Ský - 01.12.2000, Blaðsíða 46
Fimm konur komust
á blað, ein saga var
sögð um hverja
þeirra á meðan
landsþekktir brand-
arakarlar eins og
Árni Pálsson pró-
fessor og Davíð
Oddsson forsætis-
ráðherra fengu
margar blaðsíður.
björg Sólrún Gísladóttir. „Borgarstjór-
inn í Reykjavík er áhrifamikill stjórn-
málamaður og hefur mun meiri áhrif en
til dæmis kvenráðherrarnir í ríkis-
stjóm,“ var fullyrt í viðtali vegna grein-
arinnar. „Ingibjörg Sólrún er raunveru-
legur leiðtogi vinstri aflanna, hörkutól,
pólitískur fæter og eini pólitíkusinn hér
sem getur í raun staðið Davíð Oddssyni
á sporði," sagði annar. Sá þriðji sagði á-
hrif hennar meðal annars felast í því að
hún stýrði „stærsta batteríi landsins,
hún hefur karlgerða hugsun og forystu-
hæfileika.“ Það er ekki nóg með að
kona stýri Reykjavíkurborg, leiðtogi
minnihlutans er líka kona, Inga Jóna
Þórðardóttir. Nýlega hefur enn eitt víg-
ið fallið í sveitarstjómum þar sem kona
hefur tekið við sem bæjarstjóri eins af
stærstu sveitarfélögum landsins. Það er
Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri í
Garðabæ.
Því hefur lengi verið haldið fram
að eiginkonur leiðtoga séu áhrifamestu
konurnar í stjórnmálum. „Ástríður
Thorarensen eiginkona Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra hlýtur að hafa
mikil áhrif,“ sagði einn þein-a sem var
spurður; „ef Davíð hlustar ekki á hana,
hvem þá?“
Davíð lýsir henni þannig í nýlegu
viðtali við Ásdísi Höllu Bragadóttur í
bókinni I hlutverki leidtogans: „Ástríður
hefur aldrei otað mér út í eitt eða neitt.
Ekki hefur hún heldur reynt að koma í
veg fyrir að ég geri ákveðna hluti en
stundum hefur hún spurt mig hvort ég sé
alveg viss. Hún var til dæmis mjög
hugsi yfir því þegar ég fór í formanns-
kjörið í Sjálfstæðisflokknum og sá ýmsa
anmarka sem því fylgdu. Þegar ég var
búinn að gera það upp við mig þá veitti
hún mér fullan stuðning. Hún skynjar
vel að þegar ég hef tekið eitthvað í mig
verð ég að fá að ljúka málinu."
Einn viðmælandinn vildi fella þær
Ingibjörgu Sólrúnu og Vigdísi undir
skilgreininguna „framkvæmdakonur“.
Það sé athyglisverður hópur vegna þess
að þær séu að brjóta ný lönd. Fram-
kvæmdir hafa ekki verið á könnu
kvenna fram á allra síðustu ár. Hann
vildi bæta við nafni séra Auðar Eirar
Vilhjálmsdóttur sem var fyrst kvenna til
að taka prestvígslu hér á landi. Viðmæl-
andinn taldi að með því hefði Auður
haft gríðarleg áhrif og veitt fordæmi og
í raun breytt stefnu íslensku þjóðkirkj-
unnar. Nú eru allt að því jafnmargar
konur og karlar í guðfræðideild Há-
skóla íslands.
I nýlegri rannsókn á frammistöðu
stjórnenda í Bandaríkjunum, sem fjall-
að var um í Morgunblaðinu fyrir
skömmu, kemur í ljós að konur í stjóm-
unarstöðum ná mun betri árangri en
karlar á flestum þeim sviðum sem
mæld eru. Þær leita ekki persónulegrar
upphefðar í sama mæli og karlar, hafa
meiri yfirsýn og eru ábyrgari, vandvirk-
ari og samvinnufúsari en karlforstjórar.
Hér á landi stjóma karlar þó nær öllum
stærstu fyrirtækjunum.
Rannveig Rist er eina konan í hópi
forstjóra hundrað stærstu fyrirtækjanna.
Hún er forstjóri ÍSAL og stýrir álfram-
leiðslu svissnesks álrisa hér á landi.
Langflestir starfsmenn hennar eru karl-
menn. „Hefur hún einhver áhrif?“
spurði einn og annar sagðist ekki vita
hversu áhrifamikil hún væri. Rannveig
stýrir verksmiðju og hefur ef til vill
ekki mörg tækifæri til að setja svip sinn
á stjórn fyrirtækisins en áhrif hennar
eru fyrst og fremst sem fyrirmynd fyrir
aðrar konur. Hún stýrir þrátt fyrir allt
einu stærsta fyrirtæki landsins. Hún er
leiðandi á sviði þar sem konur eru í
miklum minnihiuta og sýnir að konur
geta líka skarað fram úr þar. Enn eru
44|Ský