Bókasafnið - 01.01.2004, Qupperneq 44

Bókasafnið - 01.01.2004, Qupperneq 44
Viðbrögð samtaka bókasafna og bóka- varða við samningum Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar Kanadíska bókavaröafélagið (Canadian Library Association) fór strax 1997-1998 að láta þessi mál til sín taka og síðan hefur málið verið á dagskrá hjá IFLA (Alþjóðlegt samband bókasafna og stofnana) sem setti strax 1998 á fót starfshóp um málið. IFLA sendi fulltrúa á 2. ráðherrafund Alþjóða- viðskiptastofnunarinnar (WTO) í Seattle haustið 1999 og lagði fram afstöðu sína, „The IFLA Position on WTO Treaty Negotiations". Málið var síðan tekið fyrir á IFLA-þinginu í Jerúsalem árið 2000 og árið 2001 gaf IFLA út yfirlýsingu um afstöðu sína til Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar, „The IFLA Position on The WorldTrade Organization". Þá gaf IFLA út í ágúst 2000 leiðbeiningar fyrir bókasöfn og bókaverði varðandi TRIPS-samninginn, „Tips on TRIPS“. EBLIDA (Samtök evrópskra bókavarðafélaga) hefur sett á fót starfshóp um WTO sem hefur fylgst með samningaferlinu um þjónustu og komið sjónarmið- um sínum á framfæri við framkvæmdanefnd ESB. í nóvember 2002 gaf EBLIDA út yfirlýsingu um GATS samninginn með tilliti til bókasafna. Ýmis landsfélög bókavarða hafa látið málið til sín taka. Norsk Bibliotekforening setti á fót starfshóp árið 2000 sem hefur fylgst með þessum málum. American Library Association hefur fjallað um málið og sam- þykkt ályktun varðandi það auk kanadíska samband- sins og eflaust mætti vitna til fleiri félaga. ísland og þjónustuflokkurinn „Bóka- og skjalasöfn, safnastofnanir og önnur menningarþj ónusta“ ísland gekkst strax við inngönguna í Alþjóðavið- skiptastofnunina undir skuldbindingar varðandi lið- inn „Recreational, Cultural and Sporting Services", en bókasöfn heyra undir þann lið í undirflokki sem kallast „Libraries, archives, museums and other cultural services (bóka- og skjalasöfn, safnastofnanir og önnur menningarþjónusta)“. ísland var í hópi 13 ríkja sem gengust undir skuldbindingar varðandi þennan undirflokk. Önnur ríki voru: Bólivía, Mið-Afríkulýðveldið, Ekvador, Gambía, Gínea-Bissá, Hong Kong, Japan, Nýja Kale- dónía, Síerra Leóne, Singapúr, Bandaríkin ogVenesú- ela. Vera íslands í hópi þessara ríkja hefur valdið mörgum undrun, einkum á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu, enda er ísland eitt Evrópuríkja í þess- um hópi. Upplýsing hefur fengið fyrirspurnir erlendis frá vegna þessa. Félagið sendi fyrirspurn varðandi þetta til utanríkisráðuneytisins og fékk svar dagsett 4. apríl 2003. Þar sem stjórn félagsins fannst svar ráðuneyti- sins ekki fullnægjandi var beðið um nánari skýringar. í bréfi frá ráðuneytinu dagsett 30. júlí 2003 er lýst yfir vilja til að fara yfir helstu atriði samningsins með félaginu. í þessu bréfi er vísað til fyrra bréfins og m.a. sagt varðandi skuldbindinguna á þessu sviði: „íslensk stjórnvöld sáu ekki ástæðu til að hindra erlenda aðila að veita þjónustu á þessu sviði hér á landi að uppfylltum innlendum lögum og reglum. Er það í samræmi við sjónarmið íslenskra stjórn- valda að styðja sem víðtækasta umfjöllun um og opnun markaða á sviði þjónustuviðskipta. Framan- greind skuldbinding tók gildi árið 1994 og eftir því sem ráðuneytinu er best kunnugt um hefur enginn erlendur aðili enn sem komið er haslað sér völl á þessu sviði hér á landi.“ Síðar segir: „Að mati ráðuneytisins er ekki ástæða til að hafa áhyggjur af því [...] að GATS-samningurinn hafi þau áhrif að bókasöfn verði að takmarka þjónustu sína vegna samkeppnissjónarmiða, og telur ráðu- neytið að ekki sé hætta á því að samningurinn setji þjónustuframboði bókasafna skorður sem takmarki samfélagslegt hlutverk þeirra.“ Almennt um hættur sem bókasöfnum stafar af GATS Skv. GATS-samningnum er opinber þjónusta undan- þegin honum (grein 1.3(b))2, en þegar litið er til nánari skilgreininga á hugtakinu „opinber þjónusta" (c-liður sömu greinar),3 telja margir að sá fyrirvari sé lítils virði, því að hún er skilgreind sem þjónusta sem er hvorki á viðskiptalegum grundvelli né í samkeppni við aðra veitendur sambærilegrar þjónustu. Hvenær er þjónusta komin á „viðskiptalegan grunn“ - hvað þarf til? Er það þegar farið er að taka gjald fýrir þjónustuna? Og hvenær er komin samkeppni? Er það þegar annar aðili er kominn með sambærilega þjón- ustu? Getur aðili, sem er farinn að veita einhverja þjónustu sem bókasöfn veita líka, þá farið að gera kröfur? Það er því mjög mikilvægt að ekki sé kvikað frá þeim skilyrðum sem enn sem komið er fylgja skuldbindingum íslands í flokknum Bóka- og sfejala- söfn, safnastofnanir og önnur menningarþjónusta. En um leið er mikilvægt að vera á varðbergi varðandi þá þætti í starfsemi bókasafna sem geta fallið undir aðra flokka. í umræðum um þessi mál hefur eftirfarandi dæmi verið sett upp: Hugsum okkur eftirfarandi atburðarrás: Erlent fýrirtæki á sviði upplýsingaþjónustu kemur með starfsemi sína til (í þessu tilfelli) Kanada. Fyrirtækið skilgreinir starfsemi sína sambærilega við þá sem bókasöfn veita í Kanada. Síðan krefst það sam- 42 BÓKASAFNIÐ 28. ÁRG. 2004
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.