Ský - 01.12.2000, Blaðsíða 86
Fjársjóður barnanna
- á Framtíðarreikníngí í íslandsbanka
Að spara er lífsstíll - það er ekki erfitt,
en það vefst fyrir mörgum að byrja.
Núna geturn við búið í haginn fyrir
börnin okkar með þvf að spara fyrir
þau. Það að leggja fyrir 500 krónur á
mánuði er lítið mál og margir myndu
jafnvel ekki finna fyrir því. En þegar
barnið hefur náð 18 ára aldri og getur
leyst út þennan sparnað sjáum við að
margt smátt gerir eitt stórt.
Sparnaðurinn er til marks um góðar
fyrirætlanir okkar í þágu bamsins. Með
spamaðinum er hægt að létta undir með
barninu í framtíðinni þegar kemur að
fjárfestingum eða framhaldsnámi.
Islandsbanki býður nú upp á nýjan
reikning sem hlotið hefur nafnið Frarn-
tíðarreikningur og byggist hann á reglu-
legum sparnaði handa börnunum.
Framtíðarreikningur er hugsaður fyrir
foreldra og aðra velunnara bama. Hann
ber alltaf hærri vexti en hæstu almennu
innlánsreikningar Islandsbanka hverju
sinni og er því frábær valkostur fyrir
langtímaspamað. Því fyrr sem spamað-
ur á Framtíðarreikning hefst, því hærri
upphæð hefur barnið til ráðstöfunar við
innlausn. Það getur að sjálfsögðu tekið
þátt í sparnaðinum sjálft, með því að
leggja inn fermingarpeningana, afmæl-
ispeninga o.s.frv. Öll innstæðan er laus
til úttektar á 18 ára afmælisdegi bams-
ins.
Framtíðarreikninginn er hægt að
Framtíðarreikningur er
hugsaður fyrir foreldra
og aðra velunnara barna
stofna fram að 15 ára aldri barna. Bæði
er hægt að gera samning um reglubund-
inn sparnað og eins er hægt að leggja
inn á reikninginn þegar hverjum og ein-
um hentar, en þá er ekki gerður sérstak-
ur samningur.
Oæmi um árangur af mánaðarlegum sparnaði á Framtíðarreikning*
Mánaðarlegur sparnaður Til ráðstöfunar eftir 18 ár
500 kr. 200.000 kr.
2.000 kr. 800.000 kr.
3.000 kr. 1.200.000 kr.
5.000 kr. 2.000.000 kr.
*í þessum dæmum er miðað við 6,35% vexti.
Langtímasparnaður hjá Kaupþingi
Fyrírhyggja og sveígjanleíkí
Verðbréfasjóðir eru ekki fyrir nokkra
útvalda heldur em þeir opnir öllum, líka
þeim sem ekki eru vanir slíkum við-
skiptum. Slíkir sjóðir gefa í flestum til-
fellurn mun betri ávöxtun en hefð-
bundnar sparnaðarleiðir. Með því að
leggja fyrir í hverjum mánuði getur þú
orðið þátttakandi í fjármálaheiminum
um leið og þú kemur þér upp fjársjóði
til að láta draumana rætast.
Kaupþing býður upp á marga verð-
bréfasjóði sem henta allir mjög vel fyrir
mánaðarlegan sparnað. allt eftir því
hvert markmiðið er.
Sparnaður fyrir börnin
- fyrirhyggja
Að leggja í sjóð fyrir bömin og bama-
börnin er mjög vinsælt sparnaðarform í
dag. Margir foreldrar vilja sýna fyrir-
hyggju með því að hafa sjóð á reiðum
höndum til að geta aðstoðað börnin sín
þegar þau vilja fara í t'ramhaldsnám eða
einfaldlega til að hjálpa þeim að kaupa
sína fyrstu íbúð. Þegar settur er upp
spamaður fyrir börn er oftast um að ræða
5 til 20 ár og þegar spara á í svo langan
tíma er ágætt að velja hlutabréfasjóði
með framsækna fjárfestingarstefnu. Það
eru sjóðimir sem ráðgjafar okkar mæla
með fyrir langtímaspamað þar sem þeir
eru sveitlugjarnir en slíkt er einkenni
þeirra sjóða sem gefa bestu ávöxtunina.
Safnast þegar saman kemur
- Dæmi:
Foreldrar byrja að leggja fyrir við
fæðingu barns síns, 10.000 krónur á
mánuði. Þegar barnið útskrifast sem
stúdent, 20 árum síðar, gætu foreldram-
ir fært því yfir 13 milljónir króna miðað
við 15% meðalávöxtun á tímabilinu
(t.d. er meðalávöxtun Global Equity
Class síðastliðin þrjú ár 23,6%).
Mánaðarlegur sparnaður
- sveigjanleiki
Verðbréfasjóðir hafa þann kost að
þeir bjóða upp á sveigjanleika. Þannig
má auðveldlega skipta um sjóð ef for-
sendur fyrir sparnaðinum breytast eða
taka út hluta af sjóðnum en halda
jafnframt áfram mánaðarlegum sparn-
aði. Áskrift að verðbréfasjóðum opnar
leiðir að fjárfestingum sem stjórnað
er af sérfræðingum og tryggir reglu-
semi í sparnaði án þess að refsað sé
fyrir áföll.
Ráðgjafar Kaupþings hjálpa þér að
velja þann sjóð sem hentar best þínum
spamaðarmarkmiðum eða þú getur tal-
að við þjónustufulltrúa í sparisjóðunum
um land allt. Hægt er að fá samband við
ráðgjafa Kaupþings í síma 515 1500
eða fá nánari upplýsingar á vefsíðunni
www.kaupthing.net.
84