Bókasafnið - 01.01.2004, Blaðsíða 18

Bókasafnið - 01.01.2004, Blaðsíða 18
Þorsteinn Hallgrímsson Varðveisla íslenskra vefsíðna Inngangur Flest lönd leitast við að varðveita menningararf sinn og veita aðgang að honum og víðast hvar hefur þjóðbókasafn hvers lands það hlutverk að varðveita ritað efni með því að þaulsafna útgefnu prentuðu efni. Söfnin hafa með tímanum fylgt tækninýjungum eftir með því að safna einnig efni á nýjum miðlum svo sem tón- og myndefni, rafrænu efni á geisla- diskum og eftir föngum rafrænum tímaritum. Hvað sjónvarpsefni, myndbönd og kvikmyndir varðar er mjög misjafnt hvar því efni er komið fyrir. Til þess að safna til hlítar sem mestu efni án óhóflegs kostnaðar hafa þjóðbókasöfnin treyst á lög um skylduskil og fram til þessa hefur árangur verið mjög góður en tilkoma Netsins og Veraldarvefsins (Vefsins) hefur gjörbreytt fyrri lögmálum um útgáfu. Þann fyrsta janúar 2003 gengu í gildi ný Lög um sfeyldusfeil til safna. [1]. Lög um skylduskil íslensks ritaðs efnis má rekja til ársins 1662 er gefin var út konungleg tilskipun um að afhenda skuli Dana- konungi tvö eintök af Hólaprenti sem þá var eina prentsmiðjan á íslandi. Ekki skilaði það miklu því talið er að aðeins ein sending hafi skilað sér. Árið 1697 gengu í gildi fyrstu dönsku lögin um skylduskil í formi konunglegrar tilskipunar um að skylda útgef- anda prentaðra verka til að afhenda Konungsbóklöðu 5 eintök af verkinu og giltu þau lög einnig fyrir ísland. Árið 1886 voru sett fyrstu lögin sem tóku sérstaklega til íslands og ýmsar breytingar voru gerðar á þeim á árunum 1909,1928,1939 og 1941. Árið 1949 voru lögin endurskoðuð m.t.t. sjálfstæðis íslands og hvaða söfn ættu að fá skylduskilaeintök. Árið 1977 eru sett ný lög sem taka til útgefinna prentverka og hljóðfita (hljóm- platna, segulbanda og síðar geisladiska). Hin nýju lög eru mun víðtækari en hin fyrri og ná til flestra verka sem eru gefin út eða birt á íslandi bæði á eldri og nýrri miðlum. Þau ná m.a til mynd- banda, örfilma, útvarps- og sjónvarpsefnis, kvik- mynda og stafræns efnis hvort sem það er á föstum miðli (s.s.geisladiskum) eða á Netinu. Nánar tiltekið skilgreina lögin á eftirfarandi hátt skilaskyld verk sem útgefin eru á almennu tölvuneti. „8. gr. Verk á rafrœnu formi á almennu tölvuneti. Sá sem birtir uerte á rafrœnu formi á almennu töluuneti sfeal veita móttökusafni aðgang að verkinu. Hann steal láta safninu í té aðgangsorð og aðrar upplýsingar sem nauðsyn- legar eru til þess að stofnuninfái aðgang að uerteinu. Afhendingarskyldu telst fullnægt sé móttökusafni gert teleift að taka til sín eintak afverkinu. Sfeylda til afhendingar sfeu. 1. mgr. nær efetei til tölvuforrita nema /orritið sé birt ásamt uertei af annarri tegund sem steilasfeylda nœr til. Landsbókasafn skal varðveita uerfe sem birtast á rafrænu formi á neti. Safnið setur nánari reglur um afhendingu þessara gagna." Þann 5. desember 2003 var gefin út Reglugerð nr. 982/2003 um sfeyldusfeil til safna til skýringar á fram- kvæmd laganna [2]. Eftirfarandi grein laganna fjallar um verk á rafrænu formi á almennu tölvuneti. „6. Gr. Verk á rafrœnu formi á almennu tölvuneti Undir þennanflokkfalla vefsíður og önnur gögn - sem birt eru eða gerð aðgengileg almenningi á hinum íslenska hluta veraldarvefsins, þ.e. þjóðarléninu .is, svo og efni sem birt er á öðrum lénum á íslensfeu eða afíslenskum aðilum. Sá sem birtir uerte á rafrænu formi á almennu töluuneti sfeal ueita móttökusafni aðgang að verkinu og láta í té aðgangsorð og aðrar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til þess að safnið fái .aðgang að verkinu. Afhendingarskyldu telst fullnægt sé móttökusafni gert felei/t að tafea til sín stafrœnt eintafe a/ verkinu. Móttökusafn sfeal Ieita e/tir nánu samstarfi við þann aðila sem annast skráningu og stjórnun á þjóðarléninu ,is, m.a. í því skyni aðfá reglulega upplýsingar um hvaða lén eru skráð undir þjóðarléninu. Sama gildir um önnur lén á íslensfeu og þau sem birt eru afíslenskum aðilum. Móttökusafn sfeal eiga uíðtcefet samstarf um framkvœmd og tilhögun söfnunar þeirra uerfea sem birt eru á vefnum, sér- stafelega uið refestraraðila stœrstu Iéna sem sfeyldusfeil tafea til. Móttöfeusa/n sfeal ennfremur leita e/tir samstarfi við aðila sem birta uerte á almennu töluuneti um að þeimfylgi sem best lýsigögn. Umforrit gildir sama regla og tilgreind er í 2. mgr. 5. gr. (sjá 8. grein sömu Iaga).“ Þegar saga laga um skylduskil er rakin með tilliti til þeirrar viðleitni að ná til nýrra miðla virðist eðli- legt að verk á rafrænu formi sem birt eru eða gefin út á almennu tölvuneti séu innifalin. Ef litið er til um- heimsins er það alls ekki tilfellið því ísland er meðal fyrstu landa sem breyta lögum um skylduskil þannig að þau nái til þessa efnis. Norðmenn riðu á vaðið árið 1996 með því að breyta sínum lögum á þann veg að norska þjóðbókasafninu er heimilt að safna og varð- 16 BÓKASAFNIÐ 28. ÁRG. 2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.