Ský - 01.12.2001, Blaðsíða 30
Ingvar E. Sigurðsson er einn ástsælasti leikari þjóðarinnar,
hann er verðlaunaóur í bak og fyrir heima og erlendis,
og nú í vor veróur frumsýnd bandaríska stórmyndin K19:
The Widowmaker þar sem hann leikur á móti ekki minni
stjörnum en Harrison Ford og Liam Neeson. Jón Kaldal hitti
Ingvar og spurói hann meðal annars út í kvikmyndaferil í
útlöndum en fékk líka að heyra urn kúnstina að gráta og
aó hann væri sjálfsagt prestur ef hann væri ekki leikari.
Ég man eftir Ingvari áður en hann varð frægur. Það var snemma sumars 1989 og verktak-
inn sem ég vann hjá hafði leigt mig ásamt valtara, í fjögurra daga sleitulausa vegavinnu
upp í Kjós. Ég þekkti engan í vinnuhópnum en það var einn annar strákur nýr á staðnum.
Hann sagðist vera í Leiklistarskólanum og hann hefði ráðið sig í þessa vinnu því verktak-
inn hafði lofað honum uppgripum í sumar, hins vegar var hann að komast að því sér til
hrellingar að hann var á strípuðum verkamannataxta. Hann sagði mér að það væri búið að
bjóða sér hlutverk í stuttmynd og þegar ég hélt til baka í bæinn með valtarann sagðist
hann vera að spá í að slá til; segja upp vegavinnunni og þiggja hlutverkið; sumarkaupið
yrði hvort sem er ekki beysið á þessum launum. Myndin var SSL 25 eftir Óskar Jónasson.
og frammistaða Ingvars sem geggjaður hermennskudellukarl er ógleymanleg öllum sem
sáu. Ég man að það kom mér á óvart aö þessi hægláti og þægilegi náungi gæti leikið
svona brjálæðing.
Tólf árum síðar sitjum við Ingvar á barnum á Grand Hótel. Hann er jafnafslappaður og
þægilegur og hann var í vegavinnunni upp í Kjós og núna veit ég að hann getur svo sann-
arlega brugðið sér í allra kvikinda líki, hvort sem það eru vitstola geðklofasjúklingur á
borð við Pál í Englum alhelmsins eða hreinhjartaður hugsjónamaður eins og
doktor Stokkmann í Fjandmanni fólksins. Á undanförnum áratug hefur Ingvar fest sig
rækilega í sessi sem einn fremsti leikari þjóðarinnar. Á sama tíma hefur honum tekist að
halda lífi sínu í ..heföbundnum, föstum fjölskylduskorðum", svo notuð séu orð hans sjálfs,
en hann og kona hans Edda Arnljótsdóttir eiga fjögur börn á aldrinum ellefu til tveggja
ára. Það er dágott afrek miðað við alia þá athygli og aðdáun sem hefur beinst að honum.
Síðasta vor hófst á vissan hátt nýr kafli á ferli Ingvars þegar hann flaug til Kanada til
þess að leika í þrillernum K-19: The Widowmaker ásamt stórstjörnunum Harrison Ford og
Liam Neeson. undir leikstjórn Kathryn Bigelow, sem hefur meðal annars myndirnar
Strange Days og Point Break á afrekaskránni. Myndin er byggð á sannsögulegum atburð-
um sem gerðust þegar slys varð um borð í sovéskum kjarnorkukafbáti 1961 og leikur
Ingvar yfirvélstjórann Viktor Gorelov sem er valdamikill um borð.
Undir dinnertónum hótelbarsins förum við í ferð um nokkur leikrit og bíómyndir frá ferli Ljósmyndir: pállstefáNsson
Ingvars. Aðstoð: kjartan páli.sæmundsson
IGURÐSSON