Ský - 01.12.2001, Blaðsíða 73
Daglegt líf borgarbúa
Miðborgin . Fegurð . Mannfélag . Menning .
Verslun . Þjónusta . Upplifun . Tilfinning .
RM Að setjast niður, lesa blöðin,
fá sér morgunkaffi ...
í miðbænum, þá hefst dag-
urinn. Borgin vaknar við
'/ /, jl lykt af brauði og kaffi.
\ 't, Lyktin er tákn um lifandi
miðborg þar sem íbúar
mM finna sig - frá upphafi dags.
Alls staðar er fólk að vinna.
Verslun og þjónusta,
fjölbreytileiki. Miðborgin
sefur aldrei. Vinnan er
hluti af menningunni.
Ganga um miðborgina er
vinsæl og gefandi heilsu-
rækt en það er hægt að fá
enn meiri hreyfingu út úr
heimsókn í bæinn. Líkams-
rækt í fullkominni mynd
fyrir íbúa, gesti og starfs-
fólk frá morgni til kvölds.
Miðborgin er aldingarður -
hjarta verslunar og viðskipta.
Þar er allt; varalitir, blóma-
vasar, bækur, föt. Gamait og
nýtt kallast á í rótgrónum en
nútímalegum miðbæ, með
rétta andrúmsloftið þegar
kíkja skal í búðir.
Strætisvagnar; gulir og
vinsamlegir. Auðveldur og
fljótlegur ferðamáti frá
einum stað til annars.
Öflug leið í almennings-
samgöngum, niður í bæ.
Kræsingar í litum regnbogans.
Á rölti um bæinn kalla kökur
og kaffi á gesti og gangandi.
Kaffihúsin eru hluti af stemmn-
ingu miðborga og kóróna
heimsókn með góðu bragði.
Hvert með sínum persónuleika
sem hæfir gestum.
Heimsreisa í hádegis-
matnum. Matarilminn
leggur um miðborgina upp
úr hádegi. Góðgæti frá
öllum heimsálfum. Matur
sem hæfir skapi dagsins.
Ítalía, Kína, ísland - pasta,
hrísgrjón, kjötsúpa.
Höfnin er einstæð í miðborg-
inni. Tengir atvinnulíf og afþrey-
ingu, minnir á arfleifð (slend-
inga og mikilvægi fiskveiða og
siglinga. Höfnin er gömul lífæð
Reykjavíkur, hluti af miðbæ
með bláum sjó. Héðan horfum
við út í hinn stóra heim.