Bókasafnið - 01.01.2004, Qupperneq 23

Bókasafnið - 01.01.2004, Qupperneq 23
skapast getur með þessu móti er t.d. yfirlit yfir öll íslensk rafræn tímarit og reglubundnar útgáfur. Landsbókasafn getur notað niðurstöðurnar til að gera sérstakt viðmót sem auðveldar aðgang að þessum vefjum bæði í Vefnum sjálfum og í vefsafninu. Varðveisla Nauðsynlegt er að huga að framtíðarvarðveislu íslenska vefsafnsins. Það er þó ekki efst í forgangs- röðinni því vefsafnið er algjörlega stafrænt og varð- veisla þess fylgir sömu lögmálum og gilda almennt um varðveislu stafrænna safna. Mjög mikið starf er unnið á alþjóðavettvangi við að skilgreina hvernig varðveislu þeirra skuli háttað og gera tillögur um bestu aðferðir við skipulag stafrænna safna og hvaða lýsigögn skuli fylgja gögnunum. Alþjóðastaðlaráðið, International Organisation for Standardisation, (ISO), [14] vinnur að gerð staðals er nefnist „Open Archival Information System" [15] og mun hann taka á flestum vandamálum sem fyrirsjáanleg eru. Þau tengjast m.a. varðveislu gagnanna á segulmiðlum, en flytja þarf gögnin á nýja miðla eftir því sem tæknin þróast. Enn flóknara er að spá fyrir um þróun hug- búnaðar og hvernig unnt verður að tryggja að hægt verði að vinna með gögnin eftir 50 til 100 ár. Þörfm er hinsvegar svo brýn og það mikið unnið að því að finna raunhæfa lausn á framtíðarvarðveislu stafrænna gagna að ekki er ástæða til að hafa miklar áhyggjur af því að það verði ekki í lagi þegar fram í sækir. Lokaorð Hér hefur verið gerð nokkur grein fyrir helstu atriðum sem lúta að varðveislu vefsíðna í vefsafni og aðgangi að því, einkum m.t.t. íslenskra laga um skylduskil til safna og þeirra aðgerða sem Lands- bókasafn hefur gripið til. Mörg þjóðbókasöfn líta á varðveislu vefsíðna sem mikið vandamál en höf- undur kýs að líta á það sem mjög flókið, spennandi og ögrandi verkefni sem verður að leysa. Það er ljóst að aðeins hafa verið stigin fyrstu skrefin í því að varðveita hið menningarlega innhald Vefsins og að þekking okkar á Vefnum og innihaldi hans er talsvert ófullkomin. Bæta þarf allan núverandi hugbúnað og tól en unnið er að því í alþjóðasamvinnu að skilgreina og þróa tækni, staðla og aðferðir, og gera nýjan hug- búnað til vefsöfnunar, varðveislu vefsafns og veita aðgang að vefsafni. Nokkrar þjóðir vinna að því að búa til eigið þjóðarvefsafn og ef vel tekst til verða þau með tímanum grunnur að alheimsvefsafni. í ársbyrjun 2004 var staðan sú á íslandi að safnað hefur verið í 131 dag og hefur safnarinn heimsótt 9952 vefsetur sem tilheyra íslenska þjóðarléninu .is. Safnað hefur verið um 7,5 milljónum vefskjala og farið hefur verið um 27,5 milljónir vefslóða (URL). Heildargagnamagnið er um 350 Gb og er það geymt á seguldiskum. Unnið er að uppsetningu á NWA aðgangsforritum og með vori 2004verður tekið í notkun nýtt söfnunarforrit sem mun skila mun betri árangri en það sem nú er notað. Heimildir [1] Lög um skylduskil til safna 2002 nr. 20 20. mars: Vefslóð; http://althingi.is/, skoðað 29.01.2004. [2] Reglugerð nr. 982/2003 um skylduskil til safna: Vefslóð; http://brunnur.stjr.is/mrn/logogregl.nsf/logogregl- flokkar, skoðað 29.01.2004. [3] Internet Archive: Einkafyrirtæki sem ekki er rekið með hagnað í huga og hefur það markmið að byggja Net- bókasafn, þ.e. vefsafn sem veitir fræðimönnum, rann- sóknarmönnum og almenningi aðgang að vefsafninu. Vefslóð; http://www.archive.org/, skoðað 29.01.2004. [4] Kulturarw^; Verkefni sænska þjóðbókasafnsins um söfnun og varðveislu sænska Vefsins. Vefslóð; http://kulturarw3.kb.se/, skoðað 29.01.2004. [5] Pandora: Verkefni ástralska þjóðbókasafnsins um söfnun og varðveislu valins efnis ástralska Vefsins. Vefslóð; http://pandora.nla.gov.au/index.html, skoðað 28.01.2004. [6] Minerva: Verkefni Library of Congress um söfnun og varðveislu vefsíðna tengdum ákveðnum atburðum. Vefslóð; http://www.loc.gov/minerva/, skoðað 30.01.2004. [7] Nordunet2 var nefnd á vegum Norðurlandráðs sem veitti styrki til upplýsingatækniverkefna á fjórum sviðum, þ.m.t. stafrænna bókasafna. Vefslóð; http://www.nordunet2.org/, skoðað 02.01.2004. [8] Nordic Web Archive (NWA) er samvinnuverkefni þjóðbókasafna Norðurlanda um að veita notendum aðgang að vefsafni. Vefslóð; http://nwa.nb.no/, skoðað 02.02.2004. [9] NORDINFO er samstarfsnefnd Norðurlanda um upp- lýsingar á sviði vísinda. Vefslóð; http://www.nordinfo.helsinki.fi/index.htm, skoðað 02.022004. [10] International Internet Preservation Consortium (IIPC) eru samtök 11 þjóðbókasafna (Ástralía, Bretland, Danmörk, Finland, Frakkland, ísland, Ítalía, Kanada, Library of Congress, Noregur, Svíþjóð), og Internet Archive um að skilgreina hvað þarf til að varðveita vefsíður einstakra landa. [11] NEDLIB var samstarfsverkefni nokkurra Evrópulanda um varðveislu stafrænna menningarverðmæta. Ein afurð þess er forrit til söfnunar á vefsíðum og er það almennt kallað NEDLIB. Það er í umsjá þjóðbókasafns Finnlands. Vefslóð; http://www.kb.nl/coop/nedlib/, skoðað 02.02.2004. [12] Lokaskýrsla um Minerva verkefnið samin afWilliam Y. Arms hjá Cornell háskóla. Vefslóð; http://www.loc.gov/minerva/webpresf.pdf. Skoðað 02.02.2004. [13] Fast Search and Transfer er norskt hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í gerð leitarforrita fyrir vefsíður. Vefslóð; http://www.fastsearch.com/. Skoðað 02.02.2004. [14] Alþjóðastaðlaráðið (International Organisation for Standarisation). Vefslóð; http://www.iso.ch/iso/en/ISOOnline.openerpage. Skoðað 02.02.2004. [15] Staðall sem unnið er að og fjallar um varðveislu stafrænna gagnasafna. Vefslóð; http://www.rlg.or^longterm/oais.html. Skoðað 02.02.2004. 21 BÓKASAFNIÐ 28. ÁRG. 2004
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.