Bókasafnið - 01.01.2004, Blaðsíða 50

Bókasafnið - 01.01.2004, Blaðsíða 50
Þóra Gylfadóttir og Guörún Tryggvadóttir Vandratað um frumskóg EvrópuupplýsingaP Síðastliðið sumar var opnuð í Háskólanum í Reykjavík (HR) Miðstöð Evrópuupplýsinga. Miðstöð Evrópuupplýsinga er íslenska þýð- ingin á European Documentation Centre, skamm- stafað EDC. Ekki er öllum ljóst hvað þessi miðstöð er í reynd og hvaða hlutverk henni er ætlað. í þessari grein verður varpað Ijósi á það og jafnframt fjallað um upplýsingamiðlun Evrópusambandsins og mið- stöðvar Evrópuupplýsinga almennt. Evrópusambandið heldur úti umfangsmikilli upplýsingamiðlun um sambandið og starfsemi þess. Það rekur einhvern stærsta vef á internetinu og á veg- um þess er starfrækt umfangsmikið net upplýsinga- stofa. Þær eru ekki einungis í sambandslöndunum heldur um heim allan. Þessum upplýsingastofum er skipt í nokkra flokka og hefur hver þeirra ákveðnu hlutverki að gegna og er ætlað að þjóna ákveðnum hópum. Lesendur eru beðnir að virða það til betri vegar að höfundar hafa ekki þýtt heiti þeirra upplýsingastofa sem fyrir koma í textanum, en láta nægja að kalla þær sínum ensku heitum. Flestar þessara upplýs- ingastofa eiga sér einkunnarorð sem ætlað er að lýsa tilgangi þeirra og markmiði. Upphafsreit alls upplýsinganets Evrópusamband- sins á internetinu er að finna á slóðinni: http://europa.eu.int/ Hvað er Miðstöð Evrópuupplýsinga, EDC Miðstöðuar Evrópuupplýsinga- European Document- ation Centres (EDC) - “Upplýsingar um sambandið í háskólum og rannsóknarstofnunum” Miðstöðvar Evrópuupplýsinga eru net upplýsinga- stofa sem voru settar á stofn af Evrópusambandinu til þess að efla nám, kennslu og rannsóknir á mál- efnum Evrópu, á háskólastigi. í þessum miðstöðvum er að finna upplýsingar um laga- og réttarkerfi Evrópusambandsins, stefnu þess, stofnanir og Evrópusamrunann. Meira en 500 miðstöðvar Evrópu- upplýsinga eru stafræktar í háskólum og rannsóknar- stofnunum um allan heim. Fyrsta miðstöðin var sett á laggirnar árið 1963 og nú eru um 550 miðstöðvar starfandi. Af þeim eru um 400 í Evrópu, þar af 325 í Ljósm. Sólrún Smáradóttir löndum sambandsins, rúmlega 50 eru í Bandaríkjum N-Ameríku, þær tæplega 100 sem eftir standa eru í öðrum heimsálfum. Ein nýjasta miðstöð Evrópu- upplýsinga er í Háskólanum í Reykjavík. Hlutverk og markmið þessara miðstöðva eru svo skilgreind af Evrópusambandinu: “Gera háskólum og rannsóknastofnunum kleift að koma á framfœri og þróa kennslu og rannsóknir um Evrópu- samrunann, hvetja til þátttöku í umrceðunni um Evrópu og leggja sitt afmörkum til þess að gera skipan Evrópu gagnsærri með því að upplýsa hinn almenna borgara um stefnumál sambandsins.” Til þess að svo megi verða lætur Evrópusambandið öllum EDC í té opinberar útgáfur og skjöl stofnana sambandsins og aðgang að gagnasafninu CELEX, sem er hin opinbera réttarheimild sambandsins. Það bókasafn eða stofnun sem hýsir EDC skuldbindur sig til þess að gera útgáfur sambandsins, prentaðar sem rafrænar, aðgengilegar, tryggja þjónustu bókasafns- og upplýsingafræðings við að finna upplýsingar frá sambandinu og varðveita útgáfur þess. í Miðstöðvar Evrópuupplýsinga er m.a. hægt að sækja upplýsingar um Evrópurétt, Evrópusamrun- ann, Efnahags- og myntbandalag Evrópu, sam- ræmdar evrópskar hagtölur og um stefnumótun innan Evrópusambandsins og stofnana þess. Sam- kvæmt reglum sem þessi tegund upplýsingamið- stöðva starfar eftir eru rit ekki lánuð út, heldur verður að nota þau í húsnæði miðstöðvanna. 48 BÓKASAFNIÐ 28. ÁRG. 2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.