Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Side 51
Bækur almenns efnis
öllum aldri. Sannkallað
krydd í tilveruna. Fyrri bók
þeirra Og þá htó þingheimur
kom út 1990 og var met-
sölubók.
208 blaðsíður.
Hörpuútgáfan.
Verð: 2.980 kr.
ENN MEIRA SKÓLASKOP
Guðjón Ingi Eiríksson
og Jón Sigurjónsson
Höfundar hinna vinsælu
skólaskops-bóka hafa enn
safnað saman gamansög-
um úr skólalífinu - og notið
við það aðstoðar fjölda fólks
með gott skoþskyn. í þessu
fjórða bindi fá að sjálfsögðu
allir sinn skammt, jafnt
kennarar sem nemendur.
Ekki er að efa að bókin hlýt-
ur góðar viðtökur eins og
hinar fyrri sem þótt hafa
sprenghlægilegar.
Enn meira skólaskop kitl-
ar einnig hláturtaugarnar.
Svo mikið er víst.
80 blaðsiður.
Æskan.
Verð: 1.490 kr.
FERÐ ÁN ENDA
Ari Trausti Guðmundsson
í þessa bók hefur höfundur
safnað saman miklum fróð-
leik um stjörnur, sólir, vetr-
arbrautir og stjörnufræði al-
mennt. Bókin er skrifuð á
góðu alþýðlegu máli og
skreytt fjölmörgum Ijós-
myndum og teikningum.
Ferð án enda er ætluð al-
menningi og skólafólki jafnt
sem áhugamönnum um
stjörnufræði.
150 blaðsíður.
ísafold.
Verð: 1.980 kr.
/>nnttr/»ní)#r»
FINNUR JÓNSSON
í Listasafni íslands
Ýmsir höfundar
Útgáfustjóri Karia
Kristjánsdóttir
Finnur Jónsson varð fyrstur
íslenskra myndlistarmanna
til að hasla sér völl sem
abstraktmálari og á að baki
óvenjulangan og fjölbreyti-
legan listferil.
í þessu riti er fjallað um
átta meginverk Finns. Þar er
einnig birt viðtal við lista-
manninn, ritaskrár og ítar-
legt yfirlit um ævi hans og
sýningaferil, auk fjölda
mynda, svart-hvítra og í lit.
151 blaðsiða.
Listasafn íslands
Verð: 2.730 kr.
FJARRI HLÝJU
HJÓNASÆNGUR
Öðruvísi íslandssaga
Inga Huld Hákonardóttir
Myndskreytt sagnfræðirit
sem fjallar um sögu kynlífs
og fjölskyldu á íslandi frá
uþphafi og fram á okkar öld.
Sagt er frá lagaákvæðum á
borð við Stóradóm sem
snerta samlíf karls og konu,
og eru raktar fjölmargar ör-
0
p
I
Ð
lagasögur íslenskra kvenna
og karla sem stundum end-
uðu líf sitt í Drekkingarhyl
eða undir öxinni. Bókin
byggir á mjög yfirgripsmikilli
rannsókn og er einkar lipur-
lega skrifuð. Þetta er öðru-
vísi íslandssaga.
300 blaðsíður.
Mái og menning.
Verð: 2.980 kr.
FLAKKAÐ UM 5 LÖND
Kjartan Ólafsson
Einn víðförlasti íslendingur
sem nú er uppi segir frá
ferðalagi og kynnum sínum
af fimm þjóðum, íran,
Ceylon (Sri Lanka), Afgan-
istan, Nepal og Pakistan.
Frásagnarstíll og einstök
snilli í ritun íslensks máls
gerir þessa bók einstaka.
200 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 2.990 kr.
sunnudaga til kl. 22
mánudaga tilkl. 22
þriðjudaga tilkl. 22
miðvikudaga til kl. 22
fimmtudaga tilkl. 22
föstudaga tilkl. 22
laugardaga tilkl. 22
Starfsfólk okkar fær a.m.k. 1 hvíldar-
dag í viku hverri.
I
s
A
F
0
L
D
51