Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Blaðsíða 52
Bœkur almenns efnis
FRAM UM VEG
Hestabók
Sigurgeir Magnússon
Frásagnir af hestum og af-
reksverkum hesta frá siða-
skiptum fram til okkar daga.
Prýdd frábærum teikning-
um.
Um 270 blaðsíður.
Höfundur.
Verð: 2.870 kr.
FRELSA OSS
prc? á II I II
FRELSA OSS FRÁ ILLU
Gunnar Þorsteinsson
í bókinni Frelsa oss frá illu
fjallar Gunnar Þorsteinsson
um Votta Jehóva og Morm-
óna. Hann gerir grein fyrir
uppruna og sögu þessara
hreyfinga og rekur helstu
kenningar þeirra og ber
saman við kenningar Ritn-
ingarinnar.
220 blaðsíður.
Ax-forlag.
Verð: 1.790 kr.
FUGLAR (3. HLUTI)
Óskar Ingimarsson
og Þorsteinn Thorarensen
Undraveröld dýranna er án
efa yfirgripsmesta verk á ís-
lensku um allt dýraríkið og
fagurlega myndskreytt. Áður
var það á vegum þóka-
klúbbsins Veraldar, en nú
heldur Fjölvi áfram útgáf-
unni. Út voru komin sjö
bindi, fimm um sþendýr og
tvö um fugla. Nú kemur átt-
unda bindið og er þar með
lokið þriggja binda bálki um
fuglana. Hér er lýst spörfugl-
um, stærsta ættbálki fugla,
yndislegum sumargestum
okkar, en sérstök áhersla er
lögð á að lýsa ferðum flæk-
inga og förufugla sem eru
að reyna að nema hér land,
oft með aukinni skógrækt.
Mörg hundruð litmynda.
180 blaðsfður.
Fjölvi-Vasa.
Verð: 3.280 kr.
FULLHUGAR Á
FlMBIfLSLÓÐUM
li r CrirHlnnil’ifluelitit
FULLHUGARÁ
FIMBULSLÓÐUM
Þættir úr Grænlands-
fluginu
Sveinn Sæmundsson
Bókin hefur að geyma frá-
sagnir af merkum þætti í ís-
lenskri flugsögu. Um langt
árabil hafa íslendingar
stundað flug til Grænlands
og áttu þar með ríkan þátt í
að rjúfa einangrun þessara
granna okkar í vestri. Oft
voru aðstæður í Grænlands-
fluginu ótrúlega erfiðar, ekki
síst í sjúkraflugi þegar teflt
var á tæpasta vað enda oft
líf að veði. Margar frásagnir
í þókinni taka öllum spennu-
sögum fram. Þær eru ótrú-
legar en samt sannar. Þetta
eru frásagnir af fullhugum
sem létu sér það ekki fyrir
þrjósti þrenna að fljúga á
fimbulslóðir. Oft hékk líf
þeirra á bláþræði en auðna
réði að álltaf komu þeir heilir
heim.
216 blaðsíður.
Fróði hf.
Verð: 2.980 kr.
GALDRAR Á ÍSLANDI
Matthías Viðar Sæmunds-
son sá um útgáfuna
Þetta íslenska handrit frá
galdraöldinni, sem geymt er
í Stokkhólmi, er merkasta
galdrabók sem varðveist
hefur og var á sínum tíma
notuð hér sem kennslubók í
galdri. Auk bókarinnar eru
hér rækilegar skýringar við
hvern galdur og ítarlegur
formáli sem Matthías Viðar
ritar. Ómetanleg heimild og
bráðskemmtileg lesning.
Almenna bókafélagið hf.
Verð: 3.495 kr.
GEGGJAÐ GRÍN UM
SKOKKARA
GEGGJAÐ GRÍN UM
SKÓLALÍFIÐ
Bill Stott og David Pye
Þýðing: Jón Daníelsson
Sprenghlægilegur texti og
teikningar gera þessar bæk-
ur ógleymanlegar.
76 og 92 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 790 kr. hvor bók.
GETTU NÚ
Spurningabók
Ragnheiður Erla
Bjarnadóttir
Hér eru 700 sþurningar fram
settar og flokkaðar með
svipuðum hætti og í hinni sí-
vinsælu spurningakeppni
framhaldsskólanna. Þær eru
í þrem þyngdarflokkum og
henta því öllum, börnum og
fullorðnum. Spurningin, sem
þú gatar á, hvort sem þú ert
sérfræðingur eða skóla-
krakki - hún er HÉR.
138 blaðsíður.
Hörpuútgáfan.
Verð: 1.480 kr.
GRÁGÁS
Grágás, lagasafn íslenska
þjóðveldisins, lýsir stjórnar-
háttum íslendinga og dag-
legu lífi frá landnámi til ofan-
verðrar 13. aldar. Lögþætt-
irnir eru mikilvæg heimild
um aldarfar, atvinnuhætti og
52