Ský - 01.12.2001, Blaðsíða 53
JENNÝ EINARSSON
Fædd 1959 í Belfast, Norður-írlandi
ÍO ára: írski lýðveldisherinn hefur blóðuga baráttu gegn yfirráðum Bretlands
Kom til íslands 1989
Þú ert á gangi í miðbænum þegar sprengja springur í næstu götu. Suma daga eru þrjátíu sprengju-
hótanir, bara í Belfast. Viðvörun er gefin og allir hlaupa út úr fyrirtækinu eða versluninni, út á götu
og eins langt frá húsinu og þeir komast. Stundum er sprengja, stundum ekki. Stundum deyr fólk
eða slasast, stundum ekki. En þú veist aidrei hvar eða hvenær. Óvissan er verst, þú ert aldrei ör-
ugg, býrð við sífellda ógn. Jafnvel þegar þú ert heima hjá þér, langt frá stöðum þar sem sprengju-
tilræðin eru gerð, geturðu búist við hverju sem er. Þegar ég var tuttugu og eins árs hringdi síminn
heima. Frændi minn sem vann á lögreglustöð í „Bandit country” nálægt landamærunum við írland
var of seinn f vinnuna um morguninn og missti af þyrlunni sem flutti þá þangað venjulega. Flann
keyrði í vinnuna ásamt vinnufélaga sínum og á leiðinni voru þeir sprengdir í loft upp með fjarstýrðri
sprengju sem var grafin f vegkantinum.
Ég gerði mér eiginlega ekki grein fyrir því að ég lifði við stríðsástand fyrr en ég fór burt frá Norður-
írlandi. Flérna er (allt annað). Foreldrar skilja börnin sín eftir fyrir framan teiknimyndir í Flagkaup og
finnst það allt í lagi, nokkuð sem ég hef ekki ennþá getað vanið mig á.
Frændi minn kom heim í lokaðri kistu. Þaö kom lögreglumaður með sem gætti þess að hún væri
ekki opnuð því mamma hans vildi sjá hann. Ég hugsaði mikið um manninn sem stóð uppi á hæð-
inni, fylgdist með bílnum og ýtti á takkann.
STRÍÐ SKÝ 51