Ský - 01.12.2001, Qupperneq 41

Ský - 01.12.2001, Qupperneq 41
A Hellisheiði liggja samhliða þrjár stærstu háspennulínur Landsvirkjunar til höfuðborgarsvæðisins. Fari að gjósa á því svæði gætu möstur fallið og rafmagns- flutningur til borgarinnar rofnaó, sem hefði í för með sér gríðarlega röskun á tilveru borgarbúa. að eldfjöll myndast þar sem þeirra er síst von og á áður óvæntum stöðum. Eins gæti reynst afdrifaríkt í höfuðborginni ef gysi í Hengli með miklu gjóskufalli yfir borgina og með mikilli sprengivirkni f námunda við eldstöðina. Þá fellur gjóska á götur, þyrlast upp í and- rúmsloftinu og kæfir bílvélar og aðra mótora á þann hátt að ekki reynist unnt að notast við slík farartæki. Eins verður útivist öll erfiðari við skort á hreinu súrefni og hugsanlega þyrfti að notast við gasgrímur. Þannig er málum háttaö í borgum þar sem eldfjöll eru í nágrenninu því mikið magn gjósku getur verið bráðdrepandi og ástandið varað lengi þvf rykið svífur lítiö og hörfar á löngum tíma, nema í bleytutíð.” Þegar óvænt og fyrirvaralaust eldgos hófst á Heimaey aðfara- nótt 23. janúar 1973 eftir 5000 ára goshlé var vindátt um eyjuna óvenju hagstæð eða að suðvestan. Blés því gjóskunni frá eyjunni en ekki yfir byggðina. Vindur er annars ríkjandi að suöaustan í Vestmannaeyjum og er mat sérfræðinga að hin óvenjulega vindátt hafi bjargað mörgum mannslífum þessa nótt því öllum eldgosum fylgi eitrað og lúmskt gas sem hvorki finnst lykt af né sést. Vil- hjálmur Knudsen kvikmyndatökumaður var staddur í Vestmanna- eyjum við að mynda gosið. „Þaö var mjög einkennilegt að vera þarna. Gasið var þannig samsett að gasgrímurnar sem við vorum með virkuðu ekki og þegar maður var að mynda niðri í bænum leið manni ekkert vel. Hjartað barðist við að ná í súrefni og mér leið eins og ég væri með utanborðsmótor inni í líkamanum. Sérfræðing- ur frá Sameinuðu þjóðunum kom til að meta ástandið og mælti með því í kjölfarið aö þeir íbúar sem eftir voru og allir björgunar- menn yfirgæfu eyjuna strax.” Hafþór Jónsson, aóalsvióstjóri Almannavarna ríkisins, segir hættu á banvænum áhrifum eitraðra gastegunda geta skapast í lægóum og lautum í stafalogni, en þegargasið blandist súrefni þynnist það fljótt út og áhrifin dvíni í samræmi við þaó. „Við stórfelldar hamfar- ir í algjöru logni, sem er vel að merkja fátítt í vindasamasta landi jarðar, geta því skapast hættulegar aðstæður á lágt liggjandi stöð- um. Fyrstu merkin um gasmengun í Heimaey var að bærinn fylltist af rottum sem flúðu upp á yfirborðið. Fólki er fyrst og fremst hætta búin ef það fer inn í kjallara húsa eða djúpar lautir því gasið leitar í lægðir. Því miður varð eitt dauðsfall í Vestmannaeyjum, en það hefði auðveldlega mátt koma í veg fyrir.” BRÁÐÓGNANDI AÐSTÆÐUR Ef landnám íslands hefði ekki orðið fyrr en nú á nýju árþúsundi væri Reykjavík enn á ný besta hugsanlega bæjarstæði höfuðborgarinn- ar að mati jarðfræðinga. í Reykjavík er nóg landrými, tiltölulega láglent, gnægö vatnsbóla og uppsprettur heits vatns, bestu hafn- arskilyrði landsins, lítil jarðskjálftavirkni og fremur lítil hætta á hamförum. Flest hverfi Stór-Reykjavíkursvæðisins eru byggð á holtum eða eins konar eyjum sem mynda náttúrulega vörn fyrir hraunrennsli nálægt húsum. Yrði eldgos ofan við Reykjavík, til dæmis í Hengli sem er í aðeins 24 kílómetra loftlínu frá efstu hverf- um borgarinnar, gæti því hins vegar fylgt mikið hraunrennsli sem 38 SKÝ HAMFARIR í HÖFUÐBORGINNI „Ef færi að gjósa gæti gosið