Ský - 01.12.2000, Page 90

Ský - 01.12.2000, Page 90
Á höfuðborgarsvæðinu búa 2,549 fíeiri kven- menn en karlmenn, Af öllum 123 sveítarfélögum landsins eru konur fleíri í aðeins tíu sveitarfólögum. Og mestur munurinn er í heimasveít Valgerðar Sverrisdóttur, íðnaðar- og víðskíptaráðherra, Grýtubakkahreppi, norður í Suður-Þingeyjarsýslu, en bar búa 202 konur en ekki nema 175 karlar arhreppi þar sem búa 13 karlar og 18 konur. Þessi tíu sveitarfélög ættu því að vera vænleg fyrir piparsveina. Þrátt fyrir jafnréttislöggjöfina er það staðreynd að karlmenn hafa mun hæmi laun en konur og vinna reyndar meira. Atvinnuþátttaka karla á aldrinum 25 til 54 ára var í apríl 2000 96,8 prósent en kvenna á sama aldri 89,6 prósent. Á síðastliðnu ári tóku 4.265 konur fæðingarorlof og 4 karlmenn. 134 karlmenn fóru í ófrjósemisað- gerð, meðan 641 kona gerði slíkt hið sama. Það eru rúmu hálfu prósenti fleiri konur sem reykja en karlmenn, eða 25,5 prósent á móti 24,8 prósent, en ef við horfum tíu ár til baka reyktu 30,8 prósent karlmanna en 29,9 prósent kvenmanna. Líklega gengur karlmönn- um betur að hætta. Konur fengu kosningarétt árið 1916, næstar á eftir kynsystrum sínum í Finn- landi, en það ár neyttu aðeins 30,2 pró- sent kvenna atkvæðisréttar síns, á móti 69,1 prósenti karla. í síðustu þingkosn- ingum var þátttaka kvenna meiri en karla; 84,5 prósent kvenna kaus á móti 83,8 prósentum karlmanna. En þrátt fyrir þetta voru konur aðeins 38 prósent frambjóðenda og þær konur sem náðu kosningu voru aðeins 28,2 prósent af kjömum fulltrúum til Alþingis og sveit- arstjórna. Ef skoðaðar eru tölur um konur á Alþingi er hlutfallið hæst hér á suðvesturhorninu; í Reykjavík er hlut- fallið 53/47 og á Reykjanesi 50/50. Lakast er hlutfallið á norðvestanverðu landinu en í tveimur kjördæmum, Vest- fjörðum og Norðurlandi vestra, eru allir þingmennimir karlpeningur. Kynjafræðideild Háskólans hefur að vonum áhyggjur yfir því hve seint gengur að rétta hlut kvenna í sveitar- stjórnum, atvinnulífinu og á Alþingi. Átak er nú í gangi sem heitir „Konur til forustu". Áhyggjumar eru meðal annars vegna þess að í nýmiðlunar- og tölvu- bransanum, vaxtarbroddinum í íslensku atvinnulífi, em það nær eingöngu karl- menn sem taka þátt og stjóma. Hvar em konumar? Norður í Grýtubakkahreppi, kæru piparsveinar. PS 88 Sky

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.