Bókasafnið - 01.01.2004, Blaðsíða 28
Mynd 8
Aðgengi að erlendum tímaritum
Tafla 2
Hlutfall tilvisana í bækur
Verkefni Á íslensku Á erlendum málum
Til B-qráðu 62,9% 37,1%
Til M-qráðu 32,4% 67,6%
Til þess að freista þess að finna út hve hátt hlutfall
af bókum er til í Kennaraháskólanum var úrtak 30 B-
verkefna skoðað sérstaklega, öllum heimildum flett
upp og þær staðsettar. Auk þess voru skoðaðar
heimildaskrár fjögurra meistaraprófsritgerða, tvær
með fáum heimildum og tvær með mörgum.
Tafla 3 Ritaeign í KHÍ
Bækur Til í KHÍ í Gegni Finnast ekki
ísl. bækur N: 266 88% 95,5% 4,5%
Erl. bækur N: 267 58,8% 72,3% 27,7%
íslenskar bækur sem ekki finnast í Gegni eru
einkum ýmiss konar efni úr skólum sem ekki er dreift
víða, t.d. skólanámskrár.
Tímarit
Tímaritsgreinar eru 13,8% allra heimilda í könnuninni.
Þær hafa birst í 385 tímaritum. Þar af eru 104 á íslensku
en 281 á erlendum málum, langflest á ensku.
Mynd 7
Fjöldi tímarita og greina
600
500
400
j° 300
LL
200
100
B Isl. tímarit
■ &l. tímarit
Tímarit
Greinar
í 7,1% verkefna til B-gráðu er alls ekki vísað til
efnis í tímaritum en algengast er að vísa í fimm til
átta greinar í hverju. í öllum meistaraprófsritgerðum
er vísað í tímaritsgreinar.
Fjöldi tímarita
Aðgengileg
í KHÍ
í Gegni
í landsaðgangi
Á opnum vef
Finnast ekki
0 50 100 150 200 250 300
Á mynd 8 sést fjöldi þeirra erlendu tímarita sem
vitnað er í og hvort þau eru aðgengileg. Leitað var í
Google til að hafa upp á tímaritum á opnum vef.
Rétt er að minna á að tímaritakostur í lands-
aðgangi og í Gegni skarast að nokkru leyti þar sem
prentuð útgáfa margra tímarita í landsaðgangi hefur
fram að þessu einnig verið keypt.
Við athugun í febrúar 2004 kemur í ljós að 18 af
þeim 146 tímaritum í landsaðgangi sem tilvitnaðar
greinar fundust í (12,3%) eru ekki lengur aðgengileg á
rafrænu formi þótt þar sé að finna þær greinar sem
vísað er til í heimildaskránum. Þessi tímarit eru öll úr
ProQuest-gagnasafninu sem er langmest notað af
þeim sem landsaðgangur býður upp á. Nokkur dæmi
eru um að prentaðri áskrift að þessum sömu tíma-
ritum hafi verið sagt upp í bæði KHÍ og fleiri söfnum.
Tafla 4 Erlend tímarit sem mest er visað í
Tímarit Fjöldi tilvisana
Educational Leadership 25
Younq Children 23
Sproqforum 15
Primarv Science Review 9
Developmental Medicine and Child Neuroloqv 7
British Medical Journal 6
Educational Studies in Mathematics 6
Förskoletidningen 6
Journal for Research in Mathematics Education 6
Journal of the American Medical Association (JAMA) 6
Readinq Research Quarterlv 6
Reading Teacher 6
Adapted Physical Activitv Quarterlv 5
Early Childhood Education Journal 5
Teachers College Record 5
í töflu 4 eru talin upp erlend tímarit sem vísað er í
fimm sinnum eða oftar. Ellefu þeirra hafa verið keypt
í KHÍ en af þeim hefur fimm verið sagt upp vegna
þess að þau voru í landsaðgangi. í 195 tímarit er
aðeins vísað einu sinni.
26% erlendu tímaritanna virðast ekki vera
aðgengileg í landsaðgangi, þeim söfnum sem skrá
tímaritaforða sinn í Gegni eða á opnum vef. Ætla má
að annað hvort hafi þeirra verið aflað með
millisafnalánum eða hjá einstaklingum. Dæmi eru
um að nemendur hafi skrifað ritgerðirnar erlendis og
geta þá hafa haft aðgang að öðrum tímaritakosti.
26
BÓKASAFNIÐ 28. ARG. 2004