Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Blaðsíða 60
Bækur almenns efnis
ar Spurningakeppnin þín
sem kom út í fyrra og hlaut
afar góðar viðtökur. I henni
eru 600 skemmtilegar og
fræðandi spurningar og gát-
ur sem enginn fróðleiksfús
keppnismaður ætti að láta
fram hjá sér fara. Spurning-
arnar eru samdar þannig að
vel hentar að leggja þær fyr-
ir tvö lið eða tvo einstaklinga
sem keppa - því að jafnan
eru tvær í senn um áþekk
efni og álíka léttar eða
þungar...
Spurningakeppnin okkar
hæfir vel á hvers kyns
mannamótum. Hún er tilval-
in fjölskyldubók.
132 blaðsíður.
Æskan.
Verð: 1.490 kr.
STANGAVEIÐIN1992
Þaa tengu maríulaiinn
Fengsælustu voiðiárnjr
Starrstu laiamlr
Vclðlsögur tra sumrlnu
Allar helstu tréttimar
STANGAVEIÐIN 1992
Gunnar Bender og
Guðmundur Guðjónsson
Þetta er 5. árið sem Stanga-
veiðin kemur út, og er í
þessari útgáfu nýmæli, við-
töl við 30 laxveiðimenn auk
þess sem birtar eru veiði-
sögur, listi yfir fengsælustu
árnar, stærstu laxana og
margt fleira. Bókin er nauð-
syn öllum veiðiáhugamönn-
um og sem fyrr prýdd fjölda
mynda.
200 blaðsíður.
ísafold.
Verð: 2.850 kr.
STÓRA HESTABÓKIN
Elwyn Hartley Edwards
Eitt fallegasta verk sem út
ST( )HA
'» HESTABOKIN
hefur komið um hesta og
hestakyn: Sögu þeirra, ein-
kenni og útlit. Yfir 80 þekkt-
ustu hestakynjum heims er
lýst í glæsilegum Ijósmynd-
um og greinargóðum texta.
Sérkaflar eru um meðferð
og umhirðu hesta og um
tengsl manns og hests í nú-
tíð og fortíð.
Iðunn.
Verð: 4.880 kr
SVAVAR GUÐNASON
(1909-1988)
Ýmsir höfundar
Ritstjóri: Bera Nordal
Þýðing: Aðalsteinn
Ingólfsson og Hjörtur
Pálsson
Þessi bók um Svavar
Guðnason er fyrsta heild-
stæða ritið sem komið hefur
út um hann og gefur lang-
þráða innsýn í líf og starf
eins ágætasta listamanns
þjóðarinnar. Auk fjölmargra
litmynda eru í bókinni grein-
ar um Svavar, viðtöl, frá-
sagnir og Ijóð eftir hann, svo
og ritaskrár og ítarlegt yfirlit
um ævi hans og sýningafer-
il. Bókin er á íslensku og
ensku.
206 blaðsíður.
Listasafn íslands.
Verð: 3.810 kr.
SVIPMYNDIR ÚR
RÉTTARSÖGU
Dr. Páll Sigurðsson
prófessor
Þessi bók hefur að geyma 9
ritgerðir um margvísleg rétt-
arsöguleg efni. Sumar birt-
ast hér í fyrsta skipti á prenti
en aðrar, sem hafa birst
áður, í endurskoðaðri gerð.
M.a. Lagastefnur gegn látn-
um mönnum, þegar Bjarni
sýslumaður Halldórsson
stefndi Lavrentz amtmanni
dauðum. Brúðarrán og
brúðarkaup, þegar Oddur V.
Gíslason „rændi” brúði sinni.
300 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 2.990 kr.
SYKURMOLARNIR
Árni Matthíasson
Loksins er bókin um Sykur-
molana komin! Bókin segir
frá ferli heimsfrægustu
hljómsveitar íslands fyrr og
síðar og dregur upp lifandi
mynd af lífi einstaklinganna
á sviði sem utan. Bókin er
ríkulega myndskreytt.
160 blaðsíður.
?Nf. " MATTHJ ASSON
Örn og Örlygur.
Verð: 2.980 kr.
crcycct. dí-
REYKJAVÍK
SÖGUR ÚR REYKJAVÍK
Ásgeir Hannes Eiríksson
Bókin er kímnisögur og
hnyttin tilsvör, allt tengt
nöfnum þekkts fólks. Höf-
undur hefur sjálfur kynnst
flesfum eða öllum sem
koma við sögu. Frá þessu
er sagt í hinum velþekkta
skopstíl höfundar. Hér koma
við sögu menn við kaffiborð-
in á Hótel Borg og víðar,
stjórnmálamenn á Alþingi
og utan þess, kennarar og
nemendur í Verslunarskól-
anum, reykvískir glaumgos-
ar, kynlegir kvistir.
Almenna bókafélagið hf.
Verð: 2.495 kr.
SÖGUSPEGILL
Afmælisrit Árbæjarsafns
Tuttugu og einn höfundur.
Ritstjóri Helgi M.
Sigurðsson
60