Ský - 01.12.2000, Blaðsíða 74
Greiðum minna
- eignumst meíra
Nú fer senn að líða að áramótum og því
er ekki úr vegi að velta fyrir sér þeim
skattalegu ráðstöfunum sem huga þarf
að á þessum árstíma, bæði hvað varðar
skattaafslátt vegna hlutabréfa og lífeyr-
issparnaðar en einnig vegna eignar-
*Stigin sem gefin eru, eru reiknað
hlutfall milli meðalávöxtunar bréfa
og fráviks frá meðalávöxtun innan
viðkomandi flokks á 36 mánaða
tímabili. (Upplýsingar eru frá Lánstrausti,
www.sjodir.lt.is. Athugið, ávöxtun fortíðar
tryggir ekki framtíðarávöxtun.)
skattsins. Fyrir einstaklinga ætti al-
mennt séð að vera betra að fjárfesta í
hlutabréfasjóðum en einstökum félög-
um.
Fjárfesting í hlutabréfasjóðum gefur
fjárfestum góða eigna- og áhættudreif-
ingu sem einstaklingar með takmarkað
fjármagn eiga oft á tíðum erfitt með að
ná með eigin fjárfestingum. í þessu
sambandi má benda á Fllutabréfasjóð
Búnaðarbankans hf. Sjóðurinn er fjöl-
mennasti hlutabréfasjóður landsins
enda hefur hann allt frá stofndegi árið
1996 skilað hæstu ávöxtun sambæri-
legra sjóða á íslandi, þegar miðað er við
I. nóvember sl. Sjóðurinn er kjörin leið
til áhættudreifingar og hægt er að ganga
frá kaupurn með einu símtali eða í
gegnum internetið, www.bi.is/verdbref.
Einnig er boðið upp á beingreiðslur og
boðgreiðslur með Visa og Euro við
kaup í sjóðnum.
Ríkistryggð verðbréf eru eignarskatts-
frjáls og því kjörin leið til að lækka eign-
arskattinn. Búnaðarbankinn Verðbréf
býður upp á sjóð sem fjáifestir eingöngu
í ríkistryggðum bréfum og ber heitið
Eignarskattsfrjáls bréf. Þetta er tilvalin
tjárfesting fyrir þá sem greiða eignarskatt
og vilja njóta góðrar ávöxtunar og skatt-
fríðinda fjármuna sinna. Bréfin eru
einnig tilvalin fyrir þá sem hyggja á
reglulegan sparnað í framtíðinni.
Sífelit færist í vöxt að launþegar og
sjálfstæðir atvinnurekendur greiði frjálst
viðbótariðgjaid í lífeyrisspamað enda er
hann talinn hagstæðasta sparnaðarform-
ið sem völ er á. Á vegum Búnaðarbank-
ans eru tvenns konar form fyrir lífeyris-
spamað:
Séreignalífeyrissjóðurinn tekur á
móti 10% lögbundnum lágmarksið-
gjöldum af heildarlaunum, sem skylt er
að greiða í lífeyrissjóð.
Lífeyrisauki Búnaðarbankans hentar
starfandi einstaklingum sem óska eftir
að greiða mánaðarlega allt að 4% frjálst
viðbótariðgjald af heildarlaunum í líf-
eyrissparnað. Framlag launþega lækkar
staðgreiðslu skatta hans því það kemur
til lækkunar á tekjuskattsstofni. Ríkið
greiðir síðan til viðbótar 10% af frarn-
lagi launþega eða sem nemur 0,4% af
heildarlaunum.
Heildarlaun eða reiknað endurgjald á niánuði KX).(HK) 200.000
4% lögbundið iögjald í lífeyrissjóð* 4.000 8.000
Lækkun skalta (staðgreiöslu) 1.535 3.070
4% viðbótariðgjald í lífeyrissjóð 4.000 8.000
Lækkun skatta (staðgreiðslu) 1.535 3.070
Heildarlækkun skatta á mánuði 3.070 6.140
Hcildarlækkun skatta á ári 36.840 73.680
Dæmi um skattalegt hagræði af
lífeyrissparnaði fyrir iaunþega
eða sjálfstæðan atvinnurekanda
(8% af heildarlaunum/reiknuðu
endurgjaldi í lífeyrissparnað).
*SjáIfstæður atvinnurekandi
greiðir einnig lögbundið mót-
framlag launagreiðanda (6% af
reiknuðu endurgjaldi) og gjald-
færir það á rekstrarreikningi og
kemur það því einnig til lækkun-
ar á sköttum hans við álagningu.
Með þessari upptalningu er bent á
leiðir sem einstaklingar geta nýtt sér
nteð tilliti til undanþága frá venjulegum
skattareglum. Með því að huga að
þessu geta einstaklingar greitt minna
samhliða því að eignast meira.
Græddu
á netinu
- með viðskíptum í
Netbankanum
„Netbankinn er banki sem er eingöngu
rekinn á netinu og með slíku fyrir-
komulagi getur viðskiptavinurinn not-
ið betri kjara en í venjulegum bönk-
um,“ segir Geir Þórðarson.forstöðu-
maður Netbankans. „Einstaklingar
geta fengið mun hagstæðari inn- og út-
lánsvexti. Þeir sem sinna viðskiptum
sínum sjálfir í gegnum heimabanka
gömlu bankanna ættu að skoða hvern-
ig þeim er umbunað í sínum banka.
Þannig geta viðskiptavinir Netbankans
hagnast um tugi þúsunda á ári ef þeir
eru með yfirdrátt eða sparnað á reikn-
ingum okkar. Sem dæmi má nefna að
einstaklingur með 600.000 kr. yfir-
dráttarheimild fullnýtta getur þurft að
greiða allt að 38.000 kr. hærri vexti á
ári í hefðbundnum bönkum en hjá Net-
bankanum."
SPRON er eigandi Netbankans og
því hlýst aukið hagræði af því að
samnýta húsnæði og ýmis þjónustumál
milli bankanna. Netbankinn starfrækir
útibú í hverri einustu nettengdri tölvu
og því skiptir ekki máli hvort maður er
á Kópaskeri eða í Bangkok, það er
alltaf hægt að nálgast nýjustu upplýs-
ingarnar eða hafa samband við þjón-
ustufulltrúa með tölvupósti. Þessi sam-
skiptamáti gerir það að verkunt að
þjónustufulltrúar geta sinnt viðskipta-
vinum á persónulegri máta. Geir segir
að þótt viðskiptavinir og starfsmenn
bankans hittist ekki hafi oft skapast
góð tengsl við viðskiptavini.
12 mán. 24 mðn. 36 mán. Stlg*
V Hlutabréfasjóöur Búnaðarbankans hf 13,1% 19,1% 13,7% 0,39%
SS Auölind hf. 7,8% 14,9% 10,1% 0,15%
1 íslenski hlutabréfasjóöurinn hf. 0,8% 12,1% 8,5% 0,00%
I Hlutabréfasjóöur fslands hf. -0,2% 10,9% 6,6% -0,10%
VÍB Hlutabréfasjóöurinn hf. -1,8% 6,6% 5,6% -0,23%
-f’ Almenni hlutabréfasjóöurinn hf. -4,9% 6,8% 5,1% -0,21%
72 jský