Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Qupperneq 67
Ævisögur og endurminningar
______...««__..^^^_______—__
352 blaðsíður.
Örn og Örlygur.
Verð: 2.980 kr.
l Horfttijl londs
Úrsjódí bemskuminninga höfimdar
HORFT TIL LANDS
Þorsteinn Stefánsson
Þorsteinn Stefánsson rithöf-
undur sem lengstum hefur
búið í Danmörku og skrifað
bækur sínar á framandi
tungum, segir í þessari bók
sinni nokkuð af athyglis-
verðri ævi sinni. í formála
segir: „Þorsteinn var borinn
og barnfæddur árið 1912 að
Nesi í Loðmundarfirði aust-
ur, en sá fjörður er nú kom-
inn í eyði. Lífsbaráttan í
Loðmundarfirði var hörð í
upphafi þessarar aldar eins
og víðast hvar í dreifðum
byggðum íslands og oft
skammt milli lífs og dauða.
Óhjákvæmilega settu lífs-
kjörin í uppeldinu sitt mark á
allt lif þess fólks sem kynnt-
ist þessari baráttu, jafnvel
þótt því tækist að hefja sig
yfir erfiðleikana og sjá þá
síðar á ævinni frá öðru sjón-
arhorni.
Þorsteinn var snemma
staðráðinn í því að verða rit-
höfundur og setti sér meðal
annars að sinna skáldskap-
argyðjunni þótt ekki væri
nema örstutta stund á dag.
En brauðstritið og skyldurn-
ar leyfðu þó tæpast slíkan
munað. Þó tókst Þorsteini
að koma út fyrstu bók sinni,
Frá öðrum hnetti, árið 1935,
en sama ár stefndi Þor-
steinn fleyi sínu til Danmerk-
ur.
I Danmörku kom út bók
hans Dalen árið 1942 og
fyrir þá bók fékk hann H.C.
Andersen verðlaunin. Þessi
verðlaun voru veitt höfund-
um undir 35 ára aldri og var
þeim fyrst úthlutað árið
1930 í tilefni 125 ára afmæl-
is H.C.Andersen.”
240 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 2.480 kr.
MMHMMBMnUHMMMMMNMMi
SvamrGests
HUGSAÐ UPPHÁTT
/Gvfininningar
HUGSAÐ UPPHÁTT
Æviminningar Svavars
Gests skráðar af honum
sjálfum
Hvernig bregðast menn við
þegar þeir sitja fyrir framan
lækni og fá þann úrskurð að
þeir séu haldnir illkynja sjúk-
dómi? Sjálfsagt misjafnlega
en ætli margir líti þá ekki í
sjónhendingu yfir ævi sína
og jafnvel hugsi upphátt.
Svavar Gests er löngu
landskunnur maður. Um ára-
bil var hann einn vinsælasti
skemmtikraftur landsins og
hljómsveit hans naut fá-
heyrðra vinsælda. Einnig var
hann og er mjög vinsæll út-
varpsmaður. í bókinni Hugs-
að upphátt rekur Svavar
æviminningar sínar. Hann
segir frá ótrúlega erfiðum
bernskuárum, rekur tónlistar-
feril sinn og hljómplötuútgáfu
og segir einstaklega
skemmtilega og opinskátt
frá mönnum, sem hann hef-
ur kynnst, og eftirminnileg-
um atvikum.
291 blaðsíða.
Fróði hf.
Verð: 2.980 kr.
í KRÖPPUM SJÓ
Helgi Hallvarðsson
skipherra segir frá
sægörpum og svaðil-
förum
Atli Magnússon
Helgi Hallvarðsson skip-
herra hefur starfað hjá
Landhelgisgæslunni í hálfan
fimmta áratug og sannar-
lega hefur margt á dagana
drifið, ekki síst í harðskeytt-
um landhelgisstríðum, bæði
á sjó, í lofti og á landi. Þessi
bók er handa öllum sem
hafa ánægju af spennu og
seið sjómannalífsins.
246 blaðsíður.
Örn og Örlygur
Verð: 2.880 kr.
“Nóbelsskáldid-
HALLDÓR-'
LAXNESS
ÍTÚNINU HEIMA
Halldór Laxness
í túninu heima er fyrsta bók-
in í flokki fjögurra minninga-
sagna Halldórs Laxness.
Bókin kom fyrst út árið
1975. Túnið er í Laxnesi í
Mosfellsdal sem er honum í-
mynd liðins tíma. Skáldið
lýsir fyrstu tólf til þrettán
mótunarárum sínum svo að
þau standa Ijóslifandi fyrir
hugskotssjónum lesandans.
Hér er ekki einungis um að
ræða persónusögu Hall-
dórs, menningarsögu og
aldarspegil, heldur eru
þessar angun/æru frásagnir
bókmenntir í hæsta gæða-
flokki.
249 blaðsíður.
Vaka-Helgafell.
Verð: 2.890 kr.
ÍÞRÓTTASTJÖRNUR
Heimir Karlsson
Einn þekktasti iþróttafrétta-
maður landsins ræðir við
þrjá þekkta íþróttamenn,
sem segja frá ferli sínum allt
frá barnæsku fram til dags-
ins í dag. Allir eiga þeir það
sammerkt að hafa skarað
fram úr í sinni grein, Atli Eð-
valdsson í knattspyrnu, Pét-
ur Guðmundsson í körfu-
bolta og Sigurður Sveinsson
í handbolta.
Almenna bókafélagið hf.
Verð: 2.695 kr.
JÓN ÞORLÁKSSON
FORSÆTISRÁÐHERRA
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson
Ævisaga eins merkasta
stjórnmálamanns og frum-
kvöðuls landsins á fyrrihluta
aldarinnar. Jón Þorláksson
var fyrsti formaður Sjálf-
67