Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Page 69
Ævisögur og endurminningar
forseti ísiands ritar
formála
Halldór Laxness hefur lifað
að sjá veröldina breyta um
ásýnd, sjá landa sína af-
klæðast vaðmálsfötunum og
sigla inn í strauma sem tím-
inn hefur leikið á margan
veg. í texta þessarar áhuga-
verðu bók er varpað Ijósi á
margbreytilegt lífshlaup
Halldórs Laxness, mannsins
sem frá barnæsku var stað-
ráðinn í því að verða skáld,
- skáld stórra verka. Meðal
annars er vitnað í bréf hans
til ættingja og vina. Hér eru
birtar um 400 Ijósmyndir frá
ferli Halldórs Laxness, sem
safnað hefur verið frá inn-
lendum og erlendum aðilum
en uppistaða bókarinnar
kemur úr myndasafni Hall-
dórs og fjölskyldu hans. Stór
hluti myndanna hefur ekki
komið áður fyrir almenn-
ingssjónir.
Bókin er gefin út í tilefni af
níræðisafmæli Halldórs Lax-
ness á þessu ári.
Vaka-Helgafell
Verð: 3.760 kr.
MINN HLÁTUR ER SORG
Líf Ástu Sigurðardóttur
myndlistarmanns og
skálds
Friðrika Benónýs
Hún var skapheit og ástríðu-
full listakona sem bjó yfir
miklum hæfileikum, en Ijós
og skuggar tókust á um líf
hennar og sál. Hún var dáð
og fyrirlitin, elskuð og for-
dæmd. Hennar biðu um síð-
ir bitur örlög. í þessari ein-
stæðu ævisögu er lífs-
þorsta, brestum og óblíðri
ævi Ástu Sigurðardóttur lýst
af næmri samkennd og inn-
sæi.
Iðunn.
Verð: 2.980 kr.
OG ÁIN NIÐAR
Sögur og sitthvað
um velðar
Kristján Gíslason
Hér fá íslenskir stangveiði-
menn bæði skemmtilega og
notadrjúga leiðsögn að ánni.
Höfundur rifjar upp ævintýri
í laxveiðiám landsins og
gefur góð ráð um áhöld og
útbúnað veiðimannsins. í
bókinni er ítarlegur kafli um
íslenskar laxaflugur ásamt
nákvæmum uppskriftum og
litmyndum af flugunum.
218 blaðsíður.
Forlagið.
Verð: 2.980 kr.
OG NÁTTÚRAN HRÓPAR
OG KALLAR
Ævisaga Guðlaugs
Bergmann
Óskar Guðmundsson
Einstaklega opinská, hressi-
leg og gustmikil ævisaga
hins litríka athafna- og lífs-
nautnamanns Gulla í Karna-
bæ, þar sem m.a. er brugð-
ið upp ógleymanlegum
myndum frá rokk- og hippa-
árunum. Sagt er frá sam-
skiptum við háa og lága,
karla og konur, og ekkert
dregið undan; skyggnst um
rangala íslensks athafnalífs
og breyskleika mannlegs
eðlis.
Iðunn.
Verð: 3.480 kr.
RADDIR í GARÐINUM
Thor Vilhjálmsson
Thor Vilhjálmsson bregður
hér upp ótal eftirminnilegum
svipmyndum af forfeðrum
sínum og mæðrum í báðar
ættir, segir frá kynnum sín-
um af Thor Jensen og hin-
um þjóðfrægu sonum hans
og rekur sögur af erfiðri lífs-
baráttu norður í Þingeyjar-
sýslu. Tónninn er mildur í
þessari hlýlegu bók þar sem
saman fer skáldlegur texti
og næmi fyrir örlögum fólks.
200 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 2.880 kr.
RASSINN Á SÁMI
FRÆNDA
Richard Hillyards
Þýðing: Jón Daníelsson
Lífsreynslusaga Bandaríkja-
mannsins Richard Hillyards,
friðarsinnans sem gekk í
herinn. Hann hefur frá
mörgu að segja og skefur
ekki utan af lýsingum sín-
um. Hann hefur ófagra sögu
að segja af samskiptum sín-
um við bandaríska herinn
þar sem hann segir hvern
mann sleikja rassinn á
næsta manni fyrir ofan í
virðingarstiganum. Hillyard
gegndi lengst af stöðu
fréttamanns í hernum og
kynntist ýmsu því sem öðr-
um er hulið. Hann segir líka
frá uppvexti sínum í Kali-
forníu, eiturlyfjaneyslu
hippatímabilsins og fjöl-
mörgu fleiru. Kímnin skín
alls staðar í gegn. Hillyard
er búsettur hérlendis og
kvæntur íslenskri konu.
Stórfróðleg bók og bráð-
skemmtileg.
260 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 2.480 kr.
REISUBÓK
Jón Ólafsson Indíafari
Reisubók Jóns markar tíma-
mót í íslenskri bókmennta-
sögu og leggur grunn að
nýjum bókmenntagreinum,
sjálfsævisögunni og ferða-
bókmenntunum. Jón sneri
heim úr heimsreisum sínum
snauður af veraldarauði en
með dýrmæta veislu í far-
69