Ský - 01.12.2001, Qupperneq 10
FYRST 6, FREM5T = FYRIR SELLURNRR
BJÓR MEÐ DJÖRFUM BLÆ
Hélstu aö bjór væri bara bjór? Að ekkert spennandi bragð væri í
boði annað en bjórbragðið eitt og sér? Það er auðvitað ekki nema
hálfur sannleikur. Mýmargir mixmöguleikar eru í boði. Á Kaffibarn-
um er vinsælt að fá sér bjórkokkteilinn HipHop. Hann samanstend-
ur af einum þriðja Egils Appelsíni og tveimur þriðju bjór. Barþjónarn-
ir á REX eru einnig duglegir að bjóða síðdegisgestum upp á franska
kokkteilinn Panaché, sem kallast Clara á Spáni en Radler í Þýska-
landi. Þá er galdurinn að menn blandi saman bjór og Sprite til helm-
inga. Djúpsjávarsprengjur eru vinsælar á Apótekinu. Þær eru eilítið
varasamar, en útbúnar þannig að fullu staupi af tekíla er hvolft í
stórt bjórglas og það svo fyllt í topp með bjór. Þegar sopið er niður
í hálft glas byrjar minna glasið að missa sinn mjöð út fyrir og bland-
an verður skýrari og áhrifameiri. Fleiri bjórblöndur eru vinsælar. Til
dæmis hin frískandi Monaco sem er bjór meó skvettu af Grenadine
og Picon-öl sem er bjór blandaður frönsku, áfengu Picon-sírópi og
kreistu af sítrónu. Einhver talaði um að alversti bjórkokkteillinn
hefði um tíma fengist á Hótel Egilsbúð á Neskaupstað. Bjór bland-
aður með staupi af Amaretto. Sama og þegið, takk. ÞLG
ÖRLÍTIL VEÐURFRÆÐI
Þjóðin missti dálítið tengslin við vindinn fyrir ríflega tveimur árum
þegar Veðurstofa Islands tók upp mælieininguna m/s (metrar á
sekúndu) og lagði gömlu góðu vindstigunum. Tólf vindstig voru ein-
hvern veginn mun áþreifanlegra fárviðri en 35 m/s. Til glöggvunar
er því rétt að ryfja upp hvað m/s þýða á vindstigsskalanum.
m/s 0 1 2 4 7 9 12 15 19 23 26 30 35
vindstig 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12
ROCK STAR Saga um drauma sem rætast. Chris Cole
(Mark Wahlberg) fæddist rokkari. Kærastan (Jennifer
Aniston) er sannfærð um að Chris bíði heimsfrægð,
en í stað þess að semja eigin tónlist dýrkar hann
Bobby Beers, söngvara þungarokksveitarinnar Steel
Dragons, og stofnar hermihljómsveit þar sem hann
stælir Bobby I hvívetna. Dag einn er Chris rekinn úr
grúppunni en fær þá óvænt annaö tækifæri; nefnilega
aö leysa Beers af hólmi. Leikstjóri: Stephen Herek
sem gerði m.a. Mr. Holland’s Opus, Three Musket-
eers og 101 Dalmatians. Orðsporið: Alvöru rokkmynd
með orgíum, dópi, síðu hári og pungþröngum leðurbuxum. Byggð lauslega á
sðgu sölumannsins.Ripper” Owens sem leysti af hólmi Rob Halford f Judas
Priest.
OCEAN’S ELEVEN Endurgerð á samnefndri
mynd frá 1960 þar sem hið fræga Rat Pack
gengi fór með aðalhlutverkin. Bófinn hjartahlýi
Danny Ocean (George Clooney) er nýkominn úr
steininum og búinn að velja af gaumgæfni hóp
„sérfræöinga" til að freista þess að ræna þrjú
íburðarmestu hótelin f Las Vegas um leið og
mikilvæg boxkeppni stendur þar yfir. Mikill
stjörnufans leikurf myndinni, auk Clooneys þau Brad Pitt, Julia Roberts, Matt
Damon og Andy Garcia. Leikstjóri: Steven Soderbergh, sá sem allir f
Hollywood þrá að vinna með. Það útskýrir leikarahópinn. Gerði m.a. Traffic og
Erin Brockovich. Orðsporið: Hinn rándýri leikarahópur Soderberghs mun gera
myndina eina af mest sóttu myndum ársins. Nokkuð massíf spennumynd, en
töluvert slappari en sú frá 1960.
ATLANTIS: THE LOST EMPIRE Sagan gerist
1914. Milo Thatch (Michael J. Fox), barna-
barn hins mikla Thaddeus Thatch, þykist vita
að Atlantis hafi verið til og telur sig komast
þangað hafi hann ákveöna dagbók til leiðsagn-
ar. Gamall vinur afa hans lætur honum dagbók-
ina í té, auk kafbáts og fimm manna áhafnar.
Þau ferðast svo um Atlantshafið, hitta risa-
humarinn Leviathan og finna Atlantis. Leikstjóri: Snillingarnir Gary Trousdale
og Kirk Wise sem gerðu saman teiknimyndirnar Beauty and the Beast og
Hunchback of Notre Dame. Orösporið: Disney-teiknimynd eins og þær gerast
bestar. Full af spennandi ævintýrum og húmor fyrir börn sem fullorðna. Og
ekki skemmir fyrir að fsland er mikill örlagavaldur f sögunni.
REGÍNA fslensk dans-og söngvamynd eftir
handriti Margrétar Örnólfsdóttur og Sjóns.
Regína (Sigurbjörg Alma Ingólfsdóttir) er
ósköp venjuleg tíu ára stelpa í Reykjavík.
Dag einn uppgötvar hún að hún getur látið
hluti gerast með því að syngja um þá. Hún og
Pétur, vinur hennar, ákveða því að snúa á ör-
lögin og hrinda af stað áætlun sem varðar
framtíöina. Hárkollusölumaðurinn Örvar (Baltasar Kormákur) kemur óvænt inn
í líf Regínu og gerir börnunum Iffið leitt. Leikstjóri: María Sigurðardóttir sem
spreytir sig hér á sinni fyrstu kvikmynd. Orðsporið: Litrfk skemmtun, fyndin og
spennandi atburðarás með góðri tónlist og frábærum dansatriðum. Baltasar
Kormákur og Halldóra Geirharðsdóttir sýna snilldardanstakta.
8 SKÝ Ljósmynd: PÁLL STEFÁNSSON