Bókasafnið - 01.01.2004, Qupperneq 46

Bókasafnið - 01.01.2004, Qupperneq 46
DVD-diskum) sem augljósast sé að bókasöfn starfi í samkeppnisumhverfi og falli þar með undir GATS- samningana. En jafnframt er oft bent á að bókasöfn hafi sömu skyldum að gegna varðandi þjónustu sem snýr að slíkum upplýsingum eins og hvers kyns öðrum upplýsingum, eða eins og það er orðað í upphafi UNESCO-yfirlýsingarinnar: „Almennings- bókasafnið er upplýsingamiðstöð á hverjum stað og veitir notendum sínum aðgang að alls kyns þekkingu og upplýsingum." Þessar skyldur verða í raun því meiri sem meira er um að upplýsingar eru aðeins aðgengilegar á netinu. Bæði er um að ræða frían eða ódýran aðgang að þeim tækjum sem nauðsynleg eru, því að þótt æ fleiri eigi þessi tæki heima hjá sér er alltaf einhver hópur sem ekki hefur aðgang að þeim. Hér eru bókasöfn auð- vitað í samkeppni við einkarekin internet-kaffihús. En einnig er um að ræða þjónustu bókasafnanna við að finna upplýsingarnar og hugsanlega einnig veita aðgang að upplýsingum sem annars er ekki aðgangur að nema gegn gjaldi. Meðal upplýsinga á netinu er efni sem net-bókasöfn (e-libraries) miðla gegn greiðslu. Því meira sem þjónustu með rafrænar upplýsingar er sinnt bæði af opinberum bókasöfnum og einkaaðlilum, því frekar má búast við að upp komi spurningin um beina samkeppni þarna á milli sem mun leiða til kröfu um að einkafyrirtækin og bóka- söfnin sitji við sama borð. Hver verður framvinda þeirrar hugmyndar að allir eigi að hafa jafnan aðgang að upplýsingum ef æ meira af upplýsingum verða aðeins aðgengilegar á rafrænan hátt gegn greiðslu? Áhrif einkavæðingar í menntamálum á bókasöfn í yfirlýsingu EBLIDA frá nóvember 2002 er bent á að bókasöfn séu hluti menntakerfisins og einkavæðing í menntamálum hafi því bein áhrif á þjónustu bóka- safna í menntageiranum. Einkenni bókasafns sem fjármagnað er af opinberum aðilum er hlutleysi, mikil breidd safnefnis, auðveldur aðgangur að upplýsingum og fagleg hæfni starfsfólks. Það er mikið umhugs- unarefni, segir í yfirlýsingunni, hvernig núverandi þjónusta bókasafna muni virka í umhverfi þar sem fýrst og fremst er gengið úr frá fjármálalegum mæli- kvörðum. í eðli sínu gæti meðhöndlun upplýsinga innan þessara stofnana breyst til frambúðar. Búast má við að GATS geti haft áhrif á bókasöfn í skólakerfinu, einkum háskólageiranum (Bakken 2002). Ekki hafa þó mörg lönd skuldbundið sig á sviði menntunar, 21 af 140 aðildaríkjum árið 2002 og er ísland ekki meðal þeirra. En það er ljóst að sum ríki, t.d. Bandaríkin og Ástralía, vinna kerfisbundið að því að æðri menntun verði tekin inn í GATS-viðræðurnar (Bakken 2002). Líka er hægt að hugsa sér að GATS-samningurinn gæti haft áhrif á skólabókasöfn og þjónustu almenn- ingsbókasafna við skóla. Hvað þarf til að fyrirtæki, hugsanlega erlent, sem sinnir og selur bókasafna- þjónustu krefjist sömu réttinda og kjara og almenn- ingsbókasöfn til að selja grunnskólum þjónustu sína? Áhrif TRIPS-samningsins á bókasöfn Annar samningur á vegum Alþjóðaviðskiptastofn- unarinnar er TRIPS-samningurinn (Agreement on Trade-Related Aspects of Intellectual Property Rights) sem öll aðildarfélögin eiga að hafa tekið í framkvæmd árið 2006. TRIPS-samingurinn varðar mörg svið sam- félagsins og er t.d. mjög umræddur í sambandi við landbúnað m.a. vegna einkaleyfa á frætegundum. Það sem snýr hins vegar fyrst og fremst að bóka- söfnum er hugverkaréttur (copyright). Grundvöllur TRIPS-samningsins varðandi hug- verkarétt er að ákvæði Bernar-sáttmálans (The Berne Convention for the Protection of Literary and Artistic Works), sem 149 ríki hafa undirritað, eru að mestu tekin upp í hann. Samningurinn tryggir eignarrétt höfundar á verkum sínum og þar með að ekki má flytja þau eða fjölfalda án samþykkis hans. Á þessum rétti eru síðan undantekningar, sem aðildarlöndunum er heimilt að gera, svo sem varðandi fjölföldun í litlum mæli til ákveðinna nota, t.d. vegna náms eða rannsókna. Þessar undan- tekningar geta skipt máli fyrir bókasöfn. IFLA hefur gefið út leiðbeiningar varðandi TRIPS- samninginn, en samkvæmt þeim er ekki að sjá að hann valdi verulegum áhyggjum sem stendur. Undir lok leiðbeininganna segir: „Það er mikilvægt að muna að lög um hugverkarétt (copyright law) eru til hagsbóta fyrir samfélagið í heild en ekki bara til þess að höfundar og úgefendur geti hagnast. Stundum er hagsmunum samfélagsins betur þjónað þegar réttindi eigendanna eiga ekki við.“ Það sem helst veldur áhyggjum er að margir telja samninga Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar frekar miðast við hagsmuni eigendanna en samfélagsins í heild og því er mikilvægt að fylgjast með þróun mála. Álitsgjöf EBLIDA til framkvæmda- nefndar ESB vegna markaðsaðgangs að þjónustu í janúar 2003 sendi EBLIDA frá sér álit að beiðni framkvæmdanefndar ESB varðandi markaðsaðgang að þjónustu. í henni kemur fram að: EBLIDA hvetur framkvæmdanefndina mjög til þess að samþykkja ekki nein tilmæli um að afnema takmarkanir í liðnum „bófea- og skjalasöfn, safnastofn- anir og önnur menningarþjónusta", jafnframt að hún gangist ekki undir neinar skuldbindingar sem stefni fjármögnun og reglum varðandi bókasafnaþjónustu, sem fjármögnuð er af opinberum aðilum, í hættu. Framkvæmdanefndin má alls ekki gangast undir skuldbindingar sem gætu leitt til þess að erlendum 44 BÓKASAFNIÐ 28. ÁRG. 2004
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.