeyris- og tryggingakerfi, hvort sem litið er til eftirlauna,
áfallatrygginga, veikinda- og slysatrygginga eða annarra tryggingaþarfa. Eins
og nú er háttað byggir lífeyris- og tryggingavernd annars vegar á löggjöf, m.a.
lögum um almannatryggingar, félagslega aðstoð og réttindi til launa í slysum og
veikindum. Hins vegar byggir veigamikill hluti af þessari vernd á ákvæðum
kjarasamninga, m.a. lágmarksréttindi í lífeyrissjóðum m.v. 10% iðgjald, ákvæð-
um um slysa- og veikindarétt launafólks hjá atvinnurekendum, rekstur sjúkra-
og styrktarsjóða stéttarfélaga og ábyrgðartryggingu atvinnurekenda. Það er ein-
kenni þessarar tryggingaverndar að hún er almenns eðlis, þ.e. hún nær til alls
launafólks en einskorðast ekki við þá sem eru félagsmenn í stéttarfélögum. Jafn-
framt hefur þessi tryggingavernd afmarkast við eftirlaun eða áföll einstaklinga
vegna veikinda eða slysa sem tengjast starfinu en ekki náð til þarfa almenns
launafólks fyrir tryggingar hvort sem er gegn slysum í frítíma eða tjóni á
persónulegum eignum.
Á undanförnum árum hefur mikil vinna verið lögð í það að endurskoða hluta
af þessum tryggingaþáttum. Fyrirferðarmest í þessari endurskoðun er umræðan
um uppbyggingu og starfshætti lífeyrissjóðanna. I nýgerðum kjarasamningi ASI
132