Árbók Hannesar á horninu - 31.12.1941, Blaðsíða 9
FORSPJALL
Undanfarin ár hef ég svo að segja daglega
ski'ifaö pistla í Alþýöublaðið um daginn og
veginn og mun að öllu forfallalausu gera það
áfram. í þessum pistlum hef ég gert aö um-
ræðuefni fjölda margt úr daglega lífinu og
hefur tekist að gera almenning, sem les blað-
ið, að þátttakendum í þessu starfi. Eg veit
aö ýmsir hafa klippt þessa pistla úr blaðinu
og límt þá inn í bók. Sýnir það, að fólki hef-
ur þótt gaman að þeim.
Eg hef nokkrum sinnum fengið áskorun
um að gera útdrátt úr þessum pistlum og
gefa þá út í smákveri. Mér hefur ekki þótt
taka því, en í byrjun þessa árs var ég mjög
hvattur til að skrifa pistla um ástandsárið
1941 og þessi smábók er afleiöingin af þess-
ari áskorun. Eg hef tekiö þessa bók saman
allt þetta ár, smátt og smátt. Af nógu hefur
verið að taka, en flestu hefur orðið að sleppa.
Það vakti fyrir mér að gefa sem bezta hug-
mynd um ástand þessa merkilega árs, rekja
ýmsa atburði, drepa á það, sem talaö hefur
verið um, bæði í alvöru og gamni, draga upp
myndir af fóikinu og hugðarefnum þess. Eg