Skinfaxi - 01.01.2023, Page 14
14 S K I N FA X I
Aðstoðarskólastjóri Dalskóla
segir í skoðun að gera ringó að
hluta af íþróttakennslu skólans.
„Það er svo gott að spila ringó, það geta allir verið með,“ segir Auður
Valdimarsdóttir, aðstoðarskólastjóri í Dalskóla í Reykjavík. Hún og fleiri
kennarar skólans tóku virkan þátt í leik nemenda í 8.–10. bekk þegar
boðið var upp á ringó í þemaviku skólans í mars.
Í ringóinu var gerð tilraun með að blanda saman nemendum úr
þremur árgöngum. Það gekk vel og stefnir skólinn nú á að kaupa ringó-
hringi og gera greinina hluta af náminu í skólanum, að sögn Auðar.
Allir geta verið með í
RINGÓ
Ringó svipar til blaks. Spilað er á blakvelli. Liðin eru tvö og tveir til sex
í hverju liði. Þau kasta á milli sín yfir net tveimur gúmmíhringjum í stað
bolta. Markmiðið er að koma hring í gólfið hjá andstæðingnum. Aðeins
má grípa hringina með annarri hendi. Þar sem tveir hringir eru á lofti á
sama tíma getur verið ansi mikið líf í leiknum.
Þátttakendur í leiknum þurfa ekki að búa yfir neinni sérstakri kunnáttu
eða getu umfram þá að geta kastað gúmmíhring með annarri hendi og
gripið slíkan hring.