Ský - 01.12.2000, Blaðsíða 90
Á höfuðborgarsvæðinu búa 2,549 fíeiri kven-
menn en karlmenn, Af öllum 123 sveítarfélögum
landsins eru konur fleíri í aðeins tíu sveitarfólögum.
Og mestur munurinn er í heimasveít Valgerðar
Sverrisdóttur, íðnaðar- og víðskíptaráðherra,
Grýtubakkahreppi, norður í Suður-Þingeyjarsýslu,
en bar búa 202 konur en ekki nema 175 karlar
arhreppi þar sem búa 13 karlar og 18
konur. Þessi tíu sveitarfélög ættu því að
vera vænleg fyrir piparsveina.
Þrátt fyrir jafnréttislöggjöfina er það
staðreynd að karlmenn hafa mun hæmi
laun en konur og vinna reyndar meira.
Atvinnuþátttaka karla á aldrinum 25 til
54 ára var í apríl 2000 96,8 prósent en
kvenna á sama aldri 89,6 prósent.
Á síðastliðnu ári tóku 4.265 konur
fæðingarorlof og 4 karlmenn.
134 karlmenn fóru í ófrjósemisað-
gerð, meðan 641 kona gerði slíkt hið
sama.
Það eru rúmu hálfu prósenti fleiri
konur sem reykja en karlmenn, eða
25,5 prósent á móti 24,8 prósent, en ef
við horfum tíu ár til baka reyktu 30,8
prósent karlmanna en 29,9 prósent
kvenmanna. Líklega gengur karlmönn-
um betur að hætta.
Konur fengu kosningarétt árið 1916,
næstar á eftir kynsystrum sínum í Finn-
landi, en það ár neyttu aðeins 30,2 pró-
sent kvenna atkvæðisréttar síns, á móti
69,1 prósenti karla. í síðustu þingkosn-
ingum var þátttaka kvenna meiri en
karla; 84,5 prósent kvenna kaus á móti
83,8 prósentum karlmanna. En þrátt
fyrir þetta voru konur aðeins 38 prósent
frambjóðenda og þær konur sem náðu
kosningu voru aðeins 28,2 prósent af
kjömum fulltrúum til Alþingis og sveit-
arstjórna. Ef skoðaðar eru tölur um
konur á Alþingi er hlutfallið hæst hér á
suðvesturhorninu; í Reykjavík er hlut-
fallið 53/47 og á Reykjanesi 50/50.
Lakast er hlutfallið á norðvestanverðu
landinu en í tveimur kjördæmum, Vest-
fjörðum og Norðurlandi vestra, eru allir
þingmennimir karlpeningur.
Kynjafræðideild Háskólans hefur að
vonum áhyggjur yfir því hve seint
gengur að rétta hlut kvenna í sveitar-
stjórnum, atvinnulífinu og á Alþingi.
Átak er nú í gangi sem heitir „Konur til
forustu". Áhyggjumar eru meðal annars
vegna þess að í nýmiðlunar- og tölvu-
bransanum, vaxtarbroddinum í íslensku
atvinnulífi, em það nær eingöngu karl-
menn sem taka þátt og stjóma. Hvar em
konumar? Norður í Grýtubakkahreppi,
kæru piparsveinar.
PS
88
Sky