Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Qupperneq 74
Handbœkur
—
ÍSLENSKA LYFJABÓKIN
Helgi Kristbjarnarson
Magnús Jóhannsson
Bessi Gíslason
Handbók fyrir almenning um
lyf. Bókin kemur nú út í
þriðja sinn, aukin og endur-
skoðuð, og hafa m.a. bæst
við á þriðja hundrað ný lyf
frá síðustu útgáfu. í bókinni
eru ítarlegar upplýsingar um
meira en eitt þúsund lyf sem
seld eru á íslandi. Lyfjunum
er raðað í stafrófsröð og
greint frá verkun þeirra, inni-
haldsefnum, aukaverkunum
og öðru sem fólk þarf að
vita. Einnig eru í bókinni
fræðslukaflar um ýmsa lyfja-
flokka og margvíslegur ann-
ar fróðleikur um lyf og lækn-
ingar.
624 blaðsíður.
Lyfjabókaútgáfan.
Verð: 2.460 kr.
ARmtmUKUí TQi I: \|Q I/ ,\ n
JÚHANNSDOrnR IOLCINOIS./AK
ÍÆKNINGAJURTIR
I J SÖFNUN ÞFIKRA, NOTKUN OG ÁHRIF
Einnig
urval
crlcndra
jurta
ÍSLENSKAR
LÆKNINGAJURTIR
Söfnun þeirra, notkun
og áhrif
Arnbjörg Linda
Jóhannsdóttir
Einstök handbók um ís-
lenskar jurtirtil lækninga, út-
breiðslu þeirra og kjörlendi,
tínslu, söfnun ásamt blönd-
un þeirra og notkun, áhrifum
og verkan á sjúkdóma og
kvilla í mannslíkamanum. A
annað hundrað Ijósmyndir.
240 blaðsíður.
Örn og Örlygur.
Verð: 2.980 kr.
ÍSLENSKIR FISKAR
GunnarJónsson
Ný og aukin útgáfa hins
mikla undirstöðuverks, sem
allir í sjávarútvegi þurfa að
hafa við höndina. Fyrri út-
gáfa var alveg uppseld og
ekki vanþörf á nýrri og end-
urskoðaðri útgáfu, þar sem
60 nýjar fisktegundir hafa
bæst við. Hér birtast ítarleg-
ar lýsingar á 292 tegundum
sem fundist hafa á íslensku
hafsvæði ásamt skýrum teg-
undamyndum. Otæmandi
fróðleiksbrunnur um allt sem
við kemur íslenskum fiskum
og fiskveiðum. Um leið
verður bókin eins og leiðar-
vísir fyrir útvegsmenn í leit
þeirra að nýjum auðlindum í
djúphafinu eins og búra.
550 blaðsíður.
Fjölvi-Vasa.
Verð: 4.680 kr.
ÍSLENSKIR FUGLAR
Brlan Pilkington
í þessari handbók náttúru-
BRIAN PILKINGTON
unnandans má finna fjöl-
breyttan fróðleik um ís-
lenska varpfugla, útlit þeirra
og hegðun, lifnaðarhætti og
heimkynni, ásamt vönduð-
um litmyndum.
Iðunn.
Verð: 2.980 kr.
JÓLASVEINADAGATALIÐ
Notist ár eftir ár
Selma Jónsdóttir og
Hákon Aðalsteinsson
Jólasveinadagatalið prýða
fallegar teikningar af öllum
jólasveinunum ásamt Grýlu
og Leppalúða eftir Selmu
Jónsdóttur. Hákon Aðal-
steinsson hefur gert
skemmtilegar vísur um alla
nm ■■ 11 ln
tr 1
Blindur
er bóklaus
maður
k á
mi'i -----------
karlana. Dagatalið hefst 12.
desember við komu
Stekkjastaurs. Má síðan
nota ár eftir ár.
14 blaðsíður.
Snerruútgáfan sf. í
samvlnnu við Þjóðminja-
safn íslands.
Verð: 690 kr.
- Á ensku 835 kr.
LÁTUM STEINANA TALA
Guðrún G. Bergmann
Handbók um notagildi
steina og kristala. Fjallað er
um sögu steinanna og hlut-
verk þeirra á komandi tím-
um. Samspil steina og krist-
ala við heildræna heilun er
skýrt og áhrif þeirra á orku-
blik og orkustöðvar manns-
ins. 90 mismunandi steina-
tegundir eru kynntar, fjallað
um huglæg og heilandi áhrif
þeirra, samspil stjörnuspeki
og steina skýrt, sem og
notkun pendúla. Bókina
prýðir fjöldi teikninga, lit-
mynda og pendúlakorta,
auk ítarlegra uppflettilista
yfir steina og kristala.
220 blaðsíður.
Birtingur - Nýaldarbækur.
Verð: 2.980 kr.
LÆRIÐ AÐ PRJÓNA
Erla Eggertsdóttir
ítarlegar lýsingar á undir-
stöðuatriðum og grunnað-
ferðum í prjónaskap fyrir
byrjendur, svo og hugmynd-
ir, fróðleikur og mynstur fyrir
þá sem lengra eru komnir.
74