Ský - 01.12.2001, Blaðsíða 52
IVICA GREGORIC
Fæddur 27.7.'75 í Zagreb, Króatíu
18 ára: 1993 kvaddur í herinn og sendur í Bosníustríðið
Kom til fslands í júní 1997
Þyrlan svífuryfir akra, tré, vegi, hús og þú ert á byssunni. í sjúkraþyrlu, en samt á byssunni. Kyrr-
stæð bílalest birtist á veginum í fjarska, sjúkrabíll og herbílar, frá okkur. Við nálgumst í þrjátíu
metra hæð, bílalestin kyrr, ein í landslagi. Lendum. Engin hreyfing. Ég fer að sjúkrabílnum. Hann er
brynvarinn en samt allur götóttur á þakinu. Hann hefur tútnað út og er í laginu eins og sívalningur.
Því Gatling - vélbyssur óvinarins eru með sex hlaup, skjóta 1800 skotum á mínútu sem þýðir að
þrjú skot fara alltaf á sama stað. Tveimur kúlum fyrst til að brjótast í gegnum brynvörnina. Svo
getur hún farið óhindrað í gegn, sprengikúlan. Ég stend fyrir aftan sjúkrabílinn og er skyldugur til
að ganga úr skugga um að hér sé ekki hægt að bjarga neinum. Ég er átján ára. Ég opna dyrnar.
í stríði lifa allir í ótta og fólki er slátrað eins og í pulsuverksmiðju. Vinir þínir deyja og skólafélag-
arnir missa hendur og fætur. Og það eina sem þú vilt er að því Ijúki. Og þegar því lýkur geturðu ekki
gleymt því sem þú hefur séð, heyrt, lyktinni. Þetta býr enn í höfðinu á mér, mun alltaf gera það.
Ég losnaði úr hernum í október 1995 eftir tuttugu og tveggja mánaða herskyldu.
Það var einn mesti hamingjudagur lífs míns.
50 SKÝ STRÍÐ