Árbók Hannesar á horninu - 31.12.1941, Page 70
68
við erum orðnir auralausir og siglum, og svo
endurtökum við aftur sama leikinn”.
Silkihanzki utan yfir stálkrumlu. Seint í
sumar er leið var haldinn fundur í háskól-
anum. Rætt skyldi um ástandsmálin. Bisk-
up landsins flutti þar áhrifamikla ræðu.
Skýrði hann frá því að leitað hefði verið til
kirkjunnar um að veita forystu hagkvæmum
varnarráðstöfunum. Sagði hann þetta vera
venjuna, að biðja kirkjuna að bjarga, þegar
í óefni væri komið. En þetta væri ekki nóg.
Því aðeins gæti kirkjan eitthvað að gert,
að henni væri veittur öflugur stuðningur.
„Ef hinir veraldlegu höfðingjar fara að sækja
kirkjurnar, ef þið ráðherrar, kennarar, rit-
stjórar og blaðamenn komið í kirkju og
styðjið starf hennar, þá mun vald kirkjunn-
ar til góðra áhrifa aukast um allan helm-
ing”. Þetta sagði biskup og hann sagði enn-
fremur: „Það verður að koma með útrétta
höndina til þeirra systra og bræðra, sem
leiðst hafa afvega”.
Jónas Jónsson talaði næstur á eftir bisk-