Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Síða 28
íslensk skáldverk
PARÓDÍA KALÍBANS
Ronald M. Kristjánsson
Safn 35 smásagna, sem eru
sprettilsögur, háðsádeilur á
þjóðfélagið og manninn,
huganir og leiðslusögur í
anda dulspekinnar.
135 blaðsíður.
Bókaútgáfan Ósíris sf.
Verð: 1.390 kr.
RITSAFN INDRIÐA G.
ÞORSTEINSSONAR
Indriði G. Þorsteinsson
Nýtt ritsafn skáldverka Ind-
riða G. Þorsteinssonar í 9
bindum. Formála fyrir safn-
inu skrifar Hallberg Hall-
mundsson. Margir hafa fjall-
að í löngu máli um skáld-
skap Indriða G. Hefur þar
gengið á ýmsu um dagana
og rekur Hallberg m.a. þá
sögu. Á einum stað skrifar
Bjarni Benediktsson frá Hof-
teigi um skáldskap Indriða
G.: „Mannlýsingar eru skýr-
ar þótt þær séu ekki marg-
orðar, og það er raunar á-
nægjulegast alls við þessa
sögu að höfundur vinnur
dýrmæti úr hverri persónu
sinni. Hann hefur samúð
með þeim öllum, hann fer
um þær mannlegum hönd-
um. Afstaða höfundar til
mannsins er hin giftusam-
legasta sem verða má.” Á
öðrum stað vitnar Hallberg
enn til Bjarna, þar sem segir
„og raunar hygg ég að feg-
urri prósi sé ekki ritaður hér
á landi” en í skáldverkum
Indriða. Tvær af sögum
Ritsafnsins hafa verið kvik-
myndaðar.
9 bindi.
Reykholt.
Verð: 19.400 kr.
-Nóbclsskuildið
HALLDÓR y/'
LAXNESS
SALKA VALKA
Halldór Laxness
Salka Valka var fyrsta bók
Halldórs Laxness sem aflaði
honum frægðar utan íslands.
Hún hefur verið með vinsæl-
ustu bókum skáldsins, leik-
verk hafa verið samin eftir
henni og sagan hefur verið
kvikmynduð. Salka Valka
hefur alla tíð höfðað sterkt til
þeirra sem hafa kynnst henni
á bók - ekki síður en hún
hefur sterk áhrif á þá sem
deila með henni örlögum í
sögunni. Salka Valka hefur
verið uppseld um skeið og er
nú endurútgefin.
453 blaðsíður.
Vaka-Helgafell.
Verð: 3.590 kr.
ÞRÁINN BERTELSSON
SIGLA
HIMINFLEY
SIGLA HIMINFLEY
Þráinn Bertelsson
Sigla himinfley er skáldsaga
sem gerist í Vestmannaeyj-
um. Viðhorf gamalla og nýrra
tíma takast á. Undiralda sög-
unnar skolar á land gömlum,
óútkljáðum málum sem ekki
verður lengur umflúið að
leiða til lykta. Samkvæmt sí-
gildri, íslenskri frásagnarhefð
er sögumaður nafnlaus, ferð-
ast um að tjaldabaki og
bregður upp myndum af fólki
og atburðum sem eiga sér
fyrirmyndir í íslensku þjóðlífi í
þúsund ár.
Þetta skáldverk Þráins
Bertelssonar er í senn upp-
gjör og sáttargjörð persóna
og kynslóða, listilegur skáld-
skapur, en umfram allt
skemmtileg lesning.
Þráinn Bertelsson er kvik-
myndastjóri og rithöfundur.
Skjaldborg hf.
Verð: 2.990 kr.
SOGAR SVELGUR
Þorvarður Helgason
Ný hörkuleg skáldsaga Þor-
varðar Helgasonar um brýn-
ustu og alvarlegustu vanda-
mál íslensks nútímasamfé-
lags. Hér er fjallað um hin
hræðilegu gjaldþrot heimil-
anna, lánaokrið, miskunnar-
lausar innheimtur og uppboð
á aleigunni, hvernig þessi ó-
sköp verka á líf og tilveru
fólksins. Skáldsögur Þor-
varðar eru „tilraun um mann-
inn”. Hann lýsir hér nokkrum
ólíkum hjónum sem missa
fótanna, hvernig þau bregð-
ast ólíkt við, sum brotna nið-
ur, önnur leiðast í sjálfsbjarg-
arviðleitni inn á alvarlegar
brautir og selja sál sína. Hér
koma líka við sögu harð-
neskjulegir bankastjórar og
atvinnurekendur og hræ-
gammar lagakrókanna með
snjallri lokafordæmingu Jóns
Vídalíns yfir svívirðunni.
190 blaðsíður.
Fjölvi-Vasa.
Verð: 2.480 kr.
STÚLKAN í SKÓGINUM
Vigdís Grímsdóttir
Stúlkan í skóginum er djúp-
rætt og hnitmiðað skáldverk,
gætt stíltöfrum ofnum af
orðkynngi, fegurð og misk-
unnarleysi. Áhrifamesta verk
Vigdísar Grímsdóttur.
Iðunn.
Verð: 2.980 kr.
SVARTIR BRÚÐAR-
KJÓLAR
Kristín Ómarsdóttir
Fyrsta skáldsaga Kristínar
Ómarsdóttur, sem er einn af
okkar framsæknustu og
frumlegustu höfundum. Hér
er lýst ástinni í fjölskrúðug-
um myndum í texta sem lík-
ist engu sem komið hefur út
á íslandi. Hún er grimm, Ijúf,
Ijót, falleg, gróf, fínleg -
28