í löngum sprungum eftir öllum Reykjanesskaganum, allt frá Reykjanesvita og upp á Hellisheiði. Sagan hefur sýnt að mörg gos verða hvert á fætur öðru. Byrji eitt gos eru allar líkur á að það haldi áfram og rifi upp Reykjanesskagann." Karl Grönvold, jarðfræðlngur leitaði niður á flatlendið við Elliðavatn og myndi brjóta sér leið nið- ur Elliðaárdalinn. I miklum hamförum bryti það sér hugsanlega leið inn Fossvoginn. „Eldgos ofan við Reykjavík myndi valda gffurlegri röskun á Iffi okkar,” segir Páll Imsland. „Hraunrennsli ruglar alla umferð, tekur vegi í sundur, hefur áhrif á vatnsból og rafmagn, rýfur vatnsleiðslur og brýtur niður rafmagnsmöstur. Hraun hrekur líka vatn á undan sér og gæti hrundið flóðöldu á undan sér niður Elliöaárdal- inn. Byggðin á höfuðborgarsvæðinu er þó nokkuð vel varin frá nátt- úrunnar hendi og ætti fólk að hafa tíma til að rýma hús sín. Hús við Elliðavatn og í Elliðaárdal gætu samt hæglega farið undir hraun.” Hafþór Jónsson hjá Almannavörnum segir söguna sýna að hraun hafi runnið að byggð á Reykjavíkursvæðinu en að landslagið breyt- ist eftir hraunrennsli og því ekki jafnauðveld rennslisleið fyrir hraun á sömu slóðum í dag. Því finni hraunáin sér nýjar leiðir. „Eldgos geta auðvitað verið mjög ógnandi strax. Ef færi að gjósa nærri Grindavík gæti byggöinni þar verið ógnað tiltölulega hratt ef hraun rynni í átt að bænum. Þá þyrfti að hafa hraðar hendur við björgun fólks og verðmæta. Bráðógnandi aðstæður af völdum eldgoss í tuttugu kílómetra beinni loftlínu frá Reykjavík ætti hins vegar að gefa viðunandi tíma til að tryggja öryggi íbúanna.” Á Stór-Reykjavíkursvæðinu búa 178.000 manns. Þegar svo- nefndur Suðurlandsskjálfti skók og skemmdi hús á þjóðhátíðardag- inn árið 2000, þorðu íbúar á Hellu og Hvolsvelli ekki annað en að taka fram viðlegubúnað sinn og stunda tjaldbúskap þar til óhætt var að lifa í húsunum aftur. Enn er búist við stórum skjálfta upp á 7 til 7,3 á Richter-skala á Suðurlandi og suðvesturhorninu. Ef svo stór skjálfti riði yfir Reykjavík í svartasta skammdeginu og vond- um veðrum má búast við svipuðum viðbrögðum borgarbúa og áttu sér stað fyrir austan fjall. Tjaldborgir myndu rísa í almenningsgörð- um, leikvöllum og öðrum opnum svæðum og fólk bræða snjó í prím- mushituðum tjöldunum. Hafþór Jónsson segir borgarbúa myndu vissulega verða óþægilega vara við jarðskjálfta yfir 7 á Richter. „Trúlega yrði þó ekki mikið um niöurbrot á mannvirkjum. Alla jafna þola timburhús jarðskjálfta best og flest steinhúsanna eru vel byggð. í stóru skjálftunum 1929 og 1968 skemmdust mjög fáar byggingar. Tjón af völdum skjálfta er yfirleitt í rökréttu sam- hengi við þaó hversu lengi skjálftinn varir. Því lengri skjálfti því meira tjón.” Að sögn Ármanns Péturssonar hjá Almannavarnanefnd KIVIRS (Kjós, Mosfellsbær, Reykjavík, Seltjarnarnes) yrði fólki sem flýði hús sín komið fyrir í íþróttahúsum á höfuðborgarsvæðinu meðan húsrúm leyfði. „í neyðaráætlunum gerum við ekki ráð fyrir að allir flýi hús sín, enda kæmust ekki á annað hundrað þúsund manns í íþróttahúsin sem tekin væru undir fjöldahjálparstöðvar. Eins þyrftu menn að hafa með sér undir hendinni koddann sinn og sængina.” BANNAÐ AÐ FLÝJA AF HÓLMI Núverandi vióbúnaður og neyðarskipulag almannavarna byggist á reynslu af atburðum fyrri ára, einkum náttúruhamförum, og hug- myndum manna um mögulegar afleiðingar af ógnvænlegum atburð- HAMFARIR í HÖFUÐBORGINNI SKÝ 39
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.