Bókasafnið - 01.01.2004, Blaðsíða 26
upplýsingaöflunarferlinu. Fræðimenn þekkja innviði
greinarinnar, aðferðir og kenningar, helstu höfunda,
þekkta háskóla og rannsóknastofnanir. Þeir hafa
ómældan áhuga á viðfangsefnum sínum og reynist
einfalt af fikra sig eftir heimildaskrám, neðanmáls-
greinum og ábendingum frá kollegum sínum. Stúdentar
hafa nauman tíma og offneta hæfni sína til að leita
heimilda. Þeim reynist oft óyfirstíganlegt að þrengja
viðfangsefnið, spyrja réttu spuminganna og komast af
við hugtaka- og orðanotkun í tölvuskrám. Fyrir þeim er
aðalatriðið að finna eitthvað fljótt sem nægir þeim til að
ljúka verkefninu og standast matið.
Vorið 2002 vaknaði áhugi höfunda á því að fylgjast
með í hve miklum mæli nemendur í Kennarahá-
skólanum notuðu heimildir af Netinu. „Samningur um
landsaðgang að erlendum gagnasöfnum" hafði þá verið
í gildi frá því haustið 2000 og árið 2001 var samið við sex
útgefendur um aðgang að tímaritum á rafrænu formi
(Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn 2002:47). Það
var því freistandi að skoða hvort hægt væri að sjá hvort
betra aðgengi að tímaritum kæmi fram í aukinni
notkun þeirra. Auk þess langaði höfunda til að fá
staðfest hvort hinn prentaði safnkostur
Kennaraháskólans svaraði þörfum nemenda skólans. í
þessari grein er reynt að svara tveimur spumingum:
1. Hvers konar heimildir nota nemendur í Kennara-
háskóla íslands í lokaverkefnum til Bachelor-gráðu
(hér eftir kölluð B-gráða) og í meistara-
prófsritgerðum (M-gráða)?
3. Hvemig er aðgengi nemenda að þeim heimildum?
Aðferð
Til að svara fyrri spumingunni em greindar
heimildaskrár allra lokaverkefna til Bachelor-gráðu
(B.A., B.Ed. og B.S.) og meistaraprófsritgerða (M.Ed.) sem
var skilað á ámnum 2002 og 2003. Þessi athugun er því
byggð á alls 326 heimildaskrám.
Taflal
Fjöldi heimildaskráa
Algengast er að einn höfundur sé að hverju verki
Tafla 3 Ritaeign í KHÍ
Bækur Til i KHÍ [ Gegni Finnast ekki
isl. bækur N: 266 88% 95,5% 4,5%
Erl. bækur N: 267 58,8% 72,3% 27,7%
(203), tveir unnu saman í 116 tilvikum og þrír höfundar
em að sjö verkefnum. Allar meistaraprófsritgerðir em
eins manns verk. Lokaverkefni til B-gráðu vom á þessu
tímabili öll þriggja eininga en meistaraprófsritgerðirnar
vom frá tíu einingum upp í 30 einingar.
Allar heimildir em greindar eftir formi og flokkaðar í
fjóra flokka, bœkur, tímarit, vefheimildir og aðrar heimildir.
Þegar vísað er í bók á vef er hún fyrst og fremst talin
með bókum. í flokknum aðrar heimildir em talin viðtöl,
myndbönd, sjónvarps- og útvarpsþættir, dagblöð,
handrit, fyrirlestrar, bréf og lög og reglugerðir.
Skoðað er hvort heimildafjöldi sé ólíkur eftir því
hvort nemendur stunda gmnnnám eða framhaldsnám,
hvort þeir em í staðnámi eða fjamámi og hvort munur
er á milli ára. í gmnndeild skólans er stundað nám til
B.A-., B.Ed,- og B.S.-gráðu og á þessum ámm luku
nemendur prófi á fjórum brautum, gmnnskólabraut,
íþróttabraut, leikskólabraut og þroskaþjálfabraut. Á
gmnnskólabraut og leikskólabraut vom brautskráðir
bæði staðnemar og fjarnemar en á þroskaþjálfabraut
hófst Qamám ekki fyrr en haustið 2002 svo þar em
aðeins skoðuð verkefni úr staðnámi. Á íþróttabraut
hefur ekki verið boðið upp á fjarnám að öðm leyti en því
að árið 2002/03 bauðst íþróttakennurum að bæta við sig
eins vetrar námi í heilsuþjálfun. Þeir unnu B.S.-verkefni
og vom brautskráðir með B.S.-próf. Allir nemendur sem
stunda meistaranám em í fjarnámi.
Til þess að kanna hvort hlutaðeigandi rit séu til í
Kennaraháskólanum eða í öðmm Gegnissöfnum er
öllum heimildum í 34 verkefnum (30 lokaverkefnum og
fjómm meistaraprófsritgerðum) flett sérstaklega upp í
Gegni. Athugað er hvort öll erlend tímarit sem vom
notuð séu til í íslenskum söfnum og/eða í landsaðgangi.
Einnig er gengið úr skugga um hvort vefheimildimar sé
enn að fmna á sömu vefslóðum.
Heimildaskrár
Þótt meðalheimildaskráin sé yfirleitt í kringum 20
heimildir í lokaverkefnum til B-gráðu er fljótiegt að sýna
fram á að í rauninni er engin meðalheimildaskrá til.
Vísað er í frá tveimur upp í 75 heimildir í verkefni
þannig að spönnin er víð. í meistaraprófsritgerðum er
hún enn víðari, þar er vísað í frá 30 heimildum upp í 127
heimildir.
Eins og við mátti búast munar miklu á Qölda
c
Meistaranám N=18
Þroskaþjálfabraut N=23
Leikskólabraut N=59
íþróttabraut N=39
Grunnskólabraut N=185
0 10 20 30 40 50 60 70 80
N: Fjöldi ritgeröa
Mynd 1
Meðalfjöldi heimilda
heimilda í meistaraprófsritgerðum og lokaverkefnum
þeirra sem eru að ljúka Bachelor-gráðu. Mynd 2 er
kassarit sem sýnir 50% allra heimilda innan kassanna.
Hinn helmingurinn dreifist á mun breiðara bil í
meistaraprófsritgerðunum en í B-verkefnunum. í
tæplega 6% þeirra síðamefndu eru heimildaskrár með
fleiri en 40 heimildir (strikið nær ekki til þeirra vegna
þess að þær em einfarar utan ákveðinna marka).
24
BÓKASAFNIÐ 28. ÁRG. 2004