Ský - 01.12.2000, Blaðsíða 37
einu brautinn
Stundum fyllist maður stolti yfir því að vera kona. Ásdís Halla Bragadóttir er
ein þeirra kvenna sem smitar mann af djörfung og dug. Aðeins 32 ára gömul
hefur hún fellt ýmis íhaldssöm karlavígi. Það eitt segir að hún sé uppfull af
seiglu og óbilandi kjarki. í návígi má lesa úr grænum augum hennar tilfinn-
inganæmi, eilítið óöryggi og jafnvel viðkvæmni. Trúlega hefur hún náð svona
langt á hörku og miskunnarleysi við sjálfa sig. Og gert það vel. Kátína og
krakkalegur hlátur er aldrei langt undan og hálft í hvoru er óraunverulegt að
hún sé virðulegur bæjarstjóri í Garðabæ, rithöfundur sem ræðst ekki á garð-
inn þar sem hann er lægstur og elskandi eiginkona og tveggja sona móðir.
Allt í senn.
Eftir Þórdísi Lilju Gunnarsdóttur
Ljósmyndir: Páll Stefánsson
Til hamingju með bókina / hlutverki leið-
togans.
Já takk, ég er mjög ánægð með hana. Hugmyndin
kviknaði í kennslustund í Harvard-háskóla síðast-
liðinn vetur. Ég sótti námskeiðið Listin að vera
leiðtogi þar sem fjallað var um bandaríska og
breska leiðtoga og gat ekki varist þeirri hugsun
hvort vera skyldi að íslenskir leiðtogar hefðu
gengið í gegnum svipaða reynslu og erlendu leið-
togarnir. Því vildi ég sjá hverju íslenskir leiðtogar
gætu miðlað til samtíðarmanna sinna og komandi
kynslóða.
Fannst þér þá kominn tími til að miðla lífs-
sýn leiðtoga til ungs fólks í dag?
Já, því mér finnst svo áberandi hvað okkar kyn-
slóð er lítið spennt fyrir því að axla ábyrgð og
hversu lítið henni finnst til þess koma að vera í
forystuhlutverki. Hún gerir beinlínis lítið úr störf-
um fólks sem fórnar hiklaust lífi sínu til að láta
eitthvað gott af sér leiða. Mig langar að reyna
að breyta þessum þankagangi.
Ég er nú ekki alveg sammála og held að
þetta snúist kannski meira um sjálfstraust
og tækifæri.
Það má vera rétt hjá þér, en ég hef oft upplifað
það í samstarfi mínu við forystumenn bæði í
stjórnmálum og atvinnulífinu að fæstir meta
framlag þessa fólks sem fórnar einkalífi sínu og
leggur ómælt á sig í þágu heildarinnar.
Leiðtogar úr hinni víðfrægu Kennedy-fjöl-
skyldu hafa oft látið hafa eftir sér að löng-
unin til að leggja sitt af mörkum til samfé-
lagsins og þjóna fólkinu í landinu sé
óviðráðanleg og brennandi. Hefur þú þessa
sömu hugsjón að leiðarljósi?
Já, það geri ég af því að ég veit að það er hægt
að breyta svo mörgu og bæta svo margt. Við
búum í einu besta landi heims og höfum það
afskaplega gott, þótt það hljómi kannski væmið.
Hér má þó alltaf bæta um betur og í jafnlitlu
landi skiptir hver einstaklingur miklu máli í þróun
betra samfélags.
Ertu með heimilishjálp?
Já.
M Skv