Ský - 01.12.2013, Síða 18

Ský - 01.12.2013, Síða 18
NORÐMAÐURINN MAGNÚS CARLSEN HEIMSMEISTARI í SKÁK: EIN STAKT MINNI Magnús Carlsen segir aö bestu skákir Bobbys Fischer séu snilld. Hinn ungi norski skákmeistari tekur skákstíl Fischers sér til fyrirmyndar. En lýkur samanburöinum þar? Magnús Carlsen kemur ókunnug- um fyrir sjónir eins og hver annar menntaskólastrákur. Við skákborðið minnir hann á stúdentsefni, sem er að þreyta próf í eðlisfræði. Hann er einbeittur en ástríðan fyrir skákinni virðist ekki vera eins og var hjá Bobby Fischer. Magnús heldur ró sinni - Fischer var órólegur. Þetta er bara íþrótt í augum Magnúsar. Hann situr svolítið skakkur í stólnum en er alls ekki að fara á taugum. Og hann kvartar ekki í sífellu undan aðstæðum og virðist ekki óttast njósnir og óþverrabrögð. Skákstíll þessara tveggja manna er ef til vill líkur en mennirnir eru ólíkir. FEIMINN MENNTASKÓLASTRÁKUR Eg hef tvisvar talað við Magnús. I fyrra sinnið var hann aðeins 17 ára gamall en þó orðinn umtalaður sem efnilegasti skák- maður heims. Þá var faðir hans með honum og svaraði flestum spurningunum. Magnús svaraði bara „já“ og „nei“ og „ætli TEXTI: GÍSLI KRISTJÁNSSON MYNDIR: ÝMSIR það ekki“ og virtist alveg upptekinn af skákinni. Faðir hann sagði að skákáhuginn hefði ekki komið fram fyrir alvöru fyrr en sonur- inn tók að nálgast 10 ára aldurinn. Börn þurfa ekki endilega að byrja að tefla í leik- skóla til að ná langt. Ferill Magnúsar sýnir það. En faðirinn sagðist engu að síður snemma hafa tekið eftir að Magnús var ekki alveg eins og önnur börn. Hann virtist hafa ótrúlegt sjónminni og búa yfir hæfileika til að sjá fyrir sér mynstur, myndbrot og samhengi sem aðrir krakkar sáu ekki. PÚSLAÐI Á VIÐ FULLORÐNA Þetta kom í fyrstu fram í ótrúlegum hæfi- leikum í púsli. Allir vita hve ergjandi það er að raða upp púsluspili þar sem allir kubbarnir eru nærri því eins. Hálf myndin er bara himinn með fáum skýjum og gátan nær óleysanleg. Venjulegt fólk reytir hár sitt og fórnar höndum. En þarna virtist sem Magnús þyrfti bara að horfa á myndina og svo á kubbana og þá lá lausnin eins og ljós fyrir. Hann stóð ekki bara jafnöldrum sínum framar í púslinu heldur og fullorðnu fólki.Til að geta þetta þarf einhvern sjónrænan hæfi- leika sem fáum er gefinn, hæfileika til að meðtaka mikið magn upplýsinga á skömm- um tíma og koma röð og reglu á þær. Þessi hæffleiki kom snemma fram. Magnús var bara tveggja ára þegar hann leysti púsluspil með 50 kubbum. Púslið vakti líka áhuga á Lego-kubbum. Fimm ára gamall réð Magnús við Lego-bygg- ingasett ætluð 14 ára unglingum. Hann las ekki leiðbeiningarnar en sá af myndunum hvar kubbarnir áttu að vera. LÆRÐI AF BENT LARSEN Þetta varð til þess að Henrik faðir hans sýndi honum tafl. Það vakti ekki áhuga snáðans fyrr en síðar og hann telfdi fyrst á krakkamóti nær níu ára gamall. Arang- urinn á mótinu var rétt yfir meðallagi en 18 SKÝ 6. tbl.2013

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.