Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Side 66
Ævisögur og endurminningar
Sú bók sem hér birtist,
Ebenezer Henderson og
Hið íslenska Biblíufélag, er
skráð af séra Felix Ólafssyni
sem um árabil hefur rann-
sakað ævi og störf þessa
merka Skota. Bókin segir frá
uppruna hans, áformum og
atvikum sem leiddu til þess
að hann kom til íslands eftir
að hafa dvalið og starfað á
Norðurlöndum, Rússlandi
og víðar. Bókin segir einnig
frá ferðum hans um ísland
árin 1814 og 1815 í því
skyni að koma Biblíunni á
framfæri við landsmenn, en
hún hafði þá reynst ófáan-
leg um langt skeið. Dvöl
hans hér var kveikjan að
stofnun Hins íslenska Bibl-
íufélags sem er elsta starf-
andi félag á íslandi.
160 blaðsíður.
Hið íslenska Biblíufélag.
Verð: 1.900 kr.
EYRNATOG OG
STEINBÍTSTAK
Ævisaga Guðbrands
Hlíðar
Ásgeir Guðmundsson
Þetta er fyrsta ævisaga
dýralæknis sem út kemur á
íslandi. Guðbrandur Hlíðar
stundaði nám í Danmörku á
stríðsárunum og komst í
kast við þýsku leyniþjónust-
una og varð að sitja í bresk-
um fangelsum grunaður um
njósnir í þágu Þjóðverja.
Guðbrandur stundaði dýra-
lækningar í Eyjafirði og í
Skagafirði og segir hann frá
reynslu sinni við þau störf.
Óvenjuleg lífsreynslusaga
athyglisverðs manns.
Skjaldborg hf.
Verð: 2.990 kr.
Frumleg
hreinskilni
l’órbvruur l»rtrðurs«n
FRUMLEG HREINSKILNI
Þórbergur Þórðarson og
menningin á mölinni
í byrjun aldar
Helgi M. Sigurðsson
Unnendur Þórbergs Þórðar-
sonar finna hér fróðlega og
skemmtilega umfjöllun um
meistarann, frá því Ofvitinn
skilur við lesandann og að
því er Bréf til Láru birtist.
Árin 1912-24 voru mótunar-
og umbrotaár í lífi Þórbergs
og í mörgu tilliti frjóasta
tímabilið á æviskeiði hans. í
bókinni segir frá þessu. Höf-
undurinn, Helgi M. Sigurðs-
son, ritstýrði (1986-87) út-
gáfu á áður óbirtum ritsmíð-
um Þórbergs og vakti hún
verðskuldaða athygli.
117 blaðsíður.
Hið íslenzka
bókmenntafélag.
Verð: 2.590 kr.
JV vj i|
' g II ð I) c r g ii r
1» e r g s 8 O 11
— M E T $ Ö L U B Ó K
_ . 6 « * K » 1 * T 1 N k l V;;:;;T T'"
uþp með neina mélkisu-
hegðun. Útkoman er ó-
venjuleg og bráðskemmtileg
samtalsbók.
Vaka-Helgafell.
Verð: 2.980 kr.
GUÐBERGUR BERGSSON
METSÖLUBÓK
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
ræðir við skáldið
Þetta er ekki ævisaga - og
þó. Engin ættfræði, engin
játning, hvorki kvart né
kvein. Skáldið án upphafn-
ingar, án niðurlægingar. Ó-
gleymanlegar lýsingar á
reynslu bernskunnar í
Grindavík, mótunarárum í
Reykjavík og á Spáni, leið-
inni til skáldskapar. Hárbeitt-
ar orðræður um íslenskan
veruleika og stjórnmál,
heimsmenningu og heimótt-
arskap. Prýdd fjölda mynda.
232 blaðsíður.
Forlagið.
Verð: 2.980 kr.
GUÐNIREKTOR
Enga mélkisuhegðun,
takk!
Ómar Valdimarsson
Sjaldan hefur verið logn-
molla kringum Guðna Guð-
mundsson rektor Mennta-
skólans í Reykjavík. Ómar
Valdimarsson blaðamaður
skráir sögu Guðna en kallar
jafnframt til vitnis samferða-
menn frá ýmsum tímum
sem rifja upp eftirminnilegar
sögur af honum. Guðni er
„tekinn á teppið" og lætur
Ómar rektorinn ekki komast
HJÁ BÁRU
Endurminningar Báru Sig-
urjónsdóttur kaupkonu
Ingólfur Margeirsson
Heiðarleg og spennandi
ævisaga sem sviptir hulunni
af litríku lífi goðsagnaper-
sónunnar Báru Sigurjóns-
dóttur og færir lesandann í
mikil örlög, dramatíska at-
burði og leyndustu sálar-
átök.
Meistaralega skrifuð af
Ingólfi Margeirssyni, sem er
landsþekktur fyrir ritun ævi-
sagna, m.a. metsölubók-
anna Lífsjátning - Endur-
minningar Guðmundu Elías-
dóttur, og Lífróður - ævi-
sögu Árna Tryggvasonar
leikara sem sló öll sölumet í
fyrra.
66