Bókasafnið - 01.01.2004, Blaðsíða 34

Bókasafnið - 01.01.2004, Blaðsíða 34
Millisafnalán: Þórný Hlynsdóttir Útibú: Guðmundur Ingi Guðmundsson Á varðveislusviði í þjóðdeild Skylduskil: Þórir Ragnarsson Skráning, lyklun og flokkun (íslenskt efni): Ragna Steinarsdóttir Þjónusta og umönnun efnis: Ingibjörg Gísladóttir Sérsöfn: Jökull Sævarsson Bókband og forvarsla: Rannver Hannesson Myndastofa: Helgi Bragason Á varðveislusviði í handritadeild Menning og miðlun: Emilía Sigmarsdóttir Á rekstrarsviði: Fjármálastjóri: Edda G. Björgvinsdóttir Starfsmannastjóri: Herdís Þorgrímsdóttir Rekstur fasteigna: Ólafur Guðnason, hússtjóri Almenn tölvuþjónusta: Bergsteinn Gunnarsson Eins og þeir sjá sem þekkt hafa vel til á Lands- bókasafni eru hér talsvert miklar breytingar á verk- stjórn, og ábyrgð hefur verið dreift mjög markvisst til þeirra sem starfa næst vettvangi. Næstu skref Þegar nýtt skipulag lá fyrir var sjónum beint að næstu skrefum í endurskoðun, þ.e. að rekstraráætlun, for- gangsröðun framfaraverkefna, skilgreina verkferla, og starfsmannamálum. Rekstraráætlun. Með skiptingu starfseminnar á þrjú svið var brýnt að skipta fjárveitingum safnsins á milli sviðanna svo að hver sviðsstjóri vissi hvaða fjármálum væri úr að spila. Fagleg og fjárhagsleg ábyrgð fylgist að enda er ekki hægt að innleiða svo margháttaðar breytingar án þess. Nú hefur rekstrar- áætlun verið gerð fyrir árið 2004 sem er að mestu leyti byggð á fjárveitingum síðasta árs og áætlunum um nýjungar og framfaraverkefni ársins 2004. Þar með er komið tæki til að greina kostnað við hvert og eitt viðfangsefni í safninu. Verkefnaáætlun. í stefnumótuninni var fjöldinn allur af óskaverkefnum og aðgerðum sem eiga að styðja við og koma stefnunni í framkvæmd. Hafist var handa um að forgangsraða 20 verkefnum alls til að byrja með sem hefjast áttu strax. Þessi verkefni verða síðan sett inn í verkefnastýringu með skráðum markmiðum, mannaflaþörf, tímasetningum og kostn- aði eins og venjan er við slíka verkefnaskráningu Verkferlar og gæðamál. í jafn flókinni og marg- breytilegri stofnun og Landsbókasafni eru gæðamál og skýr skilgreining verkferla mjög brýn. Við höfum dæmi um þegar ekki hefur verið sinnt gæðaeftirliti og vitum hvað slíkt getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Skráning verkferla er hafin og er ætlunin að koma upp um það bil 20 nákvæmum verkferlalýs- ingum sem koma til með að forma grunninn að gæðahandbók safnsins. Starfsmannahandbók. Unnin hefur verið hand- bók sem gildir sem rammi um marga þætti er snerta starfsmenn safnsins, allt frá kjarasamningum að meðferð tölvupósts. Handbókin er á innra neti safn- sins og verður í sífelldri endurskoðun. Þar liggja allar þær upplýsingar sem starfsmenn þurfa á að halda um verklag í safninu. Meðal nýjunga er siðanefnd sem taka á fyrir eineltismál og hvert það brot á hegðun sem upp kann að koma. Starfsmat. Síðustu kjarasamningar Félags háskóla- kennara og Starfsmannafélags ríkisstofnana gerðu ráð fyrir að starfsmat yrði unnið fýrir alla starfsmenn sem eru í þessum tveimur stéttarfélögum og laun yrðu miðuð við niðurstöðurnar. Þegar nýr starfs- mannastjóri kom til starfa við Háskóla íslands haustið 2003 var ákveðið að Landsbókasafn yrði fyrsta stofnunin sem færi í almennt mat. Þessu mati er nú senn lokið. Eftir er að samræma mat milli deilda til þess að sambærileg störf séu ekki mishátt metin. Starfsmannafundir. Almennir fundir starfsmanna eru haldnir einu sinni í mánuði. Þetta eru klukkutíma fundir og er tilgangurinn með þeim að efla innra upplýsingaflæði, gefa starfsmönnum kost á að koma sínum áhyggjuefnum á framfæri og einnig er ætlunin að nota þessa fundi fyrir fræðslustarfsemi og fyrir- lestra um eitthvert nýmæli í safninu eða tengt því. Upplýsingaflæði innan húss. Á almennum starfs- mannafundi var óskað eftir að sendur yrði út viku- legur fréttapistill um það helsta sem er að gerast í safninu. Þessi pistill er nú sendur út á föstudögum undir nafninu í uikulokin og fer á netfang allra starfs- manna. Endurmenntun og símenntun. Hvert svið hefur fjárveitingu til endurmenntunar og símenntunar fyrir sitt starfsfólk. Er sviðsstjóra ætlað að stýra endur- menntun að vissu marki og hvetja fólk til að sækja sér þekkingu sé hennar þörf fýrir það starf sem sinnt er. Lokaorð Á þeim tæpu tveimur árum sem liðin eru frá því ný stefnumótun hófst í Landsbókasafni hefur talsvert margt áunnist. Það má segja að við séum búin að fá þau tæki og tók í hendurnar sem ættu að duga til að ná verulega góðum faglegum árangri í rekstri safn- sins. Fjármálin eru erfið og safnið hefur verið rekið með tapi sem vinna þarf upp. Við vitum að það tekur tíma að byggja heilsteypta veitustofnun þótt við höfum byggingarefnið og teikninguna. Verkamenn- irnir sem vinna við byggja þekkingarveituna eru margir hverjir afburða fagmenn og því er ekki ástæða til annars en að líta björtum augum fram á veginn. Framundan er mikil vinna við að skýra og skrá verkferla, skipuleggja framfaraverkefni, stór og smá, og síðast en ekki síst að sjá til þess að starfskraftar hvers og eins nýtist sem best. 32 BÓKASAFNIÐ 28. ÁRG. 2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.