Ský - 01.12.2001, Blaðsíða 50
MOHAMMAD THARIQ
Fæddur 1.1/67
12 ára: Rússar ráðast inn í Afganistan 28 ára: Innlyksa 15 daga í Kabúl í miðri borgarastyrjöld
Kom til íslands í ágúst 2000
Kabúl: Það er barist á götunum, í húsagörðum og inni í húsunum.
Sandpokum er hlaðið upp í götuvígi og þeir sem fara út eru teknir
til fanga eða skotnir. Það er árið 1995 og ég er tuttugu og átta
ára. Ég er í heimsókn hjá vini mínum og við erum búnir að vera
fastir hérna í fimmtán daga. Við erum heppnir því bardagarnir hafa
ekki borist inn í húsið okkar ennþá. Allan tímann er barist á göt-
unum, með öllu frá byssustingjum til fallbyssna og flugskeyta og
við felum okkur í húsinu. Jafnvel skepnur eru skotnar ef þær sjást
á ferli. Allir sem vilja vera með byssur eru með byssur, enginn er
lengur í einkennisbúningi. Að minnsta kosti tólf hópar, og í raun
miklu fleiri, berjast tilgangslausri baráttu um borgina og henni
blæðir. í tíu ár reyndu hermenn sovéska kjarnorkuveldisins í öllu
sínu veldi að hertaka landið. Þeir gáfust upp og fóru burt fyrir sex
árum en borgarastyrjöldin hefur verið að magnast síðan. Hún er
miklu verri, nú er engin víglína, barist alls staðar. Og málaliðarnir
eru ekki að berjast fyrir frelsi landsins heldur fyrir sjálfa sig.
Þú spyrð mig hvort ég hafi séö stríö. Ég vann sem heimilislæknir
á spítala í Jalalabad í borgarastyrjöldinni. Þegar flugskeyti lentu á
markaðstorginu eða fullri rútu af fólki urðum við alltaf að reyna að
bjarga fórnarlömbunum, að mestu án lyfja og sjúkrabúnaðar. Ég
hef séð fjöldagrafir, ræningja, nauðgara og fórnarlömb þeirra. Ég
hef séð nef og eyru skorin af mönnum og ekki getað stöövaó það.
Og ég hef séð fólk dreþið af tilefnislausu og fórnarlömþ pyntinga
með ummerki sem mig langar ekki að segja neinum frá. Ein og hálf
milljón landa minna dó í stríðinu við Rússana og svo eru allir hinir
sem misstu hendur og fætur. Hér hefur geisaó stríð í meira og minna
tuttugu og tvö ár. Og allar jarðsprengjurnar úr óorgarastyrjöldinni,
veit einhver lengur hvar þær eru? Þú ert Afgani og ríkasta þjóð í
heimi byrjar að varpa sprengjum á landiö þitt.
48 SkÝ STRÍÐ