Bókasafnið - 01.01.2004, Side 37
Páll H. Hannesson
GATS-samningurinn og bókasöfn
Byggt á erindi á málþingi Upplýsingar 09.10.2003
þessu erindi verður fjallað almennt um GATS-
samninginn, General Agreement on Trade in
Services, eða Samkomulag um verslun með
þjónustu, og hvernig bókasöfn á íslandi falla
undir hann. GATS-samningurinn er á forræði
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, World Trade Organi-
sation, WTO og er einn þeirra stólpa sem alheims-
væðing dagsins í dag stendur á..
Alþjóðaviðskiptastofnunin varð til í ársbyrjun 1995
í kjölfar svokallaðrar Uruguy-samningalotu sem stóð
frá 1986-1994 og telur nú innan sinna vébanda 146
félaga eða þjóðir. Segir á heimasíðu stofnunarinnar að
samningar stofnunarinnar, GATS, GATT-samningur-
inn sem margir kannast við auk TRIPS og tæplega
þrjátíu annarra alþjóðasamninga nái nú til 97% al-
heimsviðskipta. Þær frægu stofnanir Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn og Alþjóðabankinn eru í raun systur-
stofnanir WTO og er stefna þeirra meðvitað samhæfð.
Aðild íslands að WTO var samþykkt í árslok 1994
sem þingsályktunartillaga um að Alþingi heimili
ríkisstjórninni að fullgilda samninginn um stofnun
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Um leið undirgekkst
ísland sjálfkrafa undir allar skuldbindingar allra
samninga stofnunarinnar.
Þegar samningar eru skoðaðir er það oftast
áhugavert að skoða hvaða hagsmunir liggja að baki
og um leið hvort einhverjir aðilar eru þar áhrifameiri
en aðrir. Því hér er um mikla hagsmuni að ræða og
þessi samningur, þó alþjóðlegur sé er vissulega
mannanna verk.
Því hefur verið haldið fram með rökum að upphaf
þessa samnings sé að leita meðal bandarískra
alþjóðafyrirtækja á áttunda áratugnum, bandarísku
fjármálarisanna CitiCorp, American Express og
annarra viðlíka. Og að það hafi verið þau sem áttu
drjúgan þátt í að móta samninginn og tryggja að
bandarísk stjórnvöld þrýstu á um gerð hans. Sama
var upp á tengingum í Evrópu, þar sem atvinnulífið
og sérstaklega fulltrúar stórfyrirtækja hafa haft mun
greiðari aðgang að allri gerð og mótun samningsins
en aðrir í þjóðfélaginu. Hér má einnig vitna til
upplýsingasíðu Evrópusambandsins , en þar kemur
m.a. fram að „GATS er fyrst og fremst tæki til bóta
fyrir atvinnulífið (business), og ekki aðeins fyrir
atvinnulífið í heild, heldur fýrir einstök þjónustu-
fyrirtæki sem vilja flytja út þjónustu eða vilja fjár-
festa og starfa á erlendri grund.“
Áhugi stórfyrirtækjanna á alþjóðlegum þjónustu-
viðskiptum byggist sennilega ekki síst á því að þjón-
ustu er talin nema meira en 60% af alheimsframleiðslu
og atvinnu, en hlutdeild þjónustuviðskipta af heildar-
viðskiptum landa á milli hefur hins vegar aðeins
numið um 20%. Ástæða þessa hefur verið sú að þjón-
usta hefur mikið til verið lokuð inni á heimamarkaði
einstakra landa og verið vernduð þar af lögum og
reglugerðum viðkomandi lands. Ríkið og sveitarfélög
hafa sinnt opinberri þjónustu og talið hag þegna sinna
best borgið með framboði ríkisins á ákveðnum grunn-
þáttum þjónustu. Þannig hefur ríkið eða sveitarfélög
yfirleitt séð um félagslega þjónustu, menntun, vatn og
rafmagn að ógleymdum bókasöfnum. Fyrir gerð GATS-
samningsins voru milliríkjaviðskipti með þjónustu
nánast óþekkt og óframkvæmanleg.
Á heimasíðu Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar má
lesa að megintilgangurinn með GATS-samningnum
sé að opna innanlandsmarkaði fyrir alþjóðlegum
þjónustuviðskiptum, brjóta niður einokun ríkisins og
slaka á eða afnema ýmsar reglugerðir sem stjórnvöld
hafa sett en WTO lítur á sem íþyngjandi fyrir
atvinnulífið eða sem viðskiptahindranir. Þetta er í
raun kjarni málsins.
GATS-samningurinn
Lítum þá stuttlega á nokkur atriði í samningnum
sjálfum. Það sem vekur kannski fyrst athygli er það
hversu víðtækur samningurinn er. Hann tekur til
allrar þjónustu í nútíð og framtíð og hann snertir allar
stjórnvaldsaðgerðir allra stjórnvalda. Svo vitnað sé í
samninginn: „Reglur GATS ná til hvaða aðgerða
(measure) sem er, sama á hvaða stigi stjórnsýslu þær
eru ákveðnar, í löndum sem eru aðilar að WTO, sem
hafa áhrif á viðskipti með þjónustu. Hugtakið aðgerð
(measure) er mjög vítt og nær yfir; allar aðgerðir aðila
(members), sama hvort um er að ræða lagasetningu,
reglugerð, reglu, framgangsmáta, ákvörðun, stjórn-
sýslulega athöfn, eða eitthvað annað form.
BÓKASAFNIÐ 28. ÁRG. 2004
35