Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Blaðsíða 36
Þýdd skáldverk
NÝJERÚSALEM
Antti Tuuri
Þýðing: Njörður P.
Njarðvík
Með samspili sögubrota af
bruggurum og kynlegum
kvistum og lýsinga á lífi mál-
lausra innflytjenda á útnár-
um Kanada skapar höfund-
urinn hrífandi skáldsögu.
Iðunn.
Verð: 2.480 kr.
'WtM'öurfn
Orðstít'
ciö veði
ORÐSTÍR AÐ VEÐI
Theresa Charles
Þýðing: Skúli Jensson
Hveitibrauðsdagar þeirra
höfðu verið dýrlegir. En þeg-
ar þau komu aftur til starfa
sinna á St. Chad sjúkrahús-
inu sóttu vandamálin að
þeim Patrick og Inez. Þar
gengu sögusagnir og slúð-
ur. Sagt var að Christopher
Denyer læknir elskaði Inez
ennþá - og Patrick var æva-
reiður. Og ekki bætti það úr
að orðstír Patricks var ógn-
að af tilraunum Palmer-
systranna til að kúga hann.
Það var útilokað að láta
undan kúguninni. Saman
yrðu þau að berjast gegn
slúðursögunum.
176 blaðsíður.
Skugqsjá.
Verð: 1.980 kr.
ÓDYSSEIFUR I
James Joyce
Þýðing: Sigurður A.
Magnússon
Skáldsaga James Joyce,
Ulysses, sem í íslenskri
þýðingu Sigurðar A. Magn-
ússonar hefur hlotið heitið
Ódysseifur, er án vafa fræg-
asta skáldsaga 20. aldar.
Allt frá því hún kom fyrst út í
París fyrir 70 árum hefur
hún verið talin marka
straumhvörf í vestrænum
bókmenntum, enda verkar
hún „á nútímamenn einsog
Fjallið eina” (Halldór Lax-
ness). Nú er hún loks komin
á íslensku, þessi djarfa,
lærða, fyndna og áhrifa-
mikla saga um sólarhring í
lífi nokkurra Dyflinnarbúa
árið 1904.
376 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 2.980 kr.
ÓVINURINN
Desmond Bagley
Þýðing: Þorbjörg
Ólafsdóttir og Ólafur
Gíslason
Malcolm Jaggard er ráðu-
nautur í efnahagsmálum, en
jafnframt er hann í leyni-
þjónustunni og það án vit-
undar unnustu sinnar. Jagg-
ard lendir í hinum ótrúleg-
ustu ævintýrum og mann-
raunum, enda er það æði
margt sem kemur lesandan-
um á óvart í þessari frábæru
spennusögu eftir sagna-
meistarann Desmond
Bagley.
274 blaðsíður.
Suðri.
Verð: 1.890 kr.
MARTIN ANDERSEN NEX0
PELLI SIGURSÆLI
-DÖGUN
4. bók
Martin Andersen Nexo
Þýðing: Gissur Ó.
Erlingsson
Dögun er fjórða og síðasta
bindið af höfuðverki danska
rithöfundarins Martins And-
ersen Nexo um Pella sigur-
sæla, bókmenntaverki sem
tvímælalaust ber að flokka
með stærstu og merkileg-
ustu skáldritum heimsbók-
menntanna á sínu sviði, þ.e.
um baráttu alþýðunnar til
efnislegra framfara og and-
legs þroska.
Þetta bindi hefst á lausn
Pella úr áralangri fangelsis-
vist þar sem hann hafði af-
plánað refsidóm fyrir „pen-
ingafölsun”, tylliástæðu ráð-
andi afla þjóðfélagsins til að
kveða niður rödd sem orðin
var óþægur Ijár í þúfu þeim
sem völdin höfðu og pening-
ana.
Hér er lýst þeim hartnær
óyfirstíganlegu hindrunum
sem verða á vegi þess sem
dæmdur hefur verið frá
eignum og æru og þarf að
klífa þrítugan hamarinn til
að komast upp í samfélag
„heiðarlegs” fólks að nýju,
hamar þar sem hætt er við
að undan hrynji í hverju
spori og klífandinn missi
endanlega fótanna og eigi
sér ekki viðreisnar von, eins
og svo mörg dæmi sanna.
224 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 2.890 kr.
PÍRÖNURNAR
Harold Robbins
Höfundur er margfaldur
metsöluhöfundur í Ameríku.
í vandaðri skáldsagnaritun
framkvæmir hann hverju
sinni ítarlegar rannsóknir á
viðfangsefni sínu, sem oft
fjallar um siðspillingu auð-
stéttarinnar. Hér fer hann
inn í uppsprettur auðsins,
Amasonskóga, þar sem eit-
urlyfjabransinn á upptök sín
